Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
Skabbi
ParticipantHæ
Ég hef verið í stjórn Ísalp undanfarin tvö ár sem ritari. Stjórnir síðustu tveggja ára hafa áorkað ýmislegt gott en mörg verkefni bíða óleyst. Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram til áframhaldandi stjórnarsetu í eitt ár í viðbót á komandi aðalfundi.
Sjáumst þá.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantSnillingar!
Ég reikna með því að Ólympíska félagið hafi tekið lotur í Ólympíska félaginu að boltun lokinni?
Ég spái því líka að Ólympíksa Félagið verði klifrað 20 sinnum hið minnsta áður en „Ævintýramaður framtíðarinnar“ nær að rauðpunkta Síamstvíburann. Ekki að ég sé að letja hann/hana…
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Glæsilegar myndir! Það er greinilega vandað til verks þegar maður er Palli Sveins.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Það væri gaman að fá frekari fréttir, enda er þetta það fyrsta sem ég heyri af þessum leiðangri.
Bonne chance!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHELVÍTIS
FOKKÍNG
FOKK!Glegðilegt ár strákar og stelpur, þetta getur ekki annað en batnað héðan af. Þaggi?
Skabbi
Skabbi
ParticipantOj
Djöfull eruði glataðir gaurar…
Djöfull er glatað veður fyrir sunnan…
Kúkakveðja
Skabbi :-þ
Skabbi
ParticipantHæ
Má ekki bolta þetta Tvíburagil í drasl? Ég veit að Robbi iðar í skinninu að fá að flexa Hilti rakkinn aðeins.
Íslenskt mixklifur hefði ekki nema stórgott af því að fá sæmilega aðgengilegt boltað svæði í grennd við bæinn. Menn geta svo farið inn í Múlafjall með míkró hneturnar, hexurnar og Tri-camana í leit að „hreinni“ viðfnagsefnum.
Alzo!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Þetta er brjálæðislega töff. Tvær nýjar grodda mixleiðir fyrir stálbenta leðurpúnga. Vonandi verður fleirum bætt við á næstunni þannig að Tvíburagil verði sá mixkraggi sem það hefur burði til að vera.
Ég trúi ekki öðru en að mixboltasjóðurinn geti séð af nokkrum augum í þetta svæði.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantTakk fyrir svörin strákar!
Ég er elltaf með sigprússik á lítilli læstri bínu, gleymdi að telja það með.
Fleyga á ég enga, þá sjaldan að ég hef reynt að berja þá inn hafa þeir skotist út í rassgat eftir að hamarinn geigaði. Smiðsaugað ekki alveg nógu fókuserað hjá mér, held þeir verði seint standard issue í beltinu mínu. Specra er e-ð sem ég væri til í að prófa.
Prússellu hef ég verið að reyna að tileinka mér upp á síðkastið, þó að ég bölvi henni oft í sand og ösku eru ákveðin þægindi sem fylgja því, sérstaklega þegar 3 eru að klifra.
Ástæða þess að ég er með 7 skrúfur en 6 tvista er sú að ég er set oftast tvær skrúfur í megintryggingar og lausar bínur í þær.
4 metra prússikkið er ágætt að hafa, sérsteklega í Múlafjalli en í sannleika sagt fær það sífellt minni notkun. Spurning um að setja það á kanntinn með hnetunum og kamalottunum.
Tebrúsann er ég alltaf með, hann heldur á mér hita auk þess sem ég get skorðað hann milli grýlukerta og bundið um ef mig sárvantar tryggingu. Ice-bro? Te-bro? Ice-T…?
Strúfurnar fara á ice-clips sitthvorum megin (ég passa að sú lengsta sé neðst vinstra megin), tvistarnir í beltið framanvið skrúfurnar. Læstu bínurnar, prússikið og reversóið aftaná, löngu slingarnir um öxlina. Kamrarnir og hneturnar aftarlega á beltið, séu þeir með.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantGlæsilegt drengir, skemmtilegar myndir Marianne.
Enginn er verri þó hann þurfi að klifra swami belti, gerist á beztu bæjum.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Klifrarar stefna á Múlafjallið í fyrramálið, enda er það eini staðurinn sem tekur við þeim geigvænlega fjölda sem búist er við í viðburðinn.
!zellA
SKabbi
Skabbi
ParticipantHvar býrðu og hvar er næsta útivistarverslun?
kv
Skabbi
Skabbi
ParticipantKúl, erum við að tala um wannabe klassík?
