Svör sem þú hefur skrifað
-
HöfundurSvör
-
0304724629Meðlimur
Já, ansi magnaður utanvega akstur! Eins gott að vera með björgunarsveitartrukka innan handar þegar vaða þarf í gegnum þessa helvítins drullupytti á hálendinu.
rok
0304724629MeðlimurVið Búbbi reyndum við gamlan félaga í Galtardal, Önundarfirði í gær. Fjórða tilraun. Komums tloks hálfa leið í mjög bröttum ís en seinni spönnin byrjar á risa fríhangandi drjóla með vonlausu móbergi á bakvið. Skrúfan var aðeins of langt fyrir neðan til að ég tæki sénsinn. Bíður betri tíma. Þá verður kertið vonandi frosið saman. Annars flottur dagur og klárlega erfiðasta klifur vetrarins hingað til. Ég teipaði Hero vélina á ísexina. Vídeóið er soldið kúl. Á eftir að smella því saman. Prófa að setja inn mynd. Sem gengur yfirleitt ekki…
0304724629MeðlimurVandamálið með vefinn núna (eins góður og hann nú er) er að:
Það er erfitt að setja inn myndir og video. Engar leiðbeiningar er að finna á vefnum hvernig á að gera það. Það virkar bara stundum og stundum ekki. Reyndar er Skabbi búinn að segja mér hvernig á að setja inn video. Mér gengur alltaf illa að setja inn myndir.
Mínar síður eru ekki virkar lengur. Þar gat maður sett inn myndir (reyndar með smá html kóðun) og samið skemmtilegar ferðasögur sem söfnuðust upp með tímanum. Núna týnist þetta bara í mis löngum umræðuþráðum.
Það er kekert svæði með t.d. „best of“ myndir ársins eða mánaðarins. Eða bara skemmtilegt myndasafn skipt upp eftir landshlutum sísonum osfrv.
Hvergi er haldið utan um video sem klúbbmeðlimir senda inn.
Þetta er megin ástæðan að mínu mati fyrir því að félagar eru að nota picasa, facebook og annað dót sem gerir þetta auðveldara.
Við skulum ekki blóta fésinu. Málið er bara að kippa þessu í liðinn ef áhugi er fyrir því. Ég myndi glaður bjóða mig fram ef ég kynni eitthvað í forritun…
0304724629MeðlimurVið getum líka ,,pimpað“ þær upp fyrir ykkur. Var að taka par af BD Rage. Lítur vel út.
0304724629MeðlimurÉg á nokkrar svona þunnar skeljar sem hægt væri að fá fyrir lítið. Virka fínt við klifurbelti og spotta þræddan í gegnum ragmagnsrör.
0304724629MeðlimurHvaða pukur er þetta Palli? Ætlarðu að ná þér í 5000 kall hjá DV? Nú vill ég bara vita hver þetta er en ekki hvað gerðist…!
0304724629MeðlimurEki veit ég af hverju pósturinn kom þrisvar inn. Ég ýtti bara einu sinni á ,,Skrá“ og tölvan tók að melta dótið. Eftir langan tíma var ég orðin óþolinmóður og drap á brávsernum. Þá var bara búið að setja inn póstinn þrisvar sinnum en aldrei með helv. myndinni.
Svo býður kerfið ekki upp á að eyða sínum eigin póstum em er mjög lélegt.
Ég get tekið saman best of lista Palli og þú ert alltaf velkomin vestur. Það eru nokkur feit verkefni sem bíða fyrstu uppferðar.
kv
rok0304724629MeðlimurÞessar teygjutaugar(!) eru ALLS EKKI hannaðar til að detta í. Það er ekki einu sinni mælt með að setjast í þær. Himmi líkir þessu við Fifi krókana gömlu sem ég kynntist nú. Þeir voru bara til að setjast í þegar maður var að troða inn skrúfum fyrir tíma stálskrúfa. Þá þurfti að negla inn fyrst og síðan nota exina og beita vogarafli til að koma draslinu inn…. Good old days!
Allavega, ég myndi aldrei fá mér svona drasl nema kanski til að nota í löngum leiðum í Ölpunum. Skil ekki hvað menn ætla að gera við þetta hérna heima.
0304724629MeðlimurÖnnur tilraun til að pósta myndinni. Meira djöf. draslið!
