Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
0703784699Meðlimur
….Freon hvað hét fjallið aftur……Mt.SanngjarntVeður er það ekki? og það var…..well kannski bara einn af mörgum draumum eflaust,
kv.Himmi
0703784699MeðlimurMaður ætti frekar að gera einsog Leibbi og finna sér einhverja sem maður planar ferðir fyrir og skella sér með þeim…..og á launum líka….en að sækja um styrki.
En annars frábært framtak, og orðið kannski löngu tímabært. Nú ættu kannski einhverjir yngri að taka sig til og skella sér á erlendar slóðir, nóg er til af sögunum af frumförum ísalp í suður, vestur og austurlöndum.
Ekki vantar hugmyndirnar, og ef einhver er tilbúinn að koma með peninginn að þá er það bara að finna tíma…..þarf greinilega að fara að taka til í Calender hjá mér og forgangsraða aðeins líka…..
kv.Gimp
0703784699Meðlimurönnur saga gerðist inní Blikadal sem margir muna kannski eftir. Fór betur á en horfðist, sér í lagi þegar fótbrotið endaði með ofkælingu sem hefði getað endað illa.
Léleg titan rússa skrúfa hélt illa í Grafarfoss um árið með lærbroti.
Minnist líka sögu um mann sem datt í leiðslu í noregi, og brot skiptu hann litlu máli því hann fór í gegnum ísinn og drukknaði hinum megin. Þetta var hérna á ísalp síðum einhvern tímann í umræðum.
Svona geta dæmin verið mismörg, halda sig bara heima ef menn vilja ekki taka áhættuna.
En já fylgja bara gullnu reglunni að detta ekki í leiðslu, nema um sportísklifur sé að ræða sem er víst ekki eins mikið stundað hér heima, þeas í boltum og mikið yfirhangandi oftast í klettum. Og svo að halda áhættunni í lágmarki,
kvHimmi
0703784699Meðlimursorry….gleymdi einu S-i
http://www.icelanticboards.com/
Er að vinna í Burton S, vona að það náist f. vorið.
Annars er þetta líka lausn, http://www.backcountry.com/store/newsletter/s49/a376/DIY-Split-Board.html?CP=Email&CMP=EMC-Content&ATT=1CcA1&gcid=C2000x068-1CcA1&mv_pc=r202
kvHimmi
0703784699MeðlimurMondosize er eina vitið í þessum heimi til að finna út skóstærð….en 31 þýðir bara 31cm svo einfalt er það.
Settu fótinn á þér á blað, strikaðu í kringum hann og mældu milli lengstu punkta og þá ertu með mondopoint. Svo ef þú vilt aukarými að þá bætir þú við en það á ekki að þurfa.
þegar ég verslaði skó hjá Tele-P að þá gerði ég það svona eftir að þeir mældu með því….
Annars að þá var ég að skoða það nýjast hjá Scarpa í Vegas síðustu helgi, nýjir Telemark skór með minni tá og fleira sniðugt
kv.Himmi
0703784699MeðlimurHvenær er hraðakeppnin á dagskrá aftur?
Gimp
0703784699Meðlimursíminn hjá mér er ennþá hinn sami….en þar sem ég er ekki með talhólf og er ekki sá iðnasti við að svara þessa dagana að þá má senda meil á himmi78@simnet.is
kv.Himmi
0703784699MeðlimurHeld við getum verið stolt af okkar mönnum…þeas ef ég kann ennþá að lesa úr Excel.
http://www.sogndalklatreklubb.no/ (Sjá Complete List)
kv.Himmi
0703784699Meðlimur….alveg snjólaust í Flims/Laax í Sviss, og reyndar ölpunum öllum….svo ég mæli með því að menn haldi frekar annað ef grípa á í skíði. Minnsti snjór í Nóv/Des í mörg hundruð ár samkvæmt localnum. En það er kalt og hægt væri að grípa í íslínur hér einhverstaðar en því miður er ég ekki í þeim hugleiðingunum núna.
