Gummi St

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 151 til 175 (af 252)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Klifrað á Kjálkanum #53512
    Gummi St
    Participant

    Ég keyrði Barðaströnd fyrir nokkru og var að hugsa um klifurleiðir, fann þó ekkert afgerandi en mig langar að prufa að koma á Patró í frosti þar sem ég kom auga á nokkrar hugsanlegar WI4 leiðir við Kleifaheiðina.

    Var líka á austfjörðum í vikunni og sá nokkrar djúsí alpalínur gegnum þokubakkanna á Reyðarfirði, bæði innst í Reyðarfirði og eins f. ofan Eskifjörð á leið í Oddskarð.

    kv. Gummi St.

    in reply to: Tröllaskagaklifur #53495
    Gummi St
    Participant

    flott hjá ykkur !

    líst vel á þessar D-gráður :)

    kv. Gummi St.

    in reply to: Aðstæður: Ís og snjór #53483
    Gummi St
    Participant

    jæja, ég lofaði að sýna ykkur hvernig þetta leit út og skellti ég smá myndaseríu inná http://www.climbing.is

    snjórinn þarna er ansi takmarkaður, smá púður yfir ísilögðum giljunum á stöku stað, en annars er grasið og steinarnir langt uppúr öllu þarna enn.

    kv. Gummi St.

    in reply to: Aðstæður: Ís og snjór #53482
    Gummi St
    Participant

    Ég fór með Adda og Pabba upp na-hrygg Skessuhornsins í dag í refsingarskyni fyrir jólaátið!
    það er alveg einhver ís þarna á svæðinu ennþá, en hann var ekki góður neðst, en alveg 100% þegar maður var kominn ofarlega. Tók myndir af N-veggnum á leiðinni niður, pósta þeim vonandi í kvöld… sýndist vera alveg hægt að gera eitthvað þar.

    kv. Gummi St.

    in reply to: Önnur mixleið í Tvíburagili – Ólympíska félagið. #53468
    Gummi St
    Participant

    Líst vel á að bolta þetta, væri alveg til í að koma í einn dag í svoleiðis mission, get ath. hvort ég gæti fengið svona vél lánaða ef einhver kemur með augu.

    kv. Gummi St.

    in reply to: Önnur mixleið í Tvíburagili – Ólympíska félagið. #53460
    Gummi St
    Participant

    Snilld, sá ykkur þarna fyrir neðan í morgun, en við Addi skruppum svo í Grafarfoss í mestu snjóaðstæðum sem ég hef lent í. (vorum 1,5 tíma uppað fossi vegna snjóþunga).

    Bíð spenntur eftir myndum og videoi frá ykkur.

    GF

    in reply to: Nýtt í Búhömrum #53433
    Gummi St
    Participant

    very næz !

    in reply to: Preppkvöld Utanbrautarbandalagsins #53218
    Gummi St
    Participant

    Hvernig var svo ??

    frekar svekktur að missa af þessu, en ég er nú bara staddur á Melrakkasléttu þannig að ég komst ekki.. :(

    in reply to: Af Múlafjalli #53187
    Gummi St
    Participant

    snilld! takk fyrir að setja þetta inn ! djöfull er glatað að vera veikur núna…

    in reply to: Ljósmynd frá Veiðivötnum #53168
    Gummi St
    Participant

    Vá, takk fyrir þessi orð.
    Þetta var tekið 30. sept þegar fyrst fór að snjóa þarna og veðrið og skýjafarið var ótrúlega flott.

    kv. Gummi St.

    in reply to: Utanbrautarbandalag Ísalp #53143
    Gummi St
    Participant

    líst vel á þetta

    fékk mér fjallaskíði í vor og er að byrja í þessu.

    kv. Gummi St.

    in reply to: Silvretta bindingar #53117
    Gummi St
    Participant

    Sæll,

    Ég hef verið að nota klifurskóna á fritschi bindingarnar frá diamir.

    Fór í vor á þeim á Arnarfell í Hofsjökli og svo Kálfafellsdalur-Breiðamerkurjökul.

    á Arnarfelli var ég í Ice evo og á Vatnajökli var ég í Nepal extreme, Ice evo kom betur út útaf hæl-festingunni, en það gæti svosem verið stillingaratriði. Ég kom þessu t.d. ekki á scarpa vega skóna ef ég man rétt.

    kveðja
    Gummi St.

    Gummi St
    Participant

    hvernig geta vitleysingar eins og ég sem datt í huga að vera að vinna frameftir þennan dag nálgast ársritið ?

    in reply to: Mix-Boltasjóður #53074
    Gummi St
    Participant

    flott mál,

    ég er búinn að stimpla mig inn og vona að það verði bara bæði plönin Siz…

    kv. Gummi St.

    in reply to: Hraundrangi? #53046
    Gummi St
    Participant

    Sæll félagi!

