Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
2003793739Meðlimur
Skoðaði þetta um daginn, maður þarf að drífa sig í að prófa.
Til hamingju með þetta Kalli og Óskar.
Kv
Halli2003793739MeðlimurHann hefur fullnægt þeim kröfum um 5.10 sportklifur og V3 boulder?
Kv
Halli2003793739MeðlimurHvernig gengur ritnefndinni með ársritið?
2003793739MeðlimurHrappur góður að drífa sig uppeftir annað en tölvuklifrararnir hérna á netinu.
Nú er komin pressa á að gera nýjar leiðir og fá nafnið sitt á spjöld sögunnar:)
Kv
Halli2003793739MeðlimurSjálfur hef ég ekki skoðað þennan klett og veit ekki hvað er búið að klifra þarna eða hverjir.
Maður þarf bara drífa sig uppeftir og chékka á þessu.Kv
Halli2003793739MeðlimurTalandi um önnur svæði í nágrenni Reykjavíkur.
Við Jón Haukur kíktum á fyrrum stórgrjótanámu í Hafnarfirði rétt hjá flugvelli módelflugvéla við Hamranes. Klettarnir eru frekar lágir, um 10 metrar á hæð og sléttir. Erfitt að tryggja með dóti og líklega stíft klifur. Þetta er ekkert eðal svæði en ef menn eru alveg ,,desperet“ þá væri vel hægt að setja upp nokkrar leiðri.
Kannski væri hægt að skipuleggja svæðið í kring með klifursvæði í huga og setja það inná aðalskipulag Hafnafjarðabæjar?Halli
2003793739MeðlimurHelgi þú hefðir bara átt að mæta á fundinn, þar tjáðu flestir sig um málið og það var rætt í botn. Ég sagði allavega mína skoðun.
Það er búið að ræða málið fram og til baka í mörg ár og sérstaklega af þeim klifrurum sem hafa boltað þær leiðir sem eru til í dag.
Ég ætla ekki að fara yfir rökin með og á móti því það er búið og er til á öðrum spjallþræði hérna á vefnum.
2003793739MeðlimurVorum í gær að setja saman massa flottar myndir.
Allir að mæta í Klifurhúsið í kvöld kl 20:00.
Kv
Halli2003793739MeðlimurRafn Emilsson skrifar
Ísalp kynnir fyrirlestur í ísalp ræðumaður verður Helgi Borg.
yfirskrift fyrirlesturs verður:
Fjallamenn og fagurfræðilegt mat á beitingu íslenskrar tungu. Er klámvæðingin farin að herja á tungu íslenskra fjallamanna?Helgi mun stikla á stóru um mikilvægi lagagerða um málfar fjallamanna og kynnir nýtt lagafrumvarp. Frumvarpið er þess efnis að erlendir fjallamenn sem til íslands koma og hyggjast frumfara íslenskt þverhnípi hvort sem gert er úr bergi eða freðnu vatni. Verði að sækja íslenskunámskeið námsflokkanna learn how to name a icelandic route in 10 days. Fjallamenn sem hinsvegar eru af íslensku bergi brotnir skulu sæta fjársektum komist upp um beitingu erlendra tungumála við nafngiftir á íslenskum leiðum.
Í seinni hluta verða svo rædd áhrif veraldarvefsins á tungu íslenskra fjallamanna og lögð áhersla á klámvæðinguna í þessu samhengi.Fjölmennum nú og lærum af nafnalöggunni.
Sjálfur legg ég til að menn hætti að skíra leiðir og láti nægja að nefna þær.
Takk fyrir takk
Rafn Emilsson2003793739MeðlimurÉg legg til að sem flestir fara bara og prófi nýju leiðirnar í Klifurhúsinu.
Fínar leiðir komnar upp eftir keppnina á sunnudaginn.
Takk fyrir frábært bouldermót.
Kv
Halli2003793739MeðlimurÉg var fyrir austan á Reyðarfirði milli jóla og nýárs og þar er alveg fullt af ís eins og alls staðar á landinu núna.
