Freyr Ingi

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 126 til 150 (af 252)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: ísalög og aðstæður, uppl. #54828
    Freyr Ingi
    Participant

    jább, held að við Gummi Dúllari kíkjum í Hvalfjörðinn að kanna.
    Haukur Grönli ætlaði svo að láta sjá sig einhversstaðar líka.

    Meira á morgun.

    F.

    in reply to: tapað/fundið, fann jakka upp í Múlafjalli #54785
    Freyr Ingi
    Participant

    Leit hann út fyrir að hafa verið þarna í ca. ár??

    Bragi, kannski þinn?

    Maður veit aldrei.

    F.

    in reply to: Ísklifur þessa helgi? #54776
    Freyr Ingi
    Participant

    jæja.. hver fékk kökubitann frá Marianne um helgina ??

    in reply to: Ísland á kortið #54718
    Freyr Ingi
    Participant

    Þetta er fróðleg umræða sem hér hefur skapast, sjálfur er ég ekki fróður um þessi bandalög en áhugi minn er vakinn. Þetta verður að líta nánar á.

    Stofnum nefnd og vinnuhóp um málið.

    Freyr

    in reply to: Tomaz Humar dáinn #54692
    Freyr Ingi
    Participant
    in reply to: Fyrir sófaklifrarana… #54654
    Freyr Ingi
    Participant

    Vel gert drengir!

    Skemmtilegt myndband maður!
    Líst vel á þróun íslenskra hreyfimynda, spurning um að safna saman og bæta við íslenkum degi á Banff hátíðinni.
    Haldið áfram að mynda og klippa.

    Freyr

    in reply to: skreppitúr á Ými og Ýmu, sunnudag. Allir með! #54633
    Freyr Ingi
    Participant

    Freyr,
    Sveinborg,
    Björk,
    Bragi,
    Sara,
    Jacob,
    Bergur &
    Arnar Páll
    eiga stefnumót við Tindfjöll á morgun.
    Brottför kl. 07:00 frá Select, Ártúnsbrekku.
    Nóg pláss fyrir fleiri á fjöllum.

    Gaman!

    in reply to: Á bazarnum langar mig að kaupa…. #54558
    Freyr Ingi
    Participant

    L.A GEAR körfuboltaskó, stærð 43
    Annar L.A GEAR varningur kemur einnig til greina sem og Muddy fox fjallahjó.

    F.

    in reply to: Snjór #54551
    Freyr Ingi
    Participant

    Ertu að vonast til að sjá „göngubrettara“ í vefmyndavélinni?

    in reply to: Snjór #54549
    Freyr Ingi
    Participant

    Húrra fyrir snjógirðingum, sem gera gagn!
    Húrra fyrir brettaravídjóinu, sem er fyndið!
    &
    Húrra fyrir kaffi, sem er gott, ekkert húrra fyrir iðnaðarmannakaffi!

    in reply to: Bakpokar #54520
    Freyr Ingi
    Participant

    Hæ,

    ég hef verið að nota poka frá Black Diamond sem heitir „speed“

    http://www.blackdiamondequipment.com/en-us/shop…ntain/packs/speed-30

    Ef þú skoðar hann sérðu að það er ekkert auka sjitt á honum, bara það sem þú þarft.
    Hliðar strappar fyrir skíði eða hvað sem þú þarft að strappa á hliðarnar.

    30 lítrar eru alveg nóg fyrir mig, línan fer utan á pokann og ef þú ert með mikið nesti eða stórann rakk fer hjálmurinn á hausinn… ekkert vandamál!
    Kemur að vísu líka í 40 lítra útgáfu en ég veit ekkert um það.

    Þessi elska vigtar frá framleiðanda 1.05 kg, eftir smá modífix þá vigtar minn 908 gr.

    in reply to: óska eftir klifurbelti- helst „ónýtu“, #54501
    Freyr Ingi
    Participant

    Það er ekki ólíklegt að einhver geti reddað þessu á búnaðarbasarnum sem verður haldinn um miðjan okt.

    Þarftu hundaólina fyrir þann tíma eða ?

    in reply to: Tilboð hjá Fjallakofanum – BD Fusion #54481
    Freyr Ingi
    Participant

    Hér er myndband sem sýnir hvernig BD gerir axarsköftin í dag en það sem vakti athygli mína er tíserinn aftast í myndbandinu.

    http://www.blackdiamondequipment.com/en-us/blog/index/view/slug/hydroforming-technology-video

    Þessi nýja Fusion er nú með því meira sexy sem ég hef séð í axabransanum tjahh síðan Grivel Machine kom út (með demparanum)

    Freysi Grivel_Machine.jpg

    in reply to: Annað grjótglímu vid á vefinn #54478
    Freyr Ingi
    Participant

    Gaaman!