    Ég fór þangað í sumar og tók töluverðan tíma, allavega 6 tíma ef ég man rétt ef ekki meira hreinlega, var líka að mynda á fullu.

    Ég notaði 2x60m línur, það er rétt undir 30m á milli akkera þarna minnir mig og ég notaði 2 eða 3 vini milli fleyga á ákveðnum stöðum. Notaði ekkert fleyganna/hneturnar sem ég tók með. svo auðvitað bara sigtól til að tryggja og fara niður..

    Það er farið upp austan megin.

    þetta er ekki tæknilega erfitt, en þetta er djöfull hátt þegar þú lítur niður :)

    man þó eftir því að akker-slingin voru í misjöfnu ástandi… vertu með nokkur slík

    kv. Gummi St.

    in reply to: Mix-boltasjóður #53035
    Gummi St
    Participant

    Þetta er snilld, meira en til í að vera með í þessu, hef verið mjög spenntur fyrir svona klifri og einmitt strandað svoldið á þessum öryggisþætti, því maður er dáldið eins og belja á svelli við að koma inn mixtryggingum og toprope er bara ekki eins kúl :)

    Spurning um að skella sér t.d. í múlann í vetur og bolta í kringum Íssól og Pabbaleiðina, langaði að gera það síðasta vetur en var bara töluvert meira í fjallgöngum þá.

    hvað kosta svona boltaskrattar? Svo þarf bara að eiga t.d. 18v DeWalt höggborvél…

    in reply to: Þetta skyldi þó aldrei vera ísalpari? #53034
    Gummi St
    Participant

    hehe… ég rakst einmitt á þetta um daginn og hugsaði það sama

    in reply to: 8 farast í snjóflóði á Mont Blanc #53027
    Gummi St
    Participant

    já, þetta er hrikalegt.. sá þetta alltíeinu á mbl.is

    in reply to: 10 Tindar #53007
    Gummi St
    Participant

    Gætir sett „Tindfjöll – Ýmir og Ýma“ ?

    in reply to: 10 Tindar #52998
    Gummi St
    Participant

    Flott hugmynd,

    ég hef aðeins verið að þvælast undanfarið og þeir eftirminnilegustu sem þú taldir ekki upp af minni hálfu væru

    Lambatindur á ströndum
    Dyrfjöll Borgarf. eystri
    Birnudalstindur suðursveit
    Skessuhorn Borgarf vestari
    Eyjafjallajökull suðurland
    Tindfjöll suðurland
    Kirkjufell snæfellsnesi
    Hlöðufell línuvegi
    Loðmundur Kerlingarfjöllum
    Stöng Berufirði
    Snæfell Fljótsdalshérað
    Arnarfell, Hofsjökli

    svo það sem mér dettur í hug en vegna leti á ég eftir að fara á

    Kverkfjöll, báðu megin
    Hnapparnir
    Tröllakirkja
    Hamarinn vatnajökli
    Þorvaldstindur
    Hásteinar Hofsjökli
    Eiríksjökull
    Hrútfell
    Grendill Goðahnjúkum
    Tungnafellsjökull

    jæja… ég fæ samviskubit um hvað ég á mikið eftir ef ég tel meira upp…

    en það er nú samt gott að þú hugsar eitthvað af viti þegar þú getur ekki sofið.. hehe

    in reply to: Þverártindsegg #52861
    Gummi St
    Participant

    Snilld, koma svo ekki skemmtilegar myndir úr þessu til að svekkja okkur aumingjana sem heima sátu ?

    in reply to: Vantar klifurfélaga í Munkaþverá #52858
    Gummi St
    Participant

    Ég var að skoða þetta svæði um daginn og lítur vel út. Mjög mikið var í ánni reyndar. En þessa helgina er ég fastur í bænum því miður.

    in reply to: Ama Dablam – kvikmyndin #52796
    Gummi St
    Participant

    Þetta var náttúrulega bara snilld, ég skemmti mér mun betur á þessari mynd en á banff

    Vil óska Ingvari til hamingju með frábæra fjallamynd, þetta er alveg eðal efni, manni leiðist aldrei og stutt í húmorinn.

    Takk kærlega fyrir mig !

    þá eru bara 197 eftir..

    in reply to: Þverártindsegg #52780
    Gummi St
    Participant

    Myndina tók ég 18. apríl… Daginn fyrir Birnudalstind.

    in reply to: Myndir #52767
    Gummi St
    Participant

    þarna kom það.. loksins !
    Þrusuflott landslagið þarna, og hægt er að keyra inn Heinabergsdalinn um slóða (hægra megin við Geitakinn).

25 umræða - 151 til 175 (af 252)