Beint á móti bænum í Kambfjalli er fullt af massa ísleiðum.
Maður velur sér íslínu nánast í svefnpokanum.
Fjöllin þarna í kring eru hraunstölluðum og há með bröttum giljum og djúpum skálum. Lítill sem enginn snjór er fyrir austan og nánast enginn snjóflóðahætta.Ef menn keyra á Ísafjörð af hverju þá ekki austur á firði?
Kv
Halli2003793739MeðlimurGarmin eTrex Legend Garmin Navigator
Handtæki sem hægt er að setja Íslandskort í.
E-trex Legend eru ódýrustu kortatækin og henta jafnvel fyrir byrjendur sem og lengra komna. Það sem skilur þetta tæki frá öðrum sambærilegum GPS tækjum er stórskemmtilegur stýripinni framan á tækinu sem liggur vel við notkun í hendi og einnig er upplausn í skjánum talsvert betri. Tækið er búið 8 Mb minni fyrir kort og er ágætt að koma því fram þetta er mest selda kortatækið frá Garmin hér á landi.Þyngd: 150 gr. með rafhlöðu.
Upplausn í skjá: 288 x 160.
Rafhlöðuending: 18 klst.
Vegpunktar: 1000.
Leiðir: 20 með allt að 125 punktum hver leið.
Vatnsheldni: Getur verið í 1 meters djúpu vatni í 30 mínútur (Ipx7).Landakort af Íslandi kostar kr. 15.000 komið í tækið. Sjá: Garmin Íslandskort
Sjókort af Íslandi kosta kr. 22.900, allt landið og Færeyjar á geisladisk. Sjá: Garmin BlueChart Atlantic
Pakkning inniheldur:
eTrex Legend
Hálsól
Tölvusnúru í Serial tengi
Flýtilykill – stuttar leiðbeiningar
Leiðbeiningar
Kennsludiskur á íslensku – námskeið í PC tölvunni
Vörunúmer: 010-00256-01
Verð kr. 19197 án/vsk
Verð kr. 23900 með/vsk…………………………………………………….
Þetta er þá 10.000 kr afsláttur
ef kortagrunnurinn fylgir.Ég bíð í þetta 20.000
Kv
Halli
660-15842003793739MeðlimurSammála síðasta ræðumanni. Góður…
2003793739MeðlimurÉg held að það hafi verið um 15 manns í Múlafjalli á laugardaginn 20.nóv við bestu aðstæður.
2003793739MeðlimurÉg fór aðeins að skoða vefinn og fann þetta að lokum.
Skoða þetta ekki á hverjum degi.Sorry my bad
Kv
Halli2003793739MeðlimurHverjir eru í stjórn Ísalp?
Eiga þessar upplýsingar ekki að vera á vefnum?Kv
Halli2003793739MeðlimurÉg vil þakka Hjalta fyrir glæsilegt mót með góðum probbum.
Vel útfært og skrúfuðu fótatökin eru algjör snilld.
Kv
Halli2003793739MeðlimurGísli, klifrari og HSG maður með meiru hringdi í mig í gær og vantaði makker austur.
Síminn hjá honum er 865-5069
Góða helgi
Kv
Halli2003793739MeðlimurHjalti R. G. og Björn B. vita allt um Bjarnarfjörð á Ströndum og mæla hiklaust með því. Sjálfur hef ég ekki komið þangað.
Ég spjallaði við Björn B. um daginn sem fann ásamt Stebba S. S. risa hnullunga aðeins vestar en aðkoman undir Vestrahorni sem væri tilvalið til að kíkja á. Hann talaði um stæstu bouldersteina á Íslandi.
Endilega að fá líka umræðu um þessa ,,Grindavíkur kletta“. Eru þeir of lágir eða?
Kv
Halli2003793739MeðlimurMenn þykjast alltaf vera þeir einu sem stunda staðinn.
