Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
atlilydsMeðlimur
Sæll!
Lét gera þetta við skó sem ég hafði tekið miklu ástfóstri við fyrir uþb ári síðan. Þráinn skóari gerði þetta fyrir mig, gerði það nokkuð vel og tók 12.000 kr fyrir sóla og vinnu.
Hinsvegar þá dóu skórnir nokkru síðar, saumar fóru að gefa sig og leðrið að brotna þannig að sennilega helst þetta nú nokkuð í hendur, ending á skóm og sóla. Ég amk sá eftir að hafa ekki bara keypt mér nýja skó strax eins og ég hef gert hingað til.Það er svona þegar maður reynir að spara í kreppunni:-(
atlilydsMeðlimurMæli með Ellis, fór þangað í feita verslunarferð fyrir 2 árum.
mbk, Atli
atlilydsMeðlimurHnitastrikað kort var einmitt málið, takk fyrir að reyna.
mbk, Atli
atlilydsMeðlimurÉg hef notað Mapsource með ágætum árangri, amk gengur nokkuð vel að ná út tölfræði, vista og plana leiðir. Það er eitt sem truflar mig mikið, ég hef ekki fundið aðferð við að setja hnit inn á kortin þannig að hægt sé að prenta þau út og nota með áttavita með góðu móti ef GPSinn klikkar. Ef einhver kann ráð til að bjarga því við þá væri það vel þegið.
mbk, Atli
atlilydsMeðlimurÞað kannski fer að borga sig að fara þarna með málmleitartæki:-)
atlilydsMeðlimurKíkti við í turninum í gær og þar var ekki svo mikið sem grýlukerti, vitið þið hver heldur um kranann?
mbk, Atli
atlilydsMeðlimurVar að kaupa mér einn svona í fyrradag og gerði óformlega verðkönnun. Pokarnir kostuðu frá 8 til 15 þús og þó ótrúlegt sé var sá ódýrasti í Útilífi. Það er erfitt að bera saman gæði en þetta var amk allt 100% silki.
mbk, Atli
-
HöfundurSvör