Útsýnið gott úr hótelherberginu sem ég mun verma næstu viku ( http://arenaflims.ch/index.php?option=content&task=view&id=95&Itemid=91&lang=de ). Fjallaloftið og -sýnin kemur manni alltaf í jákvætt skap þó lítill sé snjórinn.
Nú er bara um að gera að „pray for powder“, svo ég þurfi ekki að fara að huga að því að brýna kantana f. rennslið á morgun.
kv. Himmi
0703784699MeðlimurÍsalp fékk á silfurfati ekki ómerkari menn en Huber bræðurnar ( http://www.huberbuam.de/ ) til að halda fyrirlestur hér á landi um miðjan Des, en því miður var áhuginn ekki f. hendi frá stjórn til að svo sem lyfta litla fingri, þrátt f. ítrekaða pressu.
Sportvöruverslunin Útilíf sá sér ekki einu sinni fært að styðja smá við fjallamennsku á Íslandi til að geta haldið þennan „smá“ viðburð f. fjallamenn.
Klifurhúsið hikaði ekki við að svara því að þeir myndu leggja allt sitt af mörkum til að ná þessu fram, en það dugði því miður bara f. helmingnum af útgjöldum, því varð úr að tilkynna þurfti þessum mætu mönnum að áhuginn á þeim væri ekki meiri en svo að….hopefully we can pull it out next season.
Félagsmaður í Ísalp sá sér ekki fært að taka fjárhagslega ábyrgð á að fá þessa menn til landsins, skiljanlega, þrátt f. mikla vinnu sem lögð var í það að finna smugu í að fá þá til landsins í annars þétt skipaðri dagskrá sinni.
En gaman að heyra að þeir standi sig vel á flatlendinu, og að þú skemmtir þér þarna úti.
kv. Gimp
0703784699MeðlimurJói er ekki eini fjallamaðurinn sem heldur fyrirlestra f. fjallaklúbba.
Hvað er Ísalp að gera í fyrirlestramálum? Er von á einhverjum skemmtilegum á næstunni?
Himmi
0703784699MeðlimurAf hverju mótmælum ekki líka háu matarverði…það gerir það að verkum að við komumst sjaldnar í fjallaferðir því það er svo dýrt að lifa?
En öllu gamni sleppt að þá mæli ég með Storms of Silence með Joe Simpson…hún opnaði augu mín f. þessum hrikalegu þjóðarmorðum.
Hvort Ísalp mótmæli eða ekki…þá eru til klúbbar sem þú getur gengið í til að mótmæla þessu, ég fór í Ísalp til að öðlast meiri þekkingu á fjallaferðum, góðum félagsskap og svo ársritinu (sem eitthvað er farið að dragast).
kv.Himmi
0703784699Meðlimur….á Hnappavelli ef veðrið leyfir með familiuna.
Vonandi helst veðrið einsog það er í bænum núna,
Himmi
0703784699Meðlimur……er hálfnaður með Draumlandið…og ætla að halda þangað núna þegar þessum skrifum á umræðusíðuna er lokið….skemmtileg lesning og tek undir með stórvini mínum Hr. Morthens að allir eigi að lesa þessa bók (þó ég efist um aðhann hafi komist lengra en að lesa efnisyfirlitið).
Endilega grípið bókina í næstu verslun (eða á fluvellinum á leið út), lesið, myndið ykkur skoðun (með eða á móti) í þessu máli sem og flestum þeim málum sem að ykkur snúast. Árni A segir það ansi mikilvægt og hefur hann nokkuð til síns máls þar.
Gaman að heyra að fleiri eru á þeirri skoðun að landbúnaður og lög og reglur um þá stétt séu á villigötum líkt og Sinfoníuhljómsveitin. Myndin af 28 „íslenskum hermönnnum“ þótti mér ansi skemmtileg, sérstaklega í ljósi þess að þarna sá ég æskufélaga, klifurfélaga, frænda og nokkra aðra hausa sem ég þekkti vel til (um 30% af hópnum), svo ekki sé minnst á að næsta hersveit sem fer út á næstu dögum er samansett af alltof mörgum í kringum mig sem ég þekki líka. Hvern andskotann erum við að gera með her? Verður ekki viðmótið eftir 20 ár að þá verðu sagt að vði erum nú búin að vera með „her“ svo lengi að við verðum nú að fara að sinna varnamálum að meiri krafti?
