Ég er nú ekki vanur að vera að henda inn einhverjum auglýsingum hér inn og hálf skammst mín fyrir það. En mér datt samt í hug að mörg ykkar hefðu gaman af því að sjá þetta.
Þegar ég skoða myndirnar langar mig mest að hrinda öllu af skrifborðinu mínu með dramatískum hætti, hlaupa út af skrifstofunni, skella á eftir mér hurðum og bruna austur ekki seinna en núna.
Þetta eru helvíti skemmtilegar myndir, fínt að hafa eitthvað að skoða svona á kvöldin. Smá samviskubit samt í gang yfir því að hafa hjólað Neshring í kvöld en ekki staðið á flottum tindi í Öræfum