- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
1. febrúar, 2008 at 08:23 #455602806763069Meðlimur
Kominn í vinnuna? Ekki gaman! Hvernig væri að gera eitthvað skemmtilegra í dag?
Vantar leikfélaga, ekkert erfitt (maður er nú bara bauna-ræfill).
kv. Ívar 699 2876
Til þeirra sem ég vakti í morgun, ég hélt það væri laugardagur og á þannig degi hef ég ekkert samviskubit yfir að vekja fólk fyrir 08:00. Sorry!
Árni á ekki að fara að opna þetta svæði á skikkanlegum tíma fyrir okkur sem ekki tilheyrum hinni vinnandi stétt?
Þjónustan við iðjuleysingja í þessu samfélagi er algerlega til háborinnar skammar!1. febrúar, 2008 at 10:51 #523400801667969MeðlimurJú opnar kl. 14. Dúnúlpan sem ég keypti af Leifi á basarnum nú í haust svínvirkar. Hér er dúnalogn og 15 stiga frost. Svínhált og harf færi víðast utan brauta.
Sólarupprásin er hreint mögnuð hér upp á Fjalli. Útsýnið svíkur engan. Eyjafjallajökull og hinir Suðurjöklar blasa við. Vestmannaeyjar og Surtsey virðast í seilingarfjarlægð. Norðar er svo Hekla, Skjaldbreiður, Þóris-og Eiríksjökull. Snæfellsjökull kemur skýrar inn með kvöldinu. Það eru svona morgnar sem halda manni gangandi.
Kv. Árni Alf.
1. febrúar, 2008 at 11:36 #52341SissiModeratorhehehe – ég fór alveg grenjandi í vinnuna í góða veðrinu, hélt að þú værir bara að pína mig
Siz
1. febrúar, 2008 at 12:19 #523422104833659MeðlimurÆtlum í Haukadal um helgina, er einhver topo eða myndir sem þið lumið á þaðan?
1. febrúar, 2008 at 12:25 #523430311783479MeðlimurArsritid fra ’98 minnir mig, er med leidarvisinn.
kv.
Halli1. febrúar, 2008 at 14:05 #52344SkabbiParticipantJep
Ársritið ’98 geymir fyrirtaks leiðarvísi að Haukadal. Ég skildi reyndar eftir eintak að Stóra Vatnshorni síðast þegar ég var þar, vona að það sé þar enn. Í framhaldi bið ég menn að gæta þess að skilja það eftir þar ef þeir dvelja þar við klifur.
Hvað eruð þið mörg Raggi? Var að benda 4 útlendingum á Haukadal um helgina, með gistingu á Stóra Vatnshorni.
Allez!
Skabbi
1. febrúar, 2008 at 14:21 #523452104833659MeðlimurUhh.. ég held við séum 4 líka… gistum einmitt á Stóra Vatnshorni.
ég tékka á leiðarvísirnum þarna, skil hann eftir.-Raggi
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.