Sólheimajökull
Í áraraðir hefur fólk stundað ísklifur á Sólheimajökli og fjöldinn allur af erlendum ferðamönnum klifrar á jöklinum á ári hverju. Í kringum skriðjökulinn má finna meiri ís til að klifra en jöklaísinn.
Hér eru þær leiðir sem hafa verið klifraðar í kringum Sólheimajökul:
- Sólheimaglott – WI5
- Cancel Boogy – WI4
- Þvörusleikir– WI4
Leiðarlýsing
Keyrt eftir Þjóðvegi eitt þangað til komið er að vegi 221 við Sólheimajökul. Þeim vegi er síðan fylgt til enda þangað til komið er að Sólheimajökli.