Home › Umræður › Umræður › Keypt & selt › Vantar Simond Naja
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
19. febrúar, 2010 at 21:20 #473990304724629Meðlimur
Ég var að brjóta öxina mína við tilraunastarfsemi og ekki orð um það meir…
Til ykkar sem tollið í tízkunni, eigið þið ekki gamla Simond Naja í skápnum sem vantar nýtt heimili? Ég er ekki til í að borga mikið en lofa að brjóta hana ekki.
rok
20. febrúar, 2010 at 12:29 #55203KarlParticipantÉg á handa þér fetilslausa Naju.
Þú þarft að sækjana sjálfur. -Liggur einhversstaðar á Argentiere jöklinum.
Þessar axir hafa þann eiginleika að vera fljótari niður en eigandinn…22. febrúar, 2010 at 08:34 #55210Páll SveinssonParticipantÉg á líka eina sem þú mátt fá.
Hún er geymd í hylnum fyrir neðan Glym í Botnsdal og þér er velkomið að fá hana ef þú átt leið framhjá.kv.
Palli22. febrúar, 2010 at 10:11 #55211Freyr IngiParticipantHahaahaa… Brandarakeppni Ísalp er hér með hafin.
Skemmtilegur vinkill, því miður á ég engar Nöjur sem Rúnar getur sett á undarlega staði en slíkt hefði nú verð óskandi. Held ég.En hvað varstu að gera þegar þú braust hana?
Mig grunar að þú hafir verið að bagsa við að beygja hana meira. Er það rétt??22. febrúar, 2010 at 11:34 #552140304724629MeðlimurTja.. ég var að endubæta tólið en það tókst ekki. Þrátt fyrir fagmenn í hverju rúmi. Nú er ný hugmynd komin upp. Vonandi get ég kynnt árangurinn á ísfestivalinu.
24. febrúar, 2010 at 00:52 #552290304724629MeðlimurJæja. Nú er maður búinn að vera að brasa og hér er árangurinn. Á samt eftir að fínpússa listaverkið. Skýri barnið Simond Dildo.
24. febrúar, 2010 at 09:30 #552302806763069MeðlimurJá sæll
Þú veist að Byko selur rosa fínt tape sem hægt er að nota til að bæta gripið ef það er sleipt. En það er ekki að spyrja að þessum ísfirðingum – þeir bjarga sér.
kv.
Ivar24. febrúar, 2010 at 10:39 #552320304724629MeðlimurÉg á eftir að setja hokkíteip. Fyrst ætla ég að reyna að létta skaftið aðeins. Handfangið var teiknað í AutoCad og vatnsskorið. Það er 3mm ryðfrítt stál í miðjunni og svo 9mm harðplast sitthvoru megin. Allt draslið kýlt 50mm upp í skaftið, Sikaflex og hnoð í gegn. Hlakka til að prófa.
rok
24. febrúar, 2010 at 12:22 #552362506663659ParticipantÞetta er snild. Verður gaman að fylgjast með hvernig græjurnar virka. Fer bara ekki að verða grundvöllur fyrir því að senda allar bílskúrs og geymslu axir vestur í face lift.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.