I rökræðum sem ég átti um daginn, varðandi virkjanamál, að þá var troðið oní mig með því að allur ferðamannastraumur (iðnaðurinn á) til íslands mengaði meira en eitt stykki álver f. austan? Ég var því miður ekki með sönnur á að svo væri ekki, né hverjar tölurnar eru yfir þau ársstörf sem ferðamannaiðnaðurinn skapar versus álverið á austurlandi…..en gaman væri að heyra að svo væri ekki.
Himmi
0703784699MeðlimurHaagen-Dazs var vel kaldur og í fínum aðstæðum, borgaði um 3 evrur f. 3 kúlur og rjóma með. Rann ljúflega niður og aldrei að vita nema íshungrið segi til sína aftur á morgun og maður grípa í skeiðina og skelli sér svo sem eina 3 kúlu leið,
GIMP
0703784699Meðlimurjá gaman að heyra að þið félagar höfðuð það gott…leiðinlegt að geta ekki hitt á ykkur, og leitt f. ykkur að missa af surfinu og strandarlífinu í Biarrtiz/Hossegor, en við eigum Tönnina og annað bara inni síðar. ´´Atti erfitt með að sætta mig við það að Airbus voru ofar á listanum yfir things to do en að skella sér í nokkrar öldur með mér.
Nú situr maður á hótelinu í BCN og heldur svo suður í hitann eftir helgi þar sem slappað verður af í Altea og kannski klipið í nokkra kletta með konunni það sem eftir lifir júlí mánaðr, enda feitur doðrantur með í för um klifur á Costa Blanca.
Vonandi nýtur þú ostanna og rauðvínsins þar sem strákarnir eru nú horfnir á vit ævintýranna heima á frónni, og gaman verður að heyra meira af þessum svaðilförum þegar heim kemur.
40 stiga hitakveðjur og pungsviti í samræmi við það,
Gimp
0703784699MeðlimurNerds!!!!!
Haldið ykkur frá lyklaborðunum….what the fuck is addons.mozilla…….einsog ein auglýsing kalli á einhverjar aðgerðir.
Frábært að vefurinn batni við smá auglýsingaöflun,
Fegin að vera ekki svona hálf down yfir þessu öllu saman enda tel ég nauðsynlegt að afla smá aukafjár f. vefinn, eða þróunar hans, það sést til dæmis í þróun ársritsins hvað fólk fær borgað f. það vanþakkláta starf að vinna f. félagasamtök…..með von um að vefurinn haldi áfram að dafna en kvoðni ekki niður líkt og ársritið.
Gimp
0703784699MeðlimurJá hjá Telemörkurum er þetta eflaust svona…en þeir sem renna sér á hlið eða með fastann hælinn gera áttuna svona…
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8kv.Gimp
0703784699Meðlimurjá það getur verið langt labbið inn Elífsdalinn….og langur dagur….en ef menn villast í Blikadal á heimleiðinni að þá fara nú KM að hrannast hratt upp til sælla minninga.
Gimp
0703784699MeðlimurHann hefur kíkt á Simond bræðurnar sjálfa, þá François eða Ludger og komist að því að það er löngu búið að skipta út mannætufiskunum…..ekki er nú langt að fara frá Grenoble to Chamonix…..
kv.Himmi
0703784699Meðlimurþegar ég vaknaði upp af værum blundi á hótelherberginu mínu í morgun að þá örlaði ekki f. snjó, arkaði því í stuttbuxunum mínum og stuttermabol út í morgunmat.
Næsta skref er að halda áleiðis til englaborgarinnar og svo bara vinna vinna vinna þangað til maður kemur heim í byrjun feb.
kveðja úr sólinni í San Diego,
Himmi
PS: aldrei að vita nema maður taki létt surf eftir að hafa tekið morgun skokkið á Mission Beach?
