- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
18. júní, 2009 at 22:58 #472153008774949Meðlimur
Vil benda mönnum á nýjustu myndir af skálanum. Eins og sjá má þá er endurgerðin mjög langt kominn og styttist í að hann verði fluttur aftur til síns heima.
Helgina 26-28 júní næstkomandi verður farin undirbúningsferð í Tindfjöll til þess að smíða nýjar undirstöður fyrir skálann. Öll aðstoð væri vel þegin. Þeir sem vilja aðstoða okkur endilega setið ykkur í samband við einhvern í skálahópnum18. júní, 2009 at 23:29 #54264kgbParticipantEkki hika við að hafa samband þótt sért ekki útlærður iðnaðarmaður – í Tindfjallaferðinni þurfum við hendur við að flytja grót og bind járn.
19. júní, 2009 at 09:18 #54265Páll SveinssonParticipantManni hlínar bara um hjartað við að sjá skálann svona flottan.
Glæsilegt hjá ykkur.kv.
Palli23. júní, 2009 at 08:11 #54272Stefán ÖrnParticipantHæ,
Minni á vinnuhelgina í Tindfjöllum. Endilega að melda sig inn…margar hendur vinna létt verk og allt það!
Meldingar hingað: stefankri@gmail.com
kv,
Steppo25. júní, 2009 at 21:17 #54281Stefán ÖrnParticipantMinni á hressandi vinnuferð upp í Tindfjöll um helgina. Markmiðið er að klára undirstöðurnar fyrir skálann og hafa þannig allt til reiðu fyrir sjálfan skálaflutninginn síðar í sumar.
Góður hópur hefur þegar meldað sig inn og má þar nefna stórmagistera eins og:
Kristján Guðni
Hlynur Stefáns
Hlynur Skagfjörð
Hálfdán veðurguð
Fjallaskarpur
Bragi Freyr
Bjarki granni
..og e-r afkvæmi og makar auk undirritaðs.Þess utan hafa ýmsir Tindfjallanaglar eins og
Valli Knastás
Halligrímur Magg
Óli Júll
..og fleiri og fleiri hótað að heiðra samkomuna í lengri eða styttri tíma!Allir velkomnir og öll hjálp velþegin hvort sem menn vilji kíkja í stutta hvatningarheimsókn eða bera olíu á upphandleggi og bryðja íslenskt grjót!
Mætið á svæðið eða hafið samband ef spurningar (bílamál o.s.v).
Hils,
Steppo
stefankri@gmail.com
664101425. júní, 2009 at 21:50 #542823008774949MeðlimurEnn að bætast í hópinn því Skabbi var líka að melda sig með. Skorum á fleiri að mæta. Herramennirnir í Miðdal hafa ákveðið að lána skálann svo það mun ekki væsa um okkur um helgina….
26. júní, 2009 at 10:49 #542831108755689MeðlimurFrábært að sjá þennan mikla áhuga. Ísalp býður í heljarinnar pylsupartí að pólskum sið á laugardagskvöld.
Annars vantar mig far uppeftir á laugardag (og heim á sunnudag). Á einhver laust pláss fyrir þéttvaxinn, kassavanann karlpúng á fertugsaldri?
Bragi Freyr
s.8967979 bragifreyr(hja)gmail.com -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.