Ég vil hvetja sem flesta að skrá þátttöku sína ef þeir hafa hug á þvi að taka þátt í Telemarkhelginni á Akureyri helgina 14. – 16. mars.
Ég vil biða menn sérstaklega að taka fram í athugasemdum hvort þeir ætla að taka þátt í Telemarkhófinu sem verður á laugardagskvöldinu á veitingarstaðnum Lindinni. Miðaverð fyrir matinn verður öðru hvoru megin við 2.000 kr. m/vsk. Líkt og í fyrra verður verðlaunaafhendingin þar og geta menn unnið til veglegra verðlauna fyrir ýmsa tilburði í brekkunum fyrr um daginn sem falla ekki endilega undir keppnisgreinar.
Því við ætlum að reyna að áætla fjöldann, bara svo kokkurinn brjálist ekki, því fleiri þeim mun ódýrara. Í fyrra vorum við um 60 og norðlenska lambakjötið svíkur engann…
kveðja
Bassi og Böbbi