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Þetta er helber snilld, gaman að fá svona mergjaða ferðasögu öðru hverju, svona aðeins til að breyta út af „góður dagur á fjöllum“ formúlunni.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantLaukrétt hjá þér herra Bjarnason!
Í snjóleysi er þilið líklega brattara en 3. gráða, en hægt er að fara margar misbrattar leiðir upp. Í miklum snjó er líklega best að halda sig fjarri.
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Þakka piltunum sem fjölmenntu á Óríon fyrir snilldardag, og hinum líka sem tóku áðí á Búllunni með okkur. Stormurinn sem feykti okkur næstum niður Flugugil hefur greinilega komið víða við. Annars var Óríon í löðrandi góðum aðstæðum í dag en það gæti breyst hratt í þessari ofankomu.
Þetta hefur verið hardcore dagur víða á suðvestur horninu, hver klassíkerinn af öðrum negldur, Þilið, Óríon, Grafarfoss…
Við hittum stórhuga stelpukrú sem stefndi á Múlafjall í morgunsárið. Gaman þegar allt er að gerast.
Ég er nett spenntur að heyra meira af deginum í Þilinu. Maður sperrir óneitanlega eyrun þegar það ber á góma.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Við Gulli og Viðar viljum vera eins og þið og skelltum okkur í Grafarfossinn uppúr hádegi í dag. Það er enginn lýgi að Fossinn er í firnagóðum aðstæðum, fastur fyrir, temmilega þurr og ekkert holhljóð! Reikna með því að við höfum farið sömu leið og þið í gær. Fleiri leiðir eflaust vel færar.
Kokostréð var tööööff, en okkur skorti dagsbirtu.
Svei mér þá, ég held að Grafarfossinn hafi bara batnað um helming eftir að hann varð klassískur!
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantOh Doddi, þú ert nú meiri jólasveinninn. Akkuru sóttiru ekki skrímerinn minn? Sénsinn að ég skili þessari skrúfu…
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Í Kjósinni eru löðrandi ísaðstæður! Hafi menn áhuga á Spora eða öðrum leiðum í Kórnum eru aðstæður hreinlega til fyrirmyndar.
Ef e-r á leið um svæðið mæli ég sérstaklega með gilinu vestan megin við Spora. Á miðri leið upp gilið má hugsanlega finna rauðan skrímer með BD bínu. Hann á ég og þætti vænt um að fá aftur, skyldi e-r rekast á hann.
Svo er það bara Eilífsdalur í fyrramálið!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Þær eru ekki margar ísskrúfurnar sem ég hef rekið í Skarðsheiðina. Mun meiri not fyrir snjóhæla, snjóakkeri, fleyga og stórar hnetur (sem þið hafið líklega ekki haft með).
Var ekki e-r snillingur sem hamraði títaníum skrúfu inn í sprungu ofarlega í Rifinu? Eða e-ð…
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantVá!
Það virðist e-ð stórkostlegt vera í uppsiglingu hjá þeim Chuck Norris og Kung-Fu Kid.
Get ekki beðið eftir tröllasögum hlöðnum testósteroni, hringspörkum og mannhæðarháum valköstum.
Heads will role!
Skabbi – sem óttast um eigið líf…
Skabbi
ParticipantHæ
Eins og Sveinn greinir svo skilmerkilega frá þá fórum við þrír félagar í Villingadal. Ís var enn í sæmilegum aðstæðum en heldur blautur. Klifruðum leiðina 14 og leið sem ég ekki kann að nefna vinstra megin í hvylftinni. Við bjuggumst við að sjá e-n mannskap í dalnum en urðum ekki varir við frekari mannaferðir.
Nú bíður maður bara eftir næsta frosti.
Allez!
Skabbi
Skabbi
ParticipantHæ
Eilífsdalurinn leit út fyrir að vera býsna bunkaður í gær. Hann þolir alveg smá hlákuskot í nótt og verður örugglega vel klifranlegur í blíðunni sem spáð er á morgun. Eins giska ég á að Villingadalur verðu í góðum aðstæðum á morgun.
Skabbi
Skabbi
ParticipantJá, mér datt e-ð svoleiðs í hug en tætir þetta ekki hanskana upp ansi hratt? Tími ekki rándýru pönserunum í svoleiðis tilraunastarfsemi…
Allez!
Skabbz
Skabbi
ParticipantHæ
Er þá ekki bara kaffi á Select klukkan 8 á laugardaginn? Blikadalur, Múlafjall og ef allt um þrýtur, Villingadalur.
Ég verð þar allavega með ólgandi kaffi og croussant…
Skabbi
-
HöfundurSvör