Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Vertíðarmenn og konur í Chamonix?
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
10. desember, 2009 at 10:26 #472500311783479Meðlimur
Hæ hó
Verða einhverjir ísalparar í verbúð í Cham í vetur?
„Helgar-hermaður“ (e. Weekend Warrior) búsettur í suður enskri flatneskju leitar að klifurfélögum í Cham í Jan, Feb og Mar.
Hikið ekki við að hafa samband ef einhverjir verða á svæðinu. Er góður í að segja sögur (ef meðmæli óskast um sagnalist þá er hægt að redda því frá góðum mönnum).
Hlakka til að fá ársritið í hendur.
kveðja
Halli
(hg hjá askur punktur org)10. desember, 2009 at 11:28 #54889Björgvin HilmarssonParticipantNú nú, á bara að skella sér á síson í Cham? Góður!
Get stafest að það að ferðast með Halla „Bonnington“ Guðmundss., er góð skemmtun.
Vaðandi sögurnar þá dettur mér í hug ein setning sem hann lét út úr sér í sögulegu ísklifur-road-trippi hér á landi síðasta vetur…
„Ég hef mjög gaman af því að segja sögur, en það hafa ekki allir jafn gaman af því að hlusta á þær“
Við samferðamenn hans í þeirri ferð skemtum okkur vel svo þetta átti ekki við okkur í það skiptið allavega.
10. desember, 2009 at 13:20 #5489010. desember, 2009 at 13:41 #548910311783479MeðlimurAuðmjúkur þakka ég sagna-meðmæli Bjögga og Skabba :o)
Ekki er það nú svo gott að ég sé að fara í verbúð, en það eru hæg heimantökin að smella sér í helgarferð til Cham að klifra. Það kostar álíka mikið í transporti og gistingu og að fara norður yfir Hadríansvegg þannig að planið er að blanda þessu aðeins saman ef makker finnst í Cham eða nágrenni við „Easyjet hub“.
BennyHaHa er minn kaddýsveinn til fjalla þannig að hann verður aldrei skilinn eftir!
kv.
H -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.