- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
20. febrúar, 2006 at 10:54 #45330RobbiParticipant
Veit einhver um einhverjar góðar útivistarverslanir í Osló eða Rjukan í Noregi ?
robbi20. febrúar, 2006 at 11:08 #50293SissiModeratorÉg keypti eitthvað dót í Skandinavisk Høyfjellsutstyr einu sinni, http://www.shu.no/herfinnerduoss.html, hún er svona frekar sentral í Osló. Minnir að úrvalið hafi verið þokkalegt, en Norge er náttúrulega í dýrari kantinum, sjálfsagt bara svipuð verð og hér.
Annars ættu Fjallaskarpurinn og Skabbi að vita allt um þetta mál.
Siz
20. febrúar, 2006 at 12:46 #502940402764759MeðlimurTvær nokkuð góðar eru Oslo Sportslager (www.sportslager.no) og einnig Sportnett (www.sportsnett.no).
Verðið er mjög svipað, en úrvalið og þjónustan talsvert betri. Má nefna að hægt er að kaupa það sem Norðmennirnir kalla „tollfritt“ og þá er vaskinum alveg sleppt. Þannig er hægt að spara sér 20%. ATH þetta er ekki alveg það sama og „tax-free“.
Osló býður í ofvæni, háborg skemmtanalífsins.
20. febrúar, 2006 at 13:05 #50295SmáriParticipantMæli sérstaklega með Oslo sportslager, mikið úrval og góð þjónusta…
kveðja úr kuldanum í Norge (-14 í morgun….)
20. febrúar, 2006 at 14:33 #50296SmáriParticipanthvernig er það, er að koma stór hópur að klifra í Rjukan? Ég bý ekki mjög langt frá, væri gaman að hitta á liðið…
20. febrúar, 2006 at 15:44 #50297Siggi TommiParticipantMér skilst að þetta hafi byrjað sem 17 manna hópur en síðustu tölur sem ég heyrði var upp á 10-11 manns.
Robbi og Freysi fara fyrr en flestir koma um næstu helgi að ég held.
Sissi, Steppó, Halli G og fleiri eru að fara. Þú ættir endilega að heyra í þeim…20. febrúar, 2006 at 15:51 #50298AnonymousInactiveÉg vona að ykkur gangi allt í haginn þarna úti og takið fullt af myndum og verðið með veglega myndasýningu handa okkur sem heima sitjum.
Olli21. febrúar, 2006 at 13:05 #50299SmáriParticipantÞað væri frábært ef einhver af þeim sem eru að fara nennir að hafa samband við mig á smaristef@hotmail.com og koma með dagsetningar o.fl. viðeigandi og jafnvel láta vita hvort maður sé yfir höfuð velkominn…
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.