Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Telemarkhelgin
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
14. mars, 2003 at 09:12 #458930704685149Meðlimur
Sæl öll sömul,
Við bíðum í eftirvæntingu eftir ykkur.
Hér í dag rann upp föstudagurinn með sól og blíðu.
Hlíðarfjall opnar kl. 11:00 í dag þar er -1°C sól og logn.
Það er nægur snjór í Hlíðarfjalli.
Hittumst í brekkunum upp úr 17:00 og svo byrjar stökkkeppnin kl. 19:00 við Strýtuskálann.
Stebbi „ekki formaður“ vann í fyrra þannig að allir geta unnið.Með Tele-Swing og Stökk-Zoom-kveðjum
Bassi og Böbbi.14. mars, 2003 at 10:24 #47833GoliMeðlimurFlott er að heyra. Hvað er opið langt fram á kvöld (við sem komum úr borg óttans eigum erfitt með að verða komin kl 19…spurning hvort norðanmenn séu svona hræddir við samkeppni að sunnan)?
Annað: er einhver sem á telemarkplastskó í stærð ca 45 til láns eða sölu? Mér er sagt að menn á leðurskóm séu að deyja út, og það væri gaman að geta keppt á jafnréttisgrundvelli…..
Annars hóta ég því að taka snjóbrettið með – sem skiptir kannski ekki öllu máli enda á hvorugt nokkuð sameiginlegt með fjallamennsku ….
14. mars, 2003 at 10:57 #478340704685149MeðlimurKeppnin stendur alveg til 21:00 og menn geta tekið þetta á sálfræðinni, stokkið sigurstökkið korterí níu. Þetta eru engir ólympíuleikar…og þó.
Hey…þú veist að þú átt rétt á tveimur veikindadögum í mánuði!!! eins og einhver auglýsti.
Leggja af stað tímalega…og keyra varlega, löglega en þó ákveðið. EKKI STOPPA Í SJOPPU Né til að létta á sér – bara vera með plastdúnk í bílnum með nógu víðugati til að spræna í.
Það er ekki nema 2 1/2 tími að keyra til Akureyrar þótt það taki í heildina 4 tíma…Því þú ert alltaf 1 1/2 tíma að koma þér út úr Reykjvík.kveðja
Bassi og Böbbi14. mars, 2003 at 16:03 #478350704685149MeðlimurAthugið þið sem eruð enn í Reykjavík…þið þurfið að fara að leggja af stað ef þið ætlið að ná endann á stökkkeppninni…
Það er hægt að hlusta á viðtal við okkur á Rás 1, rás allra landsmanna á þessari vefslóðinni http://www.ruv.is/utras eða bara að hlusta á hann endurtekinn í kvöld kl. 19:30 á Rás 1.
…það voru blammeringar…
kv.
Bassi og Böbbi -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.