Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Skíðaferð á Mýrdalsjökul!
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
24. júlí, 2007 at 08:51 #46470AnonymousInactive
Ef einhver er til í skíðaferð um Mýrdalsjökul næsta laugardag
endilega láta mig vita. Ég er að fara einn hring á jöklinum sem eru svona 55km. Þetta ætti að hafast auðveldlega á einum degi.Ég afgreiddi Hofsjökul um síðustu helgi og var það í frábæru veðri. Þrátt fyrir rigningu allt í kring um jökulinn var skafheiðríkt mest allan daginn á jöklinum og logn. Jökullinn er alls ekki jafn sprunginn og margir voru búnir að tala um. Miðað við austanverðan Öræfajökul er Hofsjökull bara barnaleikur.
Kveðja Olli
S. 824-7195
Tölvupóstur: olli@vistor.is25. júlí, 2007 at 17:48 #515852806763069MeðlimurHumm, já, bara léttur dagur. Kominn heim um hádegisbilið er það ekki?
26. júlí, 2007 at 09:03 #51586AnonymousInactive60 km skíðaganga er nú ekki eitthvað sem menn drepast af. Ég fór á Langjökul í gær og kom heim um miðnætti og gekk 35 km og það var nú ekki mikið mál enda er líkamshræið aðeins að taka við sér formlega séð.
Ég held nú samt réttilega að þetta muni taka allan daginn því maður verður nú að fá að hafa tíma til að njóta náttúrunnar taka myndir og anda aðeins að sér fjallaloftinu.30. júlí, 2007 at 10:00 #51587AnonymousInactiveÞið misstuð af góðri ferð um helgina. Fór aleinn á laugardagskvöldið þarna upp og fór hringinn og afgreiddi alla toppa sem ég sá:Goðabungu, Engukoll(reyndar tvo toppa), Entu, Austmannsbungu, Kötlu(stóðst ekki mátið) og Hábungu. Þetta var 17 tíma plamp enda 70 km vegalengd. Veður var á köflum frábært og skyggnið alveg óviðjafnanlegt.
31. júlí, 2007 at 21:17 #51588Siggi TommiParticipantSeigt í þessum gömlu beinum og liðum.
Hér í gamla daga þótti gott að komast 70km á helgi og jafnvel á langri páskahelgi, reyndar alvopnaður í fullum herklæðum.
Ertu ekki að verða búinn að þessu 100 tinda sulli, gamli?Svo ég best viti, þá skuldar þú okkur ritnefndarspekúlöntum ennþá myndir frá Tröllaskaganum.
31. júlí, 2007 at 22:35 #51589AnonymousInactiveBúinn að skila myndum inn til Skabba. Jú er að verða búinn að sulla á þessa tinda, á reyndar bara um 28 stykki eftir en sennilega fer ég á tæplega 50 tinda svona upp á gamanið. Verður maður ekki að klára það sem maður byrjar á og standa við stóru orðin. Það er eitt að básúna í fjölmiðum að maður ætli að gera eitthvað sniðugt og annað að klára dæmið. Er að fara norður á Akureyri þar sem nóg er af gallhörðum göngumönnum bíður eftir að fá að komast á fjöll. Ef veður leyfir ætla ég að klára þá 5 tinda sem eftir eru á Tröllaskaganum og fara á a.m.k 5-7 aðra sem eru á milli 1350m og 1400m.
Fjallakveðja Olli -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.