Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
Gunnar Már
ParticipantFórum Stíganda í Múlafjalli í þokkalegum aðstæðum í dag. Business spönnin var blaut en tók vel við skrúfum. Margt annað í Múlafjalli virtist í fínum aðstæðum.
Gunnar Már
ParticipantRísandi í múlafjalli var í góðum aðstæðum 22.12
Stórar regnhlífar í efstu SpönnGunnar Már
ParticipantSpori var í góðum aðstæðum í gær (24.11.24)
Konudagsfoss var mjög þunnur og við lögðum bara í hann í toprope (fínn ís fyrir ofan brún) og það var mjög skemmtileg, örlítið yfirhangandi klifur.Gunnar Már
Participant55 gráður voru í ágætum en sólbökuðum aðstæðum í gær, fórum direct leiðina. Oliver loðflís leit út fyrir að vera klifranlegur. Tvíburagil er fullt af ís.
Attachments:
Gunnar Már
ParticipantJú mikið rétt við sáum þennan kósí sector á instagram og stukkum af stað áður en topo-ið kom á vefinn. Skröltum niður einhverja brekku sem er kannski ekkert endilega besta leiðin en líkega sú stysta. Mjög gott æfingasvæði, við leiddum upp einhverja WI 3+/4 línu nálægt miðjunni, settum upp toprope og fórum endalaust af ferðum á stuttum tíma. Geggjuð æfing eftir vinnu og komnir heim í kvöldmat.
Gunnar Már
ParticipantWierd Girls í Skálafelli var ágætum aðstæðum 9.12. Ísinn tók vel við skrúfum en síðasta haftið virkaði tæpt og laust frá berginu
Gunnar Már
ParticipantVoru einhverjar góðar niðurstöður af Klifurþinginu? Fáum við toppakkeri í Stardal?
Ég hef ekki neina sterka skoðun hvort það eigi að nota franska kerfið eða það ameríska en tek undir að það er mjög bagalegt þegar það er svona ósamræmi milli gráðukerfanna eins og er núna á klifur.is
Ég er sjálfur hrifinn af því að nota 8a.nu og þar geta allir stungið upp á sinni gráðu og mér finnst oft gagnlegt að skoða það og allavega taka með í reikninginn, vildi að fleiri Íslendingar myndu nota hana.Gunnar Már
ParticipantFórum Áslak í frábærum aðstæðum eftir vinnu í myrkri í gær. Aðkoman smá brútal í djúpum snjó.
Gunnar Már
ParticipantFórum 55 gráður í fínum aðstæður – fórum ekki kertið beint upp, fannst það frekar þunnt. Oliver Loðflís nær ekki niður.
Gunnar Már
ParticipantFórum Nálaraugað í dag, 19.2. Sömu fínu aðstæður og þið lýsið í gær. Töluverður vindur (25m/s í hviðum) en ágætt skjól fyrir austanátt þarna í skorunni. Frábær leið og gott að skreppa i þetta.
Gunnar Már
ParticipantFórum Ýring í gær. Mjög mikill snjór í gilinu, alveg upp að mitti á köflum. Ísinn mjög köflóttur. Sumsstaðar þunn himna og frauð undir, annarsstaðar góður en stökkur ís og blautur ís þar á milli. Semsagt frábær dagur á fjöllum.
Gunnar Már
Participant55 gráður var hálfgert snjógil í dag fyrir utan kertið efst sem var í fínum aðstæðum. Snjórinn fyllti alveg í skoruna bakvið kertið. Tvíburagil leit mjög vel út. Kertin í mixleiðunm milli efri og neðri Tvíburagilsfossa ná ansi langt niður
Gunnar Már
ParticipantKlifraði Grafarfoss 15.1 í fínum aðstæðum. Góður mjúkur ís en en mjög blautur og örlítið opinn efst. Fínar tryggingar. Hefði verið best að vera í pollagalla á tímabili.
Gunnar Már
ParticipantMyndin – Get ekki eytt innleggi eða breytt
Attachments:
Gunnar Már
ParticipantMynd fyrir áhugasama
Gunnar Már
ParticipantFór Weird Girls í Skálafelli í dag. Frekar mjúkur og aðeins opinn í efsta haftinu. Auð klifranlegur en ekki alveg optimal trygginga möguleikar.
-
This reply was modified 3 years, 2 months síðan by
Gunnar Már.
Gunnar Már
ParticipantVel gert Matteo! Ég vil líkja hvetja fólk til að kíkja þetta svæði. Algjört þrekvirki að búa þetta til.
Gunnar Már
ParticipantVel gert! Nú þarf maður að fara kíkja á Ingimund.
Gunnar Már
ParticipantJá, Þumall er alveg frábær ævintýraferð. Örlítið óhagstæð hlutföll af klifri og göngu segja sumir en ég fílaði þetta í botn.
Gunnar Már
ParticipantVið fórum þrír í leiðina síðasta laugardag og þetta var algjörlega mögnuð upplifun. Þvílíkt afrek að bolta svona svakalega leið. við höfuðum smá áhyggjur fyrirfram af bili milli bolta en það algjör óþarfi, leiðin mjög vel boltuð. Athugasemdirnar við leiðina hjálpuðu líka mikið á lokaspönnunum. Rauða prússikbandið var ennþá i akkeri á 10. spönn.
Við vorum rétt rúmlega 10 tíma bíl í bíl. Þarf af líklega 1 klukkutími að leita að bláa slingnum í fyrsts bolta. Gengum 2x framhjá honum án þess sjá hann en hann var aðeins nær jörðinni en ég var að skima eftir honum og orðinn svolítið veðraður. Frábær dagur.Við tókum nestispásu á góðri syllu eftir 5. spönn og þar setti ég drónann á loft og tók þessa mynd sem sýnir síðustu sex spannirnar. Við erum neðarlega fyrir miðju, hægra megin við snjóskaflinn.
Attachments:
Gunnar Már
ParticipantOg allt kraumandi undir: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/23/hekla_getur_gosid_hvenaer_sem_er/
Ef það er færi þá er ég alveg til í að skoða þetta.
Gunnar Már,
893-3994Gunnar Már
ParticipantMjög gott mál – ég mæti.
Gunnar Már
ParticipantÉg er með TLT Vertical og mjóg ánægður.
Ég virðist hins vegar hafa verið svikinn um stífari tunguna í Spirit skónna mína. Ekki eins ánægður með það.
Gunnar Már
ParticipantÉg er að hugsa um að taka Ívar á orðinu og fara á Eyjafjallajökul næstu helgi. Eru einhverjir fleiri að fara?
Gunnar Már
ParticipantÉg er að nota Atomic Kongur sem ég held að séu skilgreind sem Telemark skíði, Dynafit bindingar og Scarpa Spirit 4 skó. Þessi búnaður hefur reynst mér mjög vel. M.a. var ég viku í Sviss skíðaði bæði á braut og off-piste á þessu og líkaði það vel.
Af fjallaskíðabindingum eru Dynafit léttastar sem er kostur í göngu en aðrar bindingar t.d. Fritschi Diamir líkjast meira hefðbundnum alpaskíða bindingum.
Nokkrir linkar fyrir þig:
http://www.atskis.com/ – Fullt af upplýsinugm um Alpine Touring og review á vörur.http://www.backcountryworld.com/ – Ágætis forum um skó, bindingar og margt fleira t.d. snjóflóð.
-
HöfundurSvör