Úr frétt MBL: „Skálinn á sér merkilega sögu og var reistur á fimmta áratugnum af félagsskap sem nefndist Fjallamenn en þar var fremstur í flokki Guðmundur Einarsson frá Miðdal. Félagsskapurinn lagðist af en í framhaldinu tók Alpaklúbburinn sem stofnaður var 1977 við skálanum. Í vetur sem leið fóru fram miklar umræður meðal klúbbfélaga um ástand skálans og framtíð hans. Varð niðurstaðan sú að gera hann upp og hefur mikilvægum áfanga verið náð á þeirri braut með því að koma honum niður á láglendið.“
Greinin: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1235404/
Hér má svo skoða byggingasöguna og mikið af skemmtilegum myndum úr þessu verkefni: http://isalpskalar.blogspot.com/2008/
Í haust er fyrirhugað að setja nýja kamínu í skálann og klára nokkur almenn viðhaldsverkefni. Húsið er í frábæru standi eftir árin tíu enda var vandað mikið til verka í uppgerðinni.
Nú styttist í snjóinn í Tindfjöllum og tilvalið að bóka helgi. Upplýsingar um bókanir er að finna hér: https://sites.google.com/…/isalpskal…/upplysingar-um-skalann