    Eigum við von á íslensku klettklifur myndbandi á Banff í vor?

    Freysi

    in reply to: Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn #54465
    Freyr Ingi
    Participant

    Point taken!

    F.

    in reply to: Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn #54462
    Freyr Ingi
    Participant

    Gaman!

    Ég man ekki eftir að hafa heyrt af þessarri leið.
    Hver verður nú fyrstur til að finna djásnið í gömlu ársriti og segja okkur hinum frekari deili á leið þessarri.

    F.

    in reply to: Svarti turninn í Búahömrum #54367
    Freyr Ingi
    Participant

    Ég og Raggi fórum svarta turninn í kvöldblíðu gærdagsins. Notalega stund áttum við þar ásamt þeim 4 öðrum sem voru í leiðinni þegar við okkur bar að.
    Ekki náðum við þó að greina hverjir voru þar á ferð en sáum á því hvar þeir lögðu bíl sínum að bestu aðkomu hefur kannski ekki verið nægilega vel lýst.

    Aðkoma: Beygið inn á bílastæði við Esjurætur að Mógilsá (þar sem gengið er af stað á Esjuna).
    Í stað þess að keyra inn á malbikað bílastæðið er strax beygt útaf til vinstri og inn á malarslóða sem liggur í fyrstu upp í hlíðina en sveigir fljótlega og verður samsíða þjóðveginum. Þessi slóði er keyrður alla leið þangað til maður er staðsettur ofan við malarvinnsluna (flatus lifir). Þar er mál til komið að leggja bíl sínum og fara fótgangandi í átt að klettunum. Sama leið er farin til baka.

    Góðar stundir,

    Freysi

    in reply to: Festival stemning í Valshamri #54366
    Freyr Ingi
    Participant

    Eða keyra meðfram húsunum og sleppa því að labba…
    Gerði það um daginn og sá ekkert kvikt í íbúðar- eða útihúsum, svo ég held að það ónáði engann þó keyrt sé um hlaðið.

    F

    in reply to: Banff könnun #54199
    Freyr Ingi
    Participant

    Steph Davis er klikk,
    sögumaðurinn í skíðamyndinni var sniðugur.

    „what ever you do, don´t turn left“

    Freyr Ingi
    Participant

    Duct teip að innan og utan straujað á og kantskorið!

    FIB

    in reply to: Mánudagspríl #53982
    Freyr Ingi
    Participant

    ok, er þetta sumsé Áslákur.

    Ef að rétt að reynist að leiðin sé ekki fullkláruð nema með viðkomu á sveitakránni í Mosó þá gæti ég trúað að hún hafi ekki verið kláruð nema einu sinni.

    Hálfkláruð töluvert oftar. Allavega hef ég farið þarna 3 sinnum.

    Gaman!

    in reply to: Telemarkfestivalið #53924
    Freyr Ingi
    Participant

    Matur og ball
    &
    Elli líka

    in reply to: snjóflóð #53940
    Freyr Ingi
    Participant

    Þakka sömuleiðis fyrir góðan fund.
    Margir góðir og gagnlegir punktar komu þar fram.
    Stjórn ísalp mun beita sér fyrir því að taka þessi mál lengra.

    Bendi einnig á skráningarform snjóflóða hjá veðurstofunni.

    Því meiri upplýsingar því betra!

    http://www.vedur.is/ofanflod/skraning/

    kv,

    Freysi

    in reply to: Aðstæður #53876
    Freyr Ingi
    Participant

    Það var sem sagt fjallamennskunámskeið á Gufuskálum þarna um helgina og þar voru klifnar nokkrar leiðir í Búlandshöfða. Einnig ein blaut leið í skál einni sem var örlítið austar (2min akstur).

    Svo sá ég faallegar bláar línur neðan af vegi í Mýrarhyrnunni.

    Þannig að já! Það er staðfest!

    Freysi

    in reply to: Aðstæður #53873
    Freyr Ingi
    Participant

    Var á Snæfellsnesi um helgina og þar eru löðrandi aðstæður!!

    SÆLL!!

    Freysi

25 umræða - 126 til 150 (af 252)