- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
12. mars, 2012 at 11:22 #462920808794749Meðlimur
Sá orðrómur er á kreiki að undirbúningur fyrir Telemarkfestivalið næstu helgi sé í fullum gangi.
Ég hef heyrt að búningateymum um allan bæ sem eru í startholunum með að opna saumastofur og aðrir eru að velta fyrir sér skíðavali.
Það væri þess vegna ótrúlega gaman að fá staðfestingu á þessum orðrómi12. mars, 2012 at 11:50 #575640703784699MeðlimurTelemark, hvað er það? Er ekki Tele-board málið frekar?
http://www.skinet.com/ski/1999/02/out-of-bounds-is-telemark-dead
40 ára reynsla á fjöllum og skíðum og hann telur Tele vera draug fortíðar – http://gravsports.blogspot.com/2010/11/evolution-of-skiing-tele-is-dead.html Hef reyndar póstað þessu áður…en vildi bara minna aðeins á þetta,
Gimp
PS: Heyrði af svaðilförum nokkurra ungra manna á Sigló/Óló í síðustu viku, hart, nokk hvasst (yfir 50m/sek), nokkur first descent og almenn gleði, myndir og sögur óskast
12. mars, 2012 at 11:51 #575650704685149MeðlimurÞað er staðfest að undirbúningur er í gangi.
Telemarkfestivalið verður næstu helgi. Staðfestur orðrómur.
Búningakeppnin verður.
Samhliðasvigið verður.
Après ski verður.
Telemarkhófið verður.
Nánari tímasetningar auglýstar síðar hér á vefnum, þetta er allt að smella saman á síðustu metrunum.
Á meðan endilega æfið ykkur í frábæru færi í Bláfjöllunum.
Kveðja með sveiflu
Bassi og co12. mars, 2012 at 11:56 #575660704685149Meðlimur12. mars, 2012 at 12:33 #57567SmáriParticipantEf einhvern vantar skó fyrir festivalið þá er ég með til sölu lítið notaða Scarpa T2 nr 39-40 og T1 aðeins meira notaða nr 42.
kv. Smári
13. mars, 2012 at 11:12 #57569SkabbiParticipantHæ
Þarf ekkert að skrá sig í dinner eða aprés?
Skabbi
13. mars, 2012 at 11:34 #57570GoliMeðlimurAð vanda erum við komin norður að taka út aðstæður. Hérna er yndislegur fagurblár ís í brekkunum og frábært keppnisfæri. Lítur reyndar út fyrir helvítis snjókomu með lausamjöll á fimmtudaginn til að eyðileggja allt. En hafið engar áhyggjur, við skulum skiða allt helvítis púðrið á föstudeginum svo þið hin þurfið ekki að þreyta ykkur á því
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.