- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
16. júlí, 2003 at 16:44 #454540304724629Meðlimur
Nú eru staddir í Hrafnfirði þeir Stefán St. Sm. Björn Baldursson og Valdi fulltrúi ungu kynslóðarinnar. Ég skaust með þeim inneftir í gær á bátnum hans frænda og voru Jökulfirði sléttir og ekki ský á lofti. Sólheimaglottið á Bjössa verður örugglega ennþá á honum þegar þeir koma til Ísafjarðar á föstudaginn vonandi ca 200 boltum léttari.
Því miður komst ég ekki með þeim í þetta sinn þar sem heimilið og fjölskyldan gekk fyrir í þetta eina sinn.Rúnar (gráti nær)
25. júlí, 2003 at 00:21 #48110ÓlafurParticipantHvernig fór? Er búið að setja upp nýja(r) leið(ir)?
-ÓliRaggi
25. júlí, 2003 at 13:02 #48111Siggi TommiParticipantJá, það væri spennandi að fá smá fréttir af þessari meintu perlu í íslensku grjótlandslagi.
Væri gaman að fá smá leiðarlýsingar svo hægt sé að kíkja þarna vestur áður en haustvindarnir fara að blása með tilheyrandi bleytu og látum…29. júlí, 2003 at 12:47 #48112Jón HaukurParticipantÞessu er lýst í síðasta ársriti Ísalp bls 43 og 44, held að þú ættir að drífa í að kaupa blaðið þar sem þú ert alltaf að biðja um einvherjar upplýsingar sem eru í blaðinu. Það var ekki bætt við neinum nýjum leiðum í þessari ferð.
jh5. ágúst, 2003 at 12:26 #48113Siggi TommiParticipantJH, algjör óþarfi að vera með einhvern móral þó maður reyni að afla sér upplýsinga og sýna smá lit á þessum miðli. Slepptu því bara að svara ef ég er svona mikið fyrir þér á þessu spjalli.
Ég vara bara að reyna að fá upplýsingar um einmitt hvort einhverjum fleiri leiðum hefði verið bætt við í þessum túr.
Ég ætti nú að vera með blaðið í höndunum en vegna einhverra mistaka þá hefur það ekki skilað sér heim til mín. Auk þess efast ég um að svör við öllum mínum hugleiðingum sé að finna í þessu eina ársriti og því er vel þegið þegar menn benda á eldri ársrit sem maður gæti reynt að hafa uppi á einhvers staðar…
Bið annars alla vel að lifa!
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.