Stutt fríhangandi kerti í miðjum Svartaskúta (leið 2) upp af Hvítanesi (gömlu herstöðinni).
Líklega er kertið minnst WI4+ þegar það vex niður, en töluvert erfiðara ef menn vilja gæla við það fríhangandi.
Þar sem krafsað hefur verið í hvert krapagilið og drulluspíruna á suðvestur horninu, og svartiskúti er mjög svo í alfaraleið með þægilegri aðkomu, er hægt að leiða líkur að því að leiðirnar hér hafi verið farnar á steinöld. Því óskast frekari upplýsingar um nafn, gráðu og FF.
Klifursvæði |
Hvalfjörður
|
Svæði |
Reynivallaháls |
Tegund |
Ice Climbing |
Merkingar |
|
10 related routes
Stutt leið hægra megin í Svartaskúta (leið 3) upp af Hvítanesi (gömlu herstöðinni).
Þar sem krafsað hefur verið í hvert krapagilið og drulluspíruna á suðvestur horninu, og svartiskúti er mjög svo í alfaraleið með þægilegri aðkomu, er hægt að leiða líkur að því að leiðirnar hér hafi verið farnar á steinöld. Því óskast frekari upplýsingar um nafn og FF.
Stutt fríhangandi kerti í miðjum Svartaskúta (leið 2) upp af Hvítanesi (gömlu herstöðinni).
Líklega er kertið minnst WI4+ þegar það vex niður, en töluvert erfiðara ef menn vilja gæla við það fríhangandi.
Þar sem krafsað hefur verið í hvert krapagilið og drulluspíruna á suðvestur horninu, og svartiskúti er mjög svo í alfaraleið með þægilegri aðkomu, er hægt að leiða líkur að því að leiðirnar hér hafi verið farnar á steinöld. Því óskast frekari upplýsingar um nafn, gráðu og FF.
Stutt leið vinstra megin í Svartaskúta (leið 1) upp af Hvítanesi (gömlu herstöðinni).
Þar sem krafsað hefur verið í hvert krapagilið og drulluspíruna á suðvestur horninu, og svartiskúti er mjög svo í alfaraleið með þægilegri aðkomu, er hægt að leiða líkur að því að leiðirnar hér hafi verið farnar á steinöld. Því óskast frekari upplýsingar um nafn og FF.
Leið númer 35
Gráða 3-60m-1-2klst.
FF: Snævarr Guðmundsson og Árni Tryggvason, janúar 1989.
Snjógil með þremur íshöftum, er klifin í 2 spönnum.
Leið númer 34
Gráða 1-2
Langt, áberandi snjógil med ísfláum í lokin.
Leið númer 33
Gráða V -150m-3-5klst.
FF: Björn Vilhjálmsson, Snævarr Guðmundsson og Árni Tryggvason 1990
Ein af erfiðustu klifurleiðunum í Hvalfirði á sínum tíma. Blandað klifur. 5-6 spannir, tvær í klettum (V+ og V), eru lykilhluti leiðarinnar. Eftir það er rifinu fylgt upp ad nálinni og þaðan hrygg upp á brún fjallsins í 3 löngum spönnum. Laus í neðri hluta, en einhver alfallegasta leiðin í Hvalfirði.
Leið númer 32
150-200m. Gráða I
Áberandi og óslitið snjógil, tíðum notað til niðurferða.
Leið númer 31
150m- 2-3klst.
FF: Snævarr Guðmundsson, 15. mars 1987.
Snjógil sem liggur í boga til hrægri. Í því eru 3 stutt íshöft.
Mynd óskast
Í fjallinu beint fyrir ofan Hvammsvík í Hvalfirði. Leiðin er mest áberandi íslænan þarna í fjallinu og samanstendur af tveimur megin íshöftum og léttara brölti á milli.
FF: Guðmundur Helgi Christensen og Jökull Bergmann, 1. nóvember 1998. 70 m
Leið númer 30
Skemmtileg ævintýraleið upp gil innarlega í firðinum í Reynivallahálsi, skömmu áður en komið er að Brynjudal. Byrjunin og endirinn bjóða upp á stífasta klifrið en miðkaflinn er nokkuð léttur.
FF.: Jón Geirsson og Snævarr Guðmundsson, 29. des 1986.
líklega hefur Jón Geirs et al. klifrað vinstra afbrygði af Nóngili fyrir 1990.
Ég er nokkuð viss um að Ívar Finnboga hafi talað um að hann hafi klifrað þetta. Þetta virkar vel bratt, er þetta ekki WI 5?
Miðjukertið er klárlega WI 5 ekki WI 4.
Eru þetta nýjar nafngiftir á þessum leiðum?
Hefur nú yfirleitt virst nokkuð einfalt úr farlægð þegar það nær niður, en menn mega gjarnan deila um gráðuna. Og þessi nöfn eru bara til bráðabirgða, ef leiðirnar eiga sér fyrri nöfn má endilega deila þeim.