Telemarkhófið – byrjar kl. 20:00 á laugardagskvöldið.
Eftir stífa samningagerð við helstu veitingamenn Akureyrar hefur TAT samið við Vélsmiðjuna um stað fyrir Laugardagskvöldið.
Það verður boðið upp á pizzuveislu frá Greifanum og tilboð verða á barnum til klukkan 23:00.
Verðlaunaafhending
Glens og gaman
Við höfum staðinn út af fyrir okkur til 23 en þá opnar húsið almenningi. Kl 24 byrjar svo hljómsveit að spila.
Herlegheitin kosta 1500 krónur og greiðist við innganginn.
Sjáumst…
TAT
fh
Bassa og Böbba