Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
0506824479Meðlimur
matur og ball
0506824479Meðlimursæl
gömlu góðu frauðdýnurnar standa alltaf fyrir sínu, ættu ekki að kosta mikið. Ef það dugir ekki þá er hægt skerpa ögn uppá einangrunina með því að sauma poka úr flísefni sem maður setur inní svefnpokann.
kv
Doddi0506824479MeðlimurJá, ok…… virkar sleppibúnaðurinn á bindingunum s.s. svona, nokkuð patent
0506824479MeðlimurFlott hjá ykkur og alveg rífandi skemmtileg saga. Hlakka til að sjá myndir.
kv.
Doddi0506824479MeðlimurAthiglisverð grein um rafstöðvarhúsið.
Ef mig minnir rétt þá er ástæðan fyrir því að það sé ekki búið að rífa það er að það er asbest klætt og mengunin sem myndi fylgja niðurrifinu myndi líklega drepa lífríki Elliðaáa.Ef ég skil rétt þá er það sama ástæða fyrir því að það standi autt og hefur staðið autt í mörg mörg ár, en það er að húsið er talið heilsuspillandi útaf asbestinu.
Hvernig Reykjavíkurborg ætlar að breyta þessu er ég ekki viss.
kveðja
Doddi
0506824479MeðlimurSorry, þegar við vorum komir upp var línan orðin það ísuð að það var ekki séns að klifra neitt meira þann daginn þeim línum, þannig að við löbbuðum bara niður
Doddi
0506824479MeðlimurÉg og Arnar Fel kíktum í spora á sunnudaginn.
Aðstæður voru svona frekar mjög blautar, hef sjaldan séð jafn þykka klakabrynju á línunni minni.
Annars er alveg bunki af ís þarna innfrá og fullt af línum í aðstæðum.Fæorum svo í góðan bíltúr um suðurlands undirlendið eftir prílið, norðurhlíðin á Heklu leit út fyrir að vera í fínum skíðaaðstæðum.
Doddi
P.S. það tapaðist skrúfa frá okkur í spora , BD express, ef einhver á leið þarna framhjá þá er viðkomandi vinsamlegast beðin um að kippa henni með sér íbæinn.
0506824479MeðlimurHva, er ísalp alltíenu orðin einhver brettaklúbbur??
Mig langar að vera með,
Óska eftir straubretti, helst ódýru, ekki væri verra að hafa það samanbrjótanlegt og á fæti.
Doddi
0506824479Meðlimurfagna nýum myndum, spurning hvort maður lummi ekki á nokkrum góðum sem maður gæti doneitað.
Þurfa þær að vera frá Íslandi??ég mæti á FINNANN, sniðugt að halda þetta á kúltúra.
kv.
Doddi0506824479MeðlimurÉg er með nokkuð vel notaða G14 brodda handa þér.
þú færð þá fyrir 2 kippur af kalda (vöruskipti er það sem virkar í dag)
kveðja
Doddi0506824479Meðlimurég meina klifurskó
0506824479MeðlimurÉg prufaði einu sinni að stilla diamir bindingarnar mínar fyrir salomon klifurskóna mína.
Þetta var í Frakklandi
Planið var að taka liftuna upp í Grand Monet og skíða síðan þaðan niður í gil sem er þar fyrir neðan, var nefnilega í slagtogi með ákveðnum Dana sem hafði ekki mikinn vilja til að labba.
Samkvæmt heimildum átti þetta nefnilega að vera vel gerlegt.
Hef sjaldan lennt í jafn miklu puðiog að hafa reynt að renna mér niður í þetta gil (brekkan var ca. 30-35°, hnéjúpt púður og fokking tré) á mjúkum ísklifurskóm með allar græur á bakinu.
Var auk þess næstum búinn að skíða framaf ísfossinum sem við ætluðum að kifra
Síðan var algert vesen að skíða út úr gilinu aftur til byggða.
