Villingadalur
Villingadalur er Austasti hlutinn undir norðurhlíðum Skarðsheiðar, djúp dalhvilft sem gegnur SV inn í meginfjallið og rennur Villingadalsá eftir honum. Í botni dalsins má finna 5 ísklifurleiðir auk þess sem hægt er að finna auðvelt stöllótt klifur í gili sunnan við fossana. Ísþilið sunnan megin í dalnum er nokkuð samfellt og hefur mikið verið klifrað í því, samt hafa engar línur fengið nöfn en klifrið er nokkurn veginn WI 2 á flestum stöðum.
- Styx – WI 4
- Hades – WI 4
- Kharon – WI 4+
- Kerberos – WI 3
Villingadalur er merktur inní Ísalp leiðavísi frá 1987, sem sector í Skarðsheiði og hér fyrir neðan má sjá þá mynd úr leiðavísinum.
13. Um Hábrúnir Skarðsheiðar – gönguleið (13km)
14. Villingadalsfossar
15. Mórauðihnúkur – Snjór (600M II.)
Map
Video
Róbert Halldórs, Ottó og Guðjón fóru upp í Villingadal laugardaginn 21.nóvember. Þar voru allar leiðir í topp aðstæðum, grunsamlega mikill ís sem tók vel á móti tryggingum. Þeir klifruðu tvær megin leiðirnar til vinstri og fyrir miðju gili. „Eðal stöff, WI4-ish“
„Báðar leiðirnar er hægt að klifra lengst uppeftir í e-u brölti. Hægra megin er WI3 sem fer lengst uppeftir og er með fullt af litlum höftum sem gæti hentað vel fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu spor í fjölspanna klifri.“ – Róbert Halldórsson.
Uppfærði lýsingarnar fyrir Villingadalsfoss. Ef einhver er með betri lýsingar eða vill betrumbæta þær eitthvað þá er það velkomið.
Ég hef farið leið 1 hér að ofan amk tvisvar. WI4, ekkert rosalega löng
Þilin eru 70m+, fer eftir því hversu hátt þú klifrar. Það er hinsvegar hægt að brölta alveg upp á brún í e-u giljabrölti með e-um höftu og snjó.