Fyrsta augljósa leiðin á vinstri hönd ofan við leiðirnar „Aðrein“ og „Hraðbraut til heljar“.
Byrjar á bröttum pillar sem er um 20-25 metrar upp á sillu. Við tekur svo 10-15 metra haft sem er örlítið til hægri, seinna haftið er auðveldara en tortryggt, hægt er að fara lengra til hægri fyrir meiri ís og betri tryggingar.
Í frumferðinni var leiðin klifruð í einni spönn og er þá um 50 metrar.
FF. Ottó Ingi Þórisson og Sigurður Tómas Þórisson – 4. febrúar 2024
Nokkuð vatnsmikill foss neðst í Stekkjagili. Fossinn er eflaust oft opin og því ekki í klifranlegum aðstæðum.
Í leiðarvísu um Haukadal í ársriti Ísalp frá 1998 stendur eftirfarandi um leiðina „Ef gengið er inn eftir botni gilsins kemur maður að opnum fossi sem kemur i veg fyrir frekari uppgöngu. Hægt er að fara fram hjá fossinum með þvi að klifra upp vinstri vegg gljúfursins i einni til tveimur spönnum.“ Leiðin upp vinstri vegg gljúfursins er leiðin Aðrein.
Leiðin er eflaust 30 – 40 metrar.
FF. Ottó Ingi Þórisson og Sigurður Tómas Þórisson – 4. febrúar 2024
Fyrri spönn er um 50 metrar af WI3+.
Seinni spönn er um 50 metrar af WI4+. Seinni spönninn verður líklega aldrei auðveldari en WI4+ og hægt er að velja mjög erfiðar útfærslur ef vilji er fyrir.
Lóðrétt leið næst fossinum og upp á stallinn. Fyrri spönn er 25-30m af 3. gráðu og við tekur lóðréttur ís. Leiðin er varhugaverð þar sem ísinn þynnist þegar ofar dregur og erfitt um tryggingar ofan við leiðina. Leið nr. 1 á mynd, 60m.
FF.: Guðmundur Helgi Christensen, Þorvaldur V. Þórsson og Jórunn Harðardóttir, 3. jan 1999.