Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Telemark festivalið
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
13. mars, 2007 at 21:17 #458903008774949Meðlimur
Sælt veri fólkið
Ég vil enn og aftur brýna fyrir fólki að skrá sig hér á vefnum ef það ætlar að eiga séns á að vera með í matnum á laugardagskvöldinu.
Kokkurinn þarf að fá grófa tölu sem fyrst.Eins ef menn eru að skrá marga, þá endilega segja hversu margir það eru
Skráningar eins og:
-Afmælislið HSSR kemur, sér og sigrar
-Telemarkdeild Þórs fjölmennir að vandaÞetta segir okkur ekkert um fjöldann!!!
Berjast…….
14. mars, 2007 at 00:26 #512500704685149MeðlimurSiggi, Telemarkdeild Þórs er aðeins tveir einstaklingar…og þeir velgja Árbæingum vel undir uggum í öllum greinum …
…en ég tek undir það með Sigga, best væri ef menn mundu breyta skráningu sinni og taka það fram hvort menn ætli í matinn eða ekki…
…en Siggi, væri þá ekki þá best að uppljóstra hvað veislumat menn eru að fá fyrir aðeins 1.500 kr …auk hljómsveitar, ýmis tilboð á barnum fram að miðnætti…
…eða eins og norðmennirnir segja
Fisk er fisk men kjöt er mat…kveðja
14. mars, 2007 at 08:29 #512513008774949MeðlimurJú góður punktur
Á laugardagskvöldið er stefnt að því að hittast á Vélsmiðjunni ( sami staður og í fyrra ) kl 20:00. Það kostar 1500 kr inn og á boðstólnum eru lambakjöt, gratíneraðar kartöflur og salat. Tilboð verða á barnum : 350 skot, 400 stór bjór og 600 á breezer….eða var það 650!
Mér skilst svo að stórhljómsveitin Alli og Útlagarnir hafi ætlað að spila en Helga Björt er einmitt umboðsmaður þeirra á norðurlandi
B & B og félagar munu svo gefa öllum vinninga að vanda og farandbikarinn fyrir kvenlegustu tilburðina mun verða afhentur
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.