Getur ekki verið að þið eldri mennirnir fara í Stardalinn um helgar á meðan „sportklifrarar“ fara í lengri ferðir norður í Vatnsdal, Munkaþverá eða á Hnappavelli.
Síðan í miðri vikur keyrir svo yngra liðið í Stardalinn þegar gömlu mennirnir eru ekki.Bara pæling.
2003793739MeðlimurPalli vill bolta Stardalhnjúkinn eingöngu til að auka traffík, fjölga leiðum og auka öryggi?
Vantar fleiri leiðir á svæðið, sjálfur á ég nóg af leiðum eftir?
Það er vel hægt að setja inn tryggingar á svæðinu.
Það er fullt af steinum og sprungum til að setja upp toppankeri.Hver ætlar að segja til um hvað eigi að bolta og hvað ekki?
Hver ætlar að fylgjast með boltun á svæðinu næstu áratugi?Ég segi Nei við boltun í Stardalshnjúk.
2003793739MeðlimurÞetta hljómar mjög vel og ég styð þessa framkvæmd.
Það stefnir þá allt í gott klifursumar með fjölda nýrra leiða?kv
Halli2003793739MeðlimurHér eru úrslitin: sæti og heildarstig
Karlaflokkur, 17 ára og eldri
1. Kjartan B. Björnsson, 10200
2. Stefán S. Smárason, 9500
3. Haraldur Örn Arngrímsson, 9200
4. Guðmundur „spánverji“ Jóhannsson, 9000
5. Sigurður T. Þórisson, 7200
6. Gísli Símonarson, 6700
7. Tryggvi Stefánsson, 6200
8. Haukur Elvar Hafsteinsson, 5900
9. Jafet B. Björnsson, 5200
10. Friðrik Árni Friðriksson, 2700
11. Jósef Sigurðsson, 2200Drengjaflokkur, 16 ára og yngri
1. Hjalti Andrés Sigurbjörnsson, 6000
2. Kristján Þór Björnsson, 5500
3. Elmar Orri Gunnarsson, 5200
4. Eyþór Konráðsson, 4000
5. Andri Már Johnsen, 2700
6.-7. Sigvaldi Örn Gústavsson, 1700
Arnar Þór,
8.-9. Aron Heiðar,
Atli GuðjónssonKvennaflokkur
1. Unnur Bryndís Guðmundsdótir, 1500
2. Sjöfn Jónsdóttir, 0Það voru 29 manns sem skráðu sig í keppnina en 24 kepptu
2003793739MeðlimurHér eru úrslitin: sæti og heildarstig
Karlaflokkur, 17 ára og eldri
1. Kjartan B. Björnsson, 10200
2. Stefán S. Smárason, 9500
3. Haraldur Örn Arngrímsson, 9200
4. Guðmundur „spánverji“ Jóhannsson, 9000
5. Sigurður T. Þórisson, 7200
6. Gísli Símonarson, 6700
7. Tryggvi Stefánsson, 6200
8. Haukur Elvar Hafsteinsson, 5900
9. Jafet B. Björnsson, 5200
10. Friðrik Árni Friðriksson, 2700
11. Jósef Sigurðsson, 2200Drengjaflokkur, 16 ára og yngri
1. Hjalti Andrés Sigurbjörnsson, 6000
2. Kristján Þór Björnsson, 5500
3. Elmar Orri Gunnarsson, 5200
4. Eyþór Konráðsson, 4000
5. Andri Már Johnsen, 2700
6.-7. Sigvaldi Örn Gústavsson, 1700
Arnar Þór,
8.-9. Aron Heiðar, Atli Guðjónsson 0Kvennaflokkur
1. Unnur Bryndís Guðmundsdótir, 1500
2. Sjöfn Jónsdóttir, 0Það voru 29 manns sem skráðu sig í keppnina en aðeins 24 kepptu.
2003793739Meðlimursorry siminn minn er 660-1584.
-
HöfundurSvör