Hefðum ábyggilega sparað okkur 2-3 tíma ef við hefðum bara drullast til að labba upp gilið strax, lofaði allavega sjálfummér að gera þetta allavega ekki aftur.
En það er s.s. hægt að stilla diamir bindingar fyrir skíðaskó.
kv.
Doddi0506824479MeðlimurFlott mál.
Sveinborg, það var fullt af snjó í garðinum mínum í morgun.
Ágúst, ég er með skó handa þér, bjallaðu á mig í síma 694-1198
kv. Doddi
0506824479MeðlimurÉg á skó sem ég get selt þér í þessari stærð
kv.
Doddi0506824479MeðlimurSælir
Smá rapport hérna
Já ég var að klifra með Óla félaga mínum á laugardaginn. Í grófum dráttum gerist þetta svipað eins og Arnar lýsir hér fyrir ofan, við erum í annarri spönn þegar Óli dettur eftir að hafa sett inn 2 skrúfur. hann lendir með fæturnar á littlum stöllum en grándar ekki alveg.
ég hef strax samband við félaga mína í flubbunum og bið þá að koma á staðin.
Þegar ég svo er að kanna ástandið á honum þá er ég ekki alveg viss hversu alvarlegt þetta er því þó honum sé mjög illt í löppinni þá virðist hann ekki vera mjög kvalinn. Því tel ég þarna að þetta sé ekki jafn alvarlegt og síðar kom í ljós.
Ég byrja á að síga honum niður leiðina svo einnig snjóbrekkuna undir henni. En þegar það er búið eru félagar okkar komnir uppí brekkuna og koma honum niður restina í börum.
Á slysó kemur svo í ljós að Óli hafði brotið kúluna á hægri ökkla og þurfti aðgerð til að rétta það brot. Á sunnudeiginum kemur svo í ljós að hann hefur einng brotið ökklan á vinstri fæti, en það kemur í ljós þegar hann prufar að ferðast um með hækju.
Vona að þetta svari einhverjum spurningum
Kveðja
Doddi0506824479MeðlimurÉg og Hjörtur Jóhannsson kíktum í Grafarfossinn á þriðjudaginn. Ákváðum að fara vinstra megin við grjótið. Fyrri spönnin var ágæt en stansinn var mjög blautur, það hefði verið betri kostur að fara hægra megin við grjótið. Mikill snjór var í leiðinni og einnig þurfti að vaða djúpan snjó uppað fossinum.
kv. Doddi
0506824479MeðlimurFjallaleiðsögumenn munu vera með gommu af notuðum North Face VE-25 tjöld til sölu. Prísinn þeim verður frá 10.000 kr og fer eftir ástandi þeirra.
Einnig verðum við með 1 stykki Land Rover við viljum selja, hann er af gerðini Defender og er árgerð ´99. Gripurinn mun fara á rúma milljón.
kv. Doddi
0506824479MeðlimurÉg vil sjá fólsbílafæra vegi út um allt á hálendinu, þá geta ráðamenn þjóðarinnar ekki sagt að enginn geti komist á staðinn og því allt í lagi að virkja. Uppi eru hugmyndir að virkja bæði Langasjó og Hverasvæði að fjallabaki, það yrði aldrei gert ef þorri þjóðarinnar gæti farið á fjölskyldbílnum sínum á staðina.
Mér finnst að það ætti að banna jeppa umferð á sumum fjöllum, s.s. Eyjafjallajökli, hraðbrautartraffikin þar er ömurleg á sólríkum vetrardögum. Einnig ætti að takmarka jeppaumferð á Þórsmerkursvæðinu áður en það verður spólað út af druknum jeppaköllum
Svo kalla jeppakallar sig fjallamenn, sem mér finnst til háborinnar skammar.
Í þjóðgörðum í Canada og USA er malbikaðir vegir út um allt, ég get ekki séð að það sé að spilla náttúrunni.
m.k
Doddi0506824479MeðlimurCy-bar brann í vetur
-
HöfundurSvör