Sissi

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 426 til 450 (af 660)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Hver er maðurinn ? #52729
    Sissi
    Moderator

    Ekki þessa helgi, en nokkrum viku seinna ásamt Pétri og Tryggva litla, þegar þið fóruð Trommarann, Robbi sprangaði um í kabboja-heilgalla-nærfötum með skítalúgu, Litli dreifði bakpokanum sínum um allt Skálagil og stærstu búrgerar á norðurhjara voru eldaðir. Good times…

    Siz

    in reply to: Hver er maðurinn ? #52727
    Sissi
    Moderator

    Ég er nokkuð viss um að leiðin er „Ónefnd leið af gráðu 4-5, vinstra megin við Skrúfjárnið“ í leiðarvísinum ef ég man rétt, og er í sama gili og Trommarinn í Haukadal, heitir það ekki Skálagil?

    Ætla að skjóta á Ingó í janúar 2005. Og að Gummi Tómasar sé að tryggja.

    Hvað er í verðlaun?

    Siz

    in reply to: Brennivín #52720
    Sissi
    Moderator

    Freon er að misskilja eitthvað. Það er lífið sjálft að plampa í róbot mód á hnjúkinn og fá naglakul í klettaklifri. Þá veistu að þú ert vakandi!

    Siz, sem býr bara á Íslandi

    in reply to: BANFFFF #52674
    Sissi
    Moderator

    Jæja, hvað fannst mönnum skemmtilegast?

    Fílaði gaddinn, djöfull er hann hress. Je booojjjjjj.

    Kajakar ágætir, hjólagaurinn sæmilegur og fékk í magann að horfa á stóned sólóklifur.

    Telemark powder áttur með knúsi og sleik í endann var skrýtin og samhengislaus. Teiknimyndin með krákunum, var einhver fjallatenging í henni?

    En alltaf mega gaman, ég held að þó að það væri sýnd 27 dresses þætti manni samt gaman að fara í bíó með fullt af skemmtilegu fólki.

    Eru einhverjir svona hellar hérna á klakanum, kannski hægt að lengja sísonið eitthvað?

    Siz

    in reply to: Ævintýradagur í Skarðsheiði #52665
    Sissi
    Moderator

    Andri mig minnir nú að lýsingarnar ykkar Steppo á skemmtiferðinni með eldiviðaröxina í Rifið hafi ekki gefið til kynna að þar hafi leynst sérstaklega mikið af bomber graníti ;)

    Siz

    in reply to: Ævintýradagur í Skarðsheiði #52654
    Sissi
    Moderator

    Var svona aðeins að fylgjast með ykkur í gegnum annan og þriðja mann. Magnað stöff, algjörlega magnað.

    Var einmitt að spá í því á föstudaginn hvenær einhver myndi gera sniðugt linkup, það virðist vera það heitasta í útlandinu í augnablikinu.

    Congrats,
    Siz

    in reply to: Ferðin á Eyjafjallajökul #52641
    Sissi
    Moderator

    Mega mega gott á Móskarðshnjúkum í kvöld!

    Fór með saumó köppunum Bödda og Óla Júl ásamt Steppo…

    Siz

    in reply to: Fjallakíðabúnaður óskast #52637
    Sissi
    Moderator

    Þarftu skíði með þessar trúðalappir ;)

    in reply to: tips skinna? #52629
    Sissi
    Moderator

    Væntanlega sama gilið og Steppo og Helgi skíðuðu á föstudaginn langa er við fengum okkur labbitúr.

    Djöfull voru myndirnar frá ykkur að lúkka, vona bara að leðrið hafi ekki rispast… ;)

    Leit út fyrir að vera aðeins rennilegri en Mi-8.

    Siz

    in reply to: Klifur dagsins #52614
    Sissi
    Moderator

    Jibba, þetta var snilldardagur. Endalaust af stöffi þarna austan megin sem maður hefur ekkert verið að horfa á.

    Ekki skemmdi mega gott veður og góður félagsskapur fyrir. Dóri og Jón hressir. Mjöööög góður dagur á fjöllum.

    Væri líka gaman að fá skýrslu frá herdeildinni sem var þarna á páskalaugardaginn.

    Siz

    in reply to: Rosaleg ny mix leid a Ben Nevis (Skotland) #52599
    Sissi
    Moderator

    Ég tek fram að dauðaspaðinn hefur enn ekki séð uppferð í vetraraðstæðum. Þá held ég að málið væri að bíða eftir þíðu í einn dag og síðan vægu frosti þann næsta.