0703784699Meðlimurjá þú segir nokkuð….en áður en einhverjar fara af stað og eyðileggja bindingarnar sínar á svona að þá vildi ég koma því á framfæri að ég er með K2 Totally piste skíði + Skyhoy step in Telemark bindingar (man ekki framleiðandann en var það ekki Fritschi?) ásamt T1 í stærð 42,5 til sölu og skinn.
Þar sem að þetta stóð ónotað síðasta vetur að þá hef ég ákveðið að selja þetta, maður getur jú ekki átt allar græjur. Svo verður maðru að rýma til f. split snjóbrettinu.
Fæst allt saman á góðum díl,
kv.Himmi
0703784699MeðlimurJá sá þetta í imbanum…nokkuð fyndið, skrítið en í senn skemmtilegt. Skárra að horfa á fólk klifra en einhverja á eyðieyju. Var nú orðinn frekar leiður á þessum raunveruleikaþáttum öllum en þetta lífgaði aðeins uppá það.
En ef það er eitthvað Detox program sem gefur fría 6 mánaða ferð um heiminn að klifra sem endar í Yosemite þá skal ég hætta að drekka.
Í eitt af fyrstu skiptum mínum að klifra fór ég með Stebba í Stardal….þetta er ekki ósvipuð upplifun… „I went out there with Chris Sharma, Leo Houlding, Steve McClure, just amazing climbers, and I was 215 pounds deep-water soloing with Chris Sharma“…..en tek það fram að ég var þá ekki 215 pund og hef aldrei verið og kem ekki til með að verða.
…..everyone I climb with is pretty much from England, and I don’t really know many American climbers…..en samt hefur hann klifrað með Chris Sharma? Ótrúlegt þetta celeb lið.
Svo hefur hann prufað ís í Mer de Glace, en þótti það eitthvað einhæft sport….It was something that I wasn’t so into because it seemed a bit repetitive, but I’m going to try it again, and get in form for a good winter season….kannski ættum við að tékka á honum f. næst ísfestival? Gott PR definately.
Endilega tékkið á greininni, góð byrjun á mínum vinnudegi,
Himmi
0703784699MeðlimurSegi pass við Gimp umræðunni en ef einhver vill ræða það eitthvað frekar að þá er frjálst að senda póst á rafrænan hátt á himmigimp@hotmail.com
Annars að þá kannaði ég með turninn síðasta vetur. Tók málið upp á vefnum og reyndi svo að fylgja því aðeins eftir með símtali.
Jú ÍTR sjá um þetta og það voru Hallgrímur og nokkrir aðrir góðir menn sem sáu um að byggja og fá efnið og leyfi.
Málið er að hringja í félagsmiðstöðina í Grafarvogi, held hún heiti Sygin eða álíka. Ég talaði við mann þar sem sér um þetta og heitir Sigurgeir og sagði hann mér að leiðslan væri sprungin og þyrfti bara að gera við þetta. Í framhaldinu væri ekkert mál að setja þetta í gang á frostaköflum. Ég held að það þurfi ekki meira en gott frost í 2-3 daga til að fá nægjanlega skán til að príla í, en því lengra því betra. Hann ætti að muna vel eftir því að maður að nafni Himmi hringdi í hann í fyrra til að kanna með þetta síðan hefur þetta bara fallið í gleymsku og ekkert gerst vegna tímaskorts. En ég veit ekki hver á að bera kostnað á viðgerð á þessu? En það væri náttúrulega brill ef menn sæju sér fært að gefa smá tíma aflögu í þetta og koma þessu í lag.
Freyzi þú ert kjörinn í málið…..sjáumst svo í næsta frostakaflan.
kv.Himmi
0703784699MeðlimurHef sagt það áður og segi það enn….verslið á netinu og takið ekki þátt í þessari vitleysu, svo ekki sé minnst á úrvalið sem okkur er boðið uppá!!
Ég borga ársgjaldið til að fá ársritið inn um lúguna mína og ég bíð enn…..
kv.Gimp
-
HöfundurSvör