Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
0910754319Participant
Maí 1997:
Örvar Þorgeirsson
Sveinn Þorsteinsson
Símon Halldórsson
Valgarður Sæmundsson
Árni EðvaldssonHópurinn lenti í krapaflóði efst í brekkunni en hafði það samt á toppinn.
0910754319ParticipantFlottar myndir. Ég sé að það að það eru margir fínir ljósmyndarar á þessari síðu sem nota picasa. Fyrir þá sem nota firefox sem vafrara þá er tilvalið að bæta við þessu „Add-on“ á hann:
https://addons.mozilla.org/en-US/firefox/addon/5579
Þá getið þið skoðað myndagalleríin á picasa/flickr og fleiri í flottri 3D grafík.
0910754319ParticipantLeiðirnar í Mýrarhyrnu eru vandlega skráðar í ársritið ´98. Leiðin sem Bjöggi og Gulli fóru heitir annað hvort Kerling eða Christian IX, báðar 4+. Þær eru báðar áberandi langar (um 200m) línur í miðri Mýrarhyrnunni. Sú hægra megin farin af Olla og Helga Borg og sú vinstra megina af mér og Valgarði Sæmundsyni (ranglega skráð í ársriti).
Mæli endregið með Mýrarhyrnunni, mjög skemmtilegt svæði með sérstaklega skemmtilegum fjölspanna leiðum. Þá held ég að þarna séu einnig fjölmargar ófarnar leiðir.0910754319ParticipantSmá leiðrétting: líklega hefur þetta afbrigði af miðkafla postulínsleiðarinnar verið klifrað áður. Ef þessi spönn, sem þú lýsir hér fyrir ofan, er c.a. 30m til vinstri við postulínsleiðina í sömu hvilft þá klifruðum ég og Árni Eðvaldsson hana um páskana ´98 í tilraun okkar að klifra Doug Scott leiðina.
Mvh.
Örvar -
HöfundurSvör