    Einnig reyndist okkur vel að undirbúa klifrið með miklu magni af einmöltung. Ekki skemmdi heldur fyrir að fá sér malt, vatn og ger ásamt dass af humlum í undirbúningsfasanum, svona til að peak-a á réttum degi.

    Siz

    in reply to: Hvað er að gerast ? #52606
    Sissi
    Moderator

    Fór með Steppo og Helga á Hátind föstudaginn langa. Planið var að renna sér eitthvað ótrúlegt.

    Í síðustu viku rigndi nokkuð hátt og var því allt alveg grjóthart þarna, hliðarrennslismanninum í hópnum til mikillar armæðu. Hvorki virkuðu græjur hans mjög vel upp (reynið að klifra ískrandi harðfenni á tunglskóm (e. moonboots – eða sk. brettaskór)) og skíða slíkt á einum kanti.

    Það varð úr að undirritaður renndi sér niður fremstu línuna, frá klettabeltinu, og beilaði á toppnum. Hrundi væri kannski réttari lýsing og var mjög feginn þegar hann stoppaði á einhverju barði nokkur hundruð metrum neðar.

    Steppo og Helgi skíðuðu hinsvegar gríðarlega fallega línu þarna inni í hvilftinni, þá mest áberandi þarna í fjallinu, með besta mögulega stíl. Sú hefur líklega verið lítið farin síðustu árin.

    Það er ca. hægt að sjá þetta hérna á myndinni hans AB: https://www.isalp.is/gallery.php?id=3670_348_1 (ég lengst til hægri, þeir lengst til vinstri, AB hallar í ranga átt – þetta er brattara ;)

    Ég bölvaði því mikið að vera ekki skíðamaður þennan dag, jafn mikið og ég gladdist yfir því á Heklunni nokkrum dögum áður þegar skíðamennirnir voru í vandræðum. En sagði strákunum jafnframt að það myndi ég aldrei viðurkenna að hafa sagt. Ekki frekar en núna.

    Góðar stundir.

    Siz

    in reply to: eyjó eða hekla á morgun,laugardag? #52588
    Sissi
    Moderator

    Djöfull er þetta góð brekka! Græðgin náði tökum á okkur og við renndum okkur nokkuð beint niður af toppnum, smá mix í bílinn en þess virði.

    Vek athygli á því að þó að menn vilji skinna upp á svona hóla hafa tækninýjungar gert það að verkum að þeir geta rennt sér eins og menn niður – með fæturna fasta saman og á hlið.

    Hils,
    Sissi

    in reply to: hot stuff frá telemarkfestivali #52584
    Sissi
    Moderator

    Mér ber víst skylda til að commenta á allt sem tengist telemark, enda leiðandi afl í umræðum um slík mál hér á vefnum.

    Stefnan er sett á að þroskast. Eftir 35 ár stefni ég að því að læra golf, að spila vist og telemark. Ég mun einnig neyta matarkexx í miklu magni.

    Gaman að sjá að Siggi er alltaf að prjóna, hann fer svo hratt. En hvernig er með svörtu vindskeiðarnar á keppnisbílunum frá nashyrningunum, var formúlusambandið búið að samþykkja þetta? Mjög „eró“ eins og verkfræðingarnir segja. (Takið eftir tvíræðninni).

    Líka glæsilegt feisplant þarna á 2 stöðum. Ef maður dettur ekki er maður ekki að reyna. Þetta fólk vinnur!

    En lokaspurningin: af hverju fór keppnin fram í barnabrekkunni?

    Kveðja,
    Sissi (kann bara á eitt skíði í einu)

    in reply to: Lagning brautar í samhliðasviginu #52544
    Sissi
    Moderator

    Ja það styttist í það. Mér er farið að ganga prýðilega að labba á þessu, án þess að detta mikið á hausinn. Og jafnvel að svolgra í mig vinstribeygjuolíu.

    Rústa ykkur eftir nokkur ár.

    in reply to: Lagning brautar í samhliðasviginu #52542
    Sissi
    Moderator

    Það er náttúrulega einstakt tækifæri til að líða eins og Jóa vini Símonar: „he believes he’s back in a parking lot in England, cock-eyed under the influence of alcohol and/or another pub crawler’s fist.“

    in reply to: Lagning brautar í samhliðasviginu #52540
    Sissi
    Moderator

    Ein létt spurning: Er jákvæð fylgni milli hlutfalls verkfræðinga í svona liði og hlutfalls tuðs?

