Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
2109803509Meðlimur
15. febrúar 2013. Garðshvilft – Dýrafirði.
A.
Nafn: Bleikt og blátt. WI5. 55m+
FF: Berglind Aðalsteinsdóttir, Rúnar Óli Karlsson, Sigurður Tómas Þórisson.
Nánar: Vinstri línan sem merkt á myndina að neðan. Enduðum einhvers staðar í miðju ísflæminu þar sem ísinn var farinn að verða hvítur og morkinn en þá var farið að draga úr brattanum. Hægt að klifra lengra ef betri ís.B.
Nafn: Vindlar Faraós. WI5. 60m+
FF: Sigurður Tómas Þórisson, Berglind Aðalsteinsdóttir, Rúnar Óli Karlsson.
Nánar: Hægri línan sem merkt á myndina að neðan. Það var nánast hægt að faðma neðra kertið (vindilinn), ekki var það feitt þennan dag.[attachment=533]IMG_2222.merknet.jpg[/attachment]
16. febrúar 2013. Eyrardalur – Dýrafirði.
A.
Nafn: Bleiki pardusinn. WI5. 30m
FF: Arnar Þór Emilsson, Sigurður Tómas Þórisson, Berglind Aðalsteinsdóttir.
Nánar: Tveir áberandi ísfossar fyrir u.þ.b. miðjum Eyrardal sem enda uppi í miðju klettabelti. Þetta er vinstri leiðin.B.
Nafn: Blái Lótusinn. WI5-. 50m
FF: Sigurður Tómas Þórisson, Berglind Aðalsteinsdóttir, Arnar Þór Emilsson.
Nánar: Tveir áberandi ísfossar fyrir u.þ.b. miðjum Eyrardal sem enda uppi í miðju klettabelti. Þetta er hægri leiðin.[attachment=534]IMG_2287.merknet.jpg[/attachment]
2109803509MeðlimurFrábært! Stefnir í góða stemningu á Ísafirði amk 15 manns búnir að skrá sig skv. https://www.isalp.is/component/eventlist/details/84-Ísfestival%202013.html
Veðurspáin er góð amk passlegt hitastig sýnist mér http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/vestfirdir/#teg=hiti
Ætlar fólk að fjölmenna á fimmtudag eða föstudag??! Ég stefni á fimmtudag og Arnar föstudag….
Sjáumst hress
2109803509MeðlimurJá rugl. Var nánast íslaust fyrir viku síðan!
2109803509Meðlimur2109803509MeðlimurVirkilega skemmtilegt klifur í Nóngili. Man ekki eftir að hafa klifrað regnhlífar í svona þæginlegum halla
Nokkrar myndir hér:
http://arnarogberglind.smugmug.com/2012/isklifur/26693846_Chpcqz#!i=2233470967&k=kSV8LpX(linkurinn virkjast ekki allur en nóngilsmyndir byrja no. 16)
2109803509MeðlimurStyttist í meira myrkur og kulda. Er ekki málið að skipuleggja vinnudaga/kvöld og koma turninum í lag fyrir veturinn ef ske kynni að yrði frostavetur.
kv. Berglind
2109803509MeðlimurEkki kaupa skíði undir 100m í mittið. Gott að hafa flot í flestum „færum“ nema harðfenni en þá fer maður hvort eð er frekar að gera e-ð annað. Því meira carve því betra að mínu mati. Get líka mælt með að hafa early rise og tapered tip.
Ekki kaupa allra léttustu og mýkstu skíðin þau víbra bara. Dynafit bindingar eru léttar og töff, flestir „gædar“ mæla með þeim. En þeir sem vilja ekkert vesen fá sér frekar fritschi eða marker. Og þeir sem eru alvöru töffarar fá sér telemark2109803509MeðlimurÉg ætla ekki að missa af þessu
Svo var ég búin að heyra orðróm um að Albert Leictfried yrði með myndasýningu á næstunni veit e-r nánar um það?kv. Berglind
2109803509MeðlimurMér þykir þú bjartsýnn. Nýjar turbo EXPRESS í fjallakofanum kosta 33.700kr (þeas 3 stk) með 10% ísalp afslætti.