0304724629MeðlimurBið Búbbi og Danny klifruðum nýja leið í Kálfadal á Óshlíðinni laugardaginn 27. nóvember. Fyrsta spönnin er 40 metrar og ca 4 gráða þar til efst er komið. Þá tekur við stórt yfirhangandi þil sem þurfti ansi margar tilraunir til að sigrast á. Það var það utarlega að við sigum niður án þess að snerta ísinn, fyrr en alveg neðst. Við tókum síðan tvær spannir ofan við krúxið sem voru 3-4 gráða. Samtals ca 120 metrar.
Nafn: Virgin Symphony
Á myndinni er ég að reyna að leysa krúxið. Gafst upp eftir fjórar tilraunir. Danny tókst það í fjórðu tilraun eftir að hafa misst aðra exina, sigið niður, fengið klapp á bakið og aðra öxi…!
0304724629MeðlimurNúna virkaði það! Skil ekki af hverju það virkaði núna. Ég hef bara verið að reyna að hlaða inn litlum myndum.
0304724629MeðlimurÉg smelli bara á ,,Veldu mynd til að láta fylgja með“ /Choose File og svo skrá.
0304724629MeðlimurÉg smelli bara á ,,Veldu mynd til að láta fylgja með“ /Choose File og svo skrá.
0304724629MeðlimurEitt í viðbót Kristinn. Gott ef þú gætir sent mér bara beint uppl. um þetta flóð í Hlíðarfjalli. runar@vedur.is
Getur reyndar verið að við séum komnir með það á skrá.
kv
rok0304724629MeðlimurHægt er að senda snjóflóðaskráningar undir þessum hlekk.
http://vedur.is/um-vi/hafa-samband/
Skráningarformið var eitthvað bilað en þetta er redding þangað til annað tekur við. Stefnt að því um áramótin.
0304724629MeðlimurHvar á landinu er þetta? Snjóflóðavaktin vill færa þetta til bókar.
rok
0304724629MeðlimurJá, þetta er ansi flott. Tók eftir að þeir setja prússík í V þræðinguna þó ísinn sé skrjáf þurr og nánast enginn hætta á að línan frjósi í gatinu. Ég hef nánast aldrei notað prússík í V þræðingu. Passa bara að tékka að línan renni vel áður en síðasti maður sígur. Þá er lika ekki verið að skilja eftir bandspotta um allar trissur.
rok
0304724629MeðlimurÉg vona að þetta sé ekki öll rannsóknarvinnan að baki verkefninu. Pósta á Ísalp og kalla það feasibility study…! Gangi þér annars vel.
0304724629MeðlimurAf hverju er dedlænið 11. apríl? Nú er t.d. skíðavertíðin að hefjast fyrir alvöru.
0304724629MeðlimurTakk fyrir þetta Dóri. Hvernig er það Helga, ætlar þú ekki að fara að smella inn myndunum sem búið er að safna saman???
kv. rok
0304724629MeðlimurJá takk fyrir mig. Sannarlega þess virði að ,,skreppa“ á festivalið.
Flott veður, góður hópur og sammála Dóra með grillið. Stelpurnar stóðu sig vel. Hápunktar Festivalsins voru:
1. Hneggið í Dóra
2. Pimp skeggið á Dóra
3. Hnúturinn sem Dóri gleymdi að losa
4. Þessi mynd af Dóra. Æi hún kemur ekki inn. Hvað er málið með að pósta myndum?[img][/img]
Vídeó er í vinnslu. Tekur nokkra daga.
Takk fyrir mig.
kv
rok0304724629MeðlimurSmá vídeó frá því á sunnudaginn. Flott ný leið í Önundarfirði. Nafnið á leiðinni er í höfuðið á eyðibýlinu sem sést í upphafi.
0304724629MeðlimurÉg á eftir að setja hokkíteip. Fyrst ætla ég að reyna að létta skaftið aðeins. Handfangið var teiknað í AutoCad og vatnsskorið. Það er 3mm ryðfrítt stál í miðjunni og svo 9mm harðplast sitthvoru megin. Allt draslið kýlt 50mm upp í skaftið, Sikaflex og hnoð í gegn. Hlakka til að prófa.
rok
0304724629MeðlimurJæja. Nú er maður búinn að vera að brasa og hér er árangurinn. Á samt eftir að fínpússa listaverkið. Skýri barnið Simond Dildo.
0304724629MeðlimurMig vantar far ef veðurguðirnir verða mér náðugir. Stefni á að fljúga á fimmtudagskvöldið. Lendi kl. ca 18:30. Svo heim á sunnudag, flug mánudagsmorgun.
kv
rok -
HöfundurSvör