Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
Bjartur TýrKeymaster
Geggjað. Vel gert! Til hamingju með þetta
Bjartur TýrKeymasterVið Óli fórum í bjartsýnis-bíltúr upp í Bröttubrekku að leita af ís eftir alla hlákuna. Ætluðum í Single Malt en það hefði þurft kút og kork þar á bæ.
Röltum inn í Austurárdal og klifruðum Kidda sem var í blautum en annars fínum aðstæðum. Við unglingarnir hefðum líklega sett nær WI5 en WI4+ en leiðin annars frábær, fimm stjörnur. Það hefði einnig verið hægt að klifra Túristaleiðina en annað var ekki í aðstæðum.Bjartur TýrKeymasterVið Bergur fórum í Glymsgil í dag og klifruðum Keldu. Það var annað teymi í Krók. Aðstæður ljómandi fínar, mjúkur ís. Áin var ekki nógu frosin til að ganga innar inn gilið. Múlafjall er eins og áður fullt af ís, við sáum hóp fyrir ofan Íste væri gaman heyra hverjir það voru!
Rúntuðum síðan inn í Brynjudal og þar leit Óríon út fyrir að vera inni og einnig Ýringur.Bjartur TýrKeymasterFór með Jóni Heiðari í Múlafjall í dag. Þrír bílar á bílastæði. Fórum vinstra afbrigðið af Rísanda og klifruðum svo Famous Grouse. Stökkur ís og svoldið um regnhlífar en mikið fjör. Setti myndir inn á Ísalp meðlimir
Bjartur TýrKeymasterÞað er líka farinn að myndast ís á Ísafirði. Við Bjöggi skelltum í gil sem liggur upp á Gleiðarhjalla fyrir ofan Ísafjarðabæ. Margklifrað af localnum en ekki skráð. WI4 í þeim aðstæðum sem voru í dag.
Bjartur TýrKeymasterFór með Matteo í Múlafjall í gær. Aðstæður enn með mjög góðu móti, svoldið af snjó sem hefur safnast efst í leiðunum sem gerir top-outið smá brösugt. Klifruðum fjórar línur milli leiða í Kötlugróf.
Bjartur TýrKeymasterFór í gær bíltúr inn í Hvalfjörð. Eilífsdalur virðist vera í fínum málum. Leiðirnar sem snúa suður í Brynjudal þurfa líklega aðeins meiri tíma en það var slatti af ís í Flugugili og Ýringi. Í Múlafjalli var allt í blóma. Klifruðum Rísanda sem var ljómandi skemmtilegur. Testofan var kjaftfull af ís og meira að segja Íste náði næstum alla leið niður.
Fór síðan í Búahamra í dag og þar er einnig nóg af ís. Klifruðum 55 gráður og gengum svo niður Tvíburagil þar sem báðir Tvíburafossar náðu alla leið niður í jörð.
Príma aðstæður þessa dagana, allir út að klifra!
Bjartur TýrKeymasterFór á föstudaginn með Gumma inn í Brynjudal. Höfðum hugsað okkur að klifra í kringum Skóræktina en okkur fannst leiðirar þar þurfa aðeins meiri tíma. Fórum þess í stað í leiðirnar ‘Sunnan til í dalnum’ sem virkuðu feitari. Klifruðum Óla og Stubb en Pétur náði ekki alla leið niður. Ljómandi fínar leiðir á fáförnu svæði. Er búinn að uppfæra upplýsingarnar um leiðirnar hér á síðunni svo vonandi fá þær fleiri heimsóknir í vetur.
Bjartur TýrKeymasterVið þetta má bæta að á föstudaginn keyrði ég sunnanverða Vestfirðina til Reykjavíkur og þar var slatti af ís farinn að myndast. Meira að segja Dynandi var frosinn að stórum hluta.
Hafði líka augun opin í Bröttubrekku og þar virstust Single Malt leiðirnar vera að detta inn.
Bjartur TýrKeymasterFór með Matteo í Ýring í Brynjudal í dag. Fínar aðstæður þar. Neðstu höftin voru örlítið blaut og brattasta haftið var nokkuð kertað.
Sáum líka slatta af ís inn í Eilífsdal og Hrútadal.
Attachments:
Bjartur TýrKeymasterFór með Jóni Gauta í Skarðsheiðina í dag. Flottar aðstæður þar núna. Glerhart færi og tilturlega auðvelt að keyra inn undir Skarðshorn. Fórum Skessuþrep sem var í skemmtilegum aðstæðum. Dálítið þunnt í seinustu höftin þó. Læt fylgja myndir af Skessuhorni og Skarðshorni.
Attachments:
Bjartur TýrKeymasterBjartur Týr Ólafsson. Gisting fimmtudag til sunnudags. Kvöldmatur föstudag og laugardag.
Bjartur TýrKeymasterFór í Múlafjall í dag með Matteo og Jóni Gauta. Príma aðstæður þar. Fórum í Hlaðhamra og klifruðum þrjár línur sem ekki finnast neinar upplýsingar um. Gáfum þeim nöfnin Lundi WI4+, Músarindill WI4 og Fálki WI3+. Ísinn frekar stökkur en feiki nóg af honum til að koma fyrir skrúfum.
Bjartur TýrKeymasterÉg mæti í helgarpakkann
Bjartur TýrKeymasterFór með Matteo í dag í Múlafjall og þar var komið nokkuð magn af ís. Komum ekki fyrir neinum skrúfum en ísinn var farinn að fela einhverja bolta. Klifruðum Fimm í fötu og Helga. Myndin er af Íste
- This reply was modified 8 years síðan by Bjartur Týr.
Bjartur TýrKeymasterMæti. Tek svefnpokapláss og allan mat.
Bjartur TýrKeymasterÞað var ekki fært inn eftir línuveginum fyrir Land Roverinn sem við vorum á. Stoppuðum strax við hlið á afleggjaranum og gengum þaðan. Gangan var rúmir tveir tímar í frekar leiðinlegu færi, hörðum snjó sem brotnaði í sífellu undan okkur. Hef satt að segja ekki nægilegt vit á fjallaskíðum til að geta mælt með því eða á móti því að fara þetta á skíðum.
Bjartur TýrKeymasterFór á Skessuhornið á fimmtudaginn. Lítill sem enginn ís í norðurveggnum. Fórum línu vinstra meginn á myndinni hér að neðan sem liggur upp á miðjan hrygginn (Líklega var þetta leiðin Skesskorn). Áttum í erfiðleikum með að finna tryggingar svo við enduðum á því að hliðra út á hrygginn í seinasta haftinu. Snjórinn í hryggnum var harður og mjög auðveldur til klifurs en illtryggjanlegur.
- This reply was modified 8 years, 10 months síðan by Bjartur Týr.
Attachments:
-
HöfundurSvör