2109803509Meðlimur2109803509MeðlimurTakk fyrir ábendingar. Kann núna að leita. Hins vegar virkar flýti-leitarstikan „leita“ efst til hægri á síðunni ekki.
kv. Berglind
2109803509MeðlimurHvernig finnur maður eldri umræður en þær sem birtast á forsíðunni? Ef ég klikka á „fleiri þræðir“ koma bara upp tveir nýjustu þræðirnir. Var t.d. að leita að umræðunni um gufunesturninn áðan en gat engan veginn fundið inni á síðunni. Kom ekki upp í leitinni heldur. Með því að googla „gufunesturninn“ fann ég þráðinn
kv. Berglind
2109803509MeðlimurÉg kíkti á turninn áðan. Sorglega lítið búið að massast upp frá því fyrir viku síðan þrátt fyrir nánast samfellt frost. Nánast ekkert að gerast í efri hlutanum, laus og ræfisleg grílukerti í hægri hlutanum, massaðasti ísinn lengst til vinstri út á steinvegginn þar sem úða gætir frá aðal rennslinu.
Þrátt fyrir mjög svo óvanalega langan frostakafla (allur des) er turninn ekki í topp aðstæðum.Vangaveltur:
Of mikið rennsli? Væri hægt að græja system með úða í staðinn fyrir sturtu?
Of heitt vatn eftir að hitavírinn settur í gang? Má slökkva á vírnum þegar frostið úti ekki meira en e-ar x gráður?
Er e-r áhugi hjá stjórn ísalp fyrir því að leggja vinnu og etv. pening í það að betur um bæta kerfið?
Eru menn með hugmyndir hvernig megi bæta kerfið? Vita menn hvernig svona turnar eru settir upp og virka erlendis (reyndar yfirleitt öðruvísi aðstæður með samfelldu hörku frosti allan veturinn).kv. Berglind
2109803509MeðlimurJón Smári Jónsson wrote:Ég mæti ef ég finn mér vængmann!Jólaklifrið hefur yfirleitt verið hugsað sem kjörinn vettvangur fyrir nýliða í sportinu til að láta sjá sig. Held að menn og konur geti verið ófeimin við að mæta „single“.
Tek undir með Skabba, væri sniðugt að ákveða staðsetningu fyrirfram.
Reyndi að kjósa en virkaði ekki.kv. Berglind
2109803509MeðlimurÞegar upp var komið var farið að draga verulega af öðrum félaganum.
svona til að undirstrika gremju okkar með að festa línuna dofnaði nú annað þeirra og varð að daufri týru.
Hvað hefðir þú gert?
Takk Skabbi fyrir að taka af skarið og deilda þessari reynslu ári síðar. Ekki síður mikilvægt að heyra af hrakförum heldur en afrekum til að læra af. Svona einfaldir hlutir eins og að vera með batterí í höfuðljósið geta skipt sköpum. Ef félagi minn hefði verið svona þrekaður hefði ég að öllum líkindum fylgt honum niður undir eins í stað þess að láta hann kólna niður í stansinum á meðan tveir klifra upp langa krefjandi spönn og koma sér niður aftur.
Hlakka til að heyra hvernig þið leystuð þetta.
2109803509MeðlimurGlæsilegt!!! Innilega til hamingju með árangurinn Valdi.
Afreksíþróttamaður hér á ferðbestu kveðjur,
Berglind, Arnar og Katla María2109803509MeðlimurGott mál að það sé ennþá verið að betur um bæta þessa síðu. Hvað er annars að frétta af skráningu leiða? Var það ekki ein helsta ástæða nýrrar heimasíðu á sínum tíma, þeas að bæta skráningu leiða?
2109803509MeðlimurVá!!! Ótrúlega flott myndskeið. Þvílík blíða og stemning Nú langar mann bara skreppa norður í miðnæturskíðun.
2109803509MeðlimurGlæsilegt. Ég hafði gaman af þessu bulli Hlakka til að sjá seinni hluta!
2109803509MeðlimurJá frekar dapurlegt ástand fyrir austan. Flottar stemningsmyndir. Takk fyrir að deila.
2109803509MeðlimurFrekar flott leið! Gott að einhverjir séu að gera góða hluti á milli haustlægða… Til hamingju með þetta drengir.
2109803509MeðlimurFrábært! Hlakka til að fylgjast með afrekum ykkar
kv. Berglind
2109803509MeðlimurHugmyndin var að leiðin fengi nafnið „stelpubál“
2109803509MeðlimurTaka 2 með mynd:
2109803509MeðlimurGóðar fréttir, líst betur á þessa tímasetningu!!
kv. Berglind
-
HöfundurSvör