Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
GoliMeðlimur
Flott mál Bassi.
Þegar ég tók þátt í samhliðasvigi á unglingameistaramóti á síðustu öld var rutt upp stökkpöllum / stöllum í brautinni, ca metersháir flatir pallar þvert á brautirnar. Lítið mál á troðara.
Þetta fannst mér, ungum að árum, helvíti flott. Það er hálf „dull“ ef brautin er bara eins og hver önnur svigbraut, en svona aukaþrautir mega heldur ekki fara út í vitleysu….
P.S. Er það rétt að Sissi ætli að keppa á splitboard með lausa hæla?
GoliMeðlimurBlack diamond framleiða bestu skinn:
GoliMeðlimurHeyrðu Sissi, hvað ert þú nú að bretta þig?
Annars trúir maður Töturunum til alls….
GoliMeðlimurP.S. Colorado farar lýsa yfir áhuga á að taka að sér skálann, en óljóst er hverjir þeir eru eða hvað það þýðir.
Það gæti þó útskýrt tímasetningu skrifa….
GoliMeðlimurAð hætti allra góðra spjallþráða ætla ég að drepa umræðunni á dreif, með því að ræða annað mál en samskipti KFR og ÍSALP, sem koma mér lítið við í mínu daglega lífi.
Tindfjallaskáli er mitt hjartans mál, ef þið hafið áhuga á framtíð fjallamennsku í Tindfjöllum þá getið þið lesið áfram annars ekki. Staðreyndirnar eru eftir því sem best ég veit eru eftirfarandi:
1. FÍ hefur áhuga á að eignast skálann.
2. Kyrgistan farar (hverjir eru þeir?) hafa áhuga á að taka að sér skálann, en ekki er vitað hvað það þýðir…..?
3. Einhverjir hópar hafa haft samband a.m.k. við fráfarandi formann Ísalp (eða heldur hann áfram, get ekki lesið það úr fundargerðinni) og lýst yfir áhuga á að taka að sér skálann, ég veit um tvo hópa en þeir gætu verið fleiri.
4. Hluti Ísalp manna og kvenna vilja að Ísalp haldi áfram að eiga skálann og komi honum með einum eða öðrum hætti í nothæft form.
5. Annar hluti Ísalp manna og kvenna vilja að Ísalp losi sig úr þessum skálarekstri.Mér kæmi reyndar verulega á óvart ef það væru ekki fleiri ferðafélög en FÍ sem hefðu áhuga á að eignast Tindfjallaskálann.
Mín tillaga er að Ísalp eigi skálann áfram, jú það þarf að gera skurk í því að gera hann nothæfan, eða jafnvel byggja nýjan. Hefur virkilega verið reynt á það hversu tilbúnir Ísalparar eru að taka þátt í því verkefni? Eða byggist umræðan á því sem menn halda um sjálfboðaliðavinnu í dag? Það hefur lengi verið sagt að það sé erfitt að fá sjálfboðaliða til starfa, en hefur hjálparsveitastarf lagst á hliðina? Mér vitanlega gengur það mjög vel víða….
Ef við ákveðum að fela öðrum að eiga og reka skálann er rétt að fara í nokkurs konar fegurðarsamkeppni um hvernig uppbyggingu og rekstri hans skuli háttað. Slíku er lítið mál að þinglýsa.
Nú er ég væntanlega búinn að gera nógu marga fúla og enginn nennir að lesa meira…..en mín skoðun er komin fram.
GoliMeðlimurTalandi um hættulegasta hluta starfsins, þá er ótrúlegt að sjá viðvarandi hjálmleysi á vélsleðum á skíðasvæðum, reyndar um allan heim. Og þeir sem myndu segjast vera með hjálma eru flestir með kjálkalaus pottlok sem verja andlit og kjálka nákvæmlega ekki neitt. Skamm skamm.
Annars var svolítið skondið að sjá formann Ísalp renna sér á einskíðung í Bláfjöllum. Á sama tíma sást til stjórnarmanns í Brettafélaginu á þelamerkurbúnaði….
GoliMeðlimurÞetta hljómar nú eins og Rúnar Óli hafi farið með gaurinn um fjöllin ofan Ísafjarðar, ekki komist daginn eftir og sent gaurinn einan í fjallið í miðri viku og endað með því að fljúga með hann suður og detta í það í borg óttans. Kannski minnst á það rallhálfur og í hálfkæringi að það væri jú skíðasvæði í nágrenni Reykjavíkur sem héti Bláfjöll…..
Já þetta hlýtur bara að vera….
GoliMeðlimurBendi á viðtal við Magnús Hallgrímsson á Rás 1 fyrr í dag:
GoliMeðlimurÁrni það þarf víst þetta hvíta stuff til þess, æi hvað heitir það aftur….
GoliMeðlimurEru virkilega til 77 telemarkskíði á Íslandi? Þetta verður ógleymanlegt!!!
Kveðja úr æfingabúðunum í Kröflu…
GoliMeðlimurTeam Garðabær gekk í málið á leið í æfingabúðir fyrir Telemarkfestivalið. Renndum okkur í Kröflunni, aðstæðurnar voru í fínasta lagi og magnað að komast á skíði í miðjum október.
GoliMeðlimurStefni í Kröfluna næstu helgi !
GoliMeðlimurTeam Garðabær / McDonalds mætir í fantaformi !
GoliMeðlimurHeyrðu Sissi minn, þetta ber nú svolítin keim af því að þú sért í feitri afneitun svona kominn á fertugsaldurinn, við vitum allir að þú ert löngu farinn að lepja graut og lýsi með….
GoliMeðlimurTeam Garðabær þakkar fyrir sig og minnir á mikilvægi snyrtimennsku í fjallinu! Þetta var snilldin ein hjá ykkur og maður er strax byrjaður að hlakka til næsta árs…. og þá verða titlarnir okkar…. eða eitthvað…. kannski….
GoliMeðlimurHvar getur maður nálgast þetta lag, Zwanzig Centimeter, með betri lögum sem heyrst hafa í langa tíð…?
GoliMeðlimurMig rámar í að einu sinni hafi svigkeppni verið á dagskrá (þar sem sumir ónefndir voru sakaðir um að taka ónóga dýfu….)
Er svigið alveg dottið út? Bara samhliðasvig?
GoliMeðlimurEr það rétt sem fuglarnir hvísla að festivalið verði haldið í nágrenni Dalvíkur…?
GoliMeðlimurEhmm, eeee…., ok!
GoliMeðlimurÍ Kleinwalsertal (Allgäu) í Þýskalandi er núna í dag að hefjast mikið telemarkfestival þar sem mæta um 300 iðkendur frá amk 8 löndum. Þeir sem kunna þýsku geta tékkað á http://www.telemark2004.de/ sem þrátt fyrir nafnið fjallar um telemarkhátíðina í ár (ekki 2004). Er spurning um að litla Ísland eigi þarna fulltrúa að ári….?
GoliMeðlimurÉg á fjallaskíði án bindinga – ónotuð, ef það hjálpar.
GoliMeðlimurGóð hugmynd Bassi að þið heimsækjið okkur sunnarana…
Síðasta helgin í janúar?GoliMeðlimurIss þetta er allt hommalegt. Mónóskíði er eina alvöru matsjó græjan!
GoliMeðlimurTakk fyrir okkur, þetta var miklu meira en frábært !!!
GoliMeðlimurRólegur félagi ….. veistu hvaða dagur er í dag ?
Gott grín Helgi !
-
HöfundurSvör