    Annars hitti ég Steppo fjallaskíðamann og Sigga Kítti úr Vesturbænum í gær. Steppo sagði að hann ætlaði að dusta rykið af telemarkinu fyrir þetta mót og rústa öllum, þetta væri nefnilega svo létt.

    Sel það ekki dýrar en ég keypti…

    En ég held að það gæti verið áhugavert að stofna til keppni í kráarslagsmálum á laugardagskveldinu, „Pöbba-pönsið“ eða bara „Fight Club“.

    Efast ekki um að Nashyrningurinn myndi taka það.

    Siz

    in reply to: Myndir: Dry-tool í Klifurhúsinu #52515
    Sissi
    Moderator

    Eða þurrtólun – það er tvírætt og skemmtilegt.

    S

    in reply to: TELEMARKFESTIVAL – Helgina 7.-9. mars #52511
    Sissi
    Moderator

    Ég legg til að Siggi Skarp verði dæmdur úr leik þar sem hann er ekki úr Árbænum og Steppo því hann er ekki Telemarkari.

    Heyrst hefur líka að TAT hafi strax hafið skemmdarverk á búnaði annarra keppenda í síðustu viku.

    Nashyrningurinn er mun betur að sigrinum kominn!

    Sissi – ekki úr gettóinu frekar en Siggi

    in reply to: Þriðjudagur í Múlafjalli #52438
    Sissi
    Moderator

    Bláfjöllin voru fín í gær, meiri snjór en maður hefur séð í svolítinn tíma sumstaðar, en líklega frekar þunnt á víða þar sem blæs.

    Nokkuð vel coverað, væri mega að fá púður núna ofan á allt þetta malbik.

    Okkar maður á svæðinu telur að þetta gæti lifað hlákuna sæmilega af.

    Siz

    in reply to: Út að leika #52341
    Sissi
    Moderator

    hehehe – ég fór alveg grenjandi í vinnuna í góða veðrinu, hélt að þú værir bara að pína mig ;)

    Siz

    in reply to: Úreltur búnaður #52328
    Sissi
    Moderator

    Var hann ekki 10 ára fyrir svona 4 árum?

    Ertu enn með beltið sem leit út eins og hvítt öryggisbelti úr volvo ’75 sem var svona vafið utan um þig?

    Djóóók ;)

    Annars er þetta góður punktur, minn hjálmur er örugglega orðinn svona 8 ára og annað beltið svipað, en það eru bara svo flottir límmiðar á honum að ég tími ekki að skipta.

    Siz

    in reply to: Ski patrol óskast í Bláfjöll #52251
    Sissi
    Moderator

    Síðan eru TAT liðar óðum að hætta á telemark og færa sig nær æskilegu rennsli – sagan segir að þeir séu farnir að litast um eftir einhverju aðeins meira challenge – hliðarrennslistóli þá helst.

    Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama… og allt það.

    Siz

    in reply to: Helgin! #52192
    Sissi
    Moderator

    Fór með TAT drengjunum Steppo og Sigga Kítti aka Fjallaskarpi norður fyrir heiðar að safna smá lærabruna. Þokkalegt færi, hratt og hart, en lítill snjór. Offpiste sæmilegt ef maður er sáttur við að eyðileggja dótið.

    Þarna var hellingur af fólki, slatti af Garðbæingum, Bassi og Böbbi, crew Mjásstaðir, Ásdís undanfari og Arctic rafting fólk, meðlimir úr Team Saumó, gamlar snjóbrettakempur á borð við Bill og fleiri og fleiri. Sem sagt mjög góðmennt í fjallinu.

    Þetta er nokkuð efnilegt, en þarf að bæta aðeins í svo maður leggi í Ypsilonið og hrygginn frá toppnum. Snjóbyssurnar á fullu og nú þarf bara að plata Hálfdán í að redda meirir snjó.

    Siz

    in reply to: Mynd eftir sögu Krakauer (ekki þeirri frægustu þó) #52172
    Sissi
    Moderator

    Og fyrst maður er að pósta linkum, nú styttist í að maður verði tekinn fastur…

    http://thegoat.backcountry.com/blog/2008/01/07/switzerland-gets-speed-guns-on-the-slopes-to-catch-reckless-skiers/

25 umræða - 426 til 450 (af 660)