- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
1. apríl, 2011 at 00:50 #475381811843029Meðlimur
Það var ljómandi mæting á nýliðakvöldið á miðvikudaginn.
18 manns skráðu sig í ferð á Skessuhornið á laugardaginn, ég og Gummi Stóri ætlum að stýra þeim fríða hóp.
Það væri virkilega gaman að sjá sem flesta félaga mæta, fara á skemmtilegt fjall og kynnast þeim sem eru að byrja í sportinu.
Hittumst á Select við vesturlandsveg klukkan átta á laugardagsmorguninn.
Kveðja,
Atli Páls.
2. apríl, 2011 at 08:41 #565793009852119MeðlimurÞað er þyngra en tárum taki að missa svona af ferðinnim, en það verður verður víst ekki við það ráðið í dag.
annars sjáumst við bara vonandi í kvöld2. apríl, 2011 at 20:10 #565811811843029MeðlimurHæ
Það var frábært á Skessuhorninu í dag. Gott veður, gott fólk og góðar aðstæður.
Hinsvegar ætla eitthvað mjög fáir að koma í kvöld, það frestast þangað til næst.
3. apríl, 2011 at 20:09 #56585sveinbjoMeðlimurTakk fyrir mig, magnað ferð, miklu meira en ég hafði búast við. Atli var flottur farastjóri og ég var heppin að vera á reypi á milli Fjalla Teyms strákarnir Gummi og Arnar, svo fék ís klífrið beint í æð. Vóna allir halda áfram að njóta sól blíðan í dag
3. apríl, 2011 at 22:27 #56586SissiModeratorÉg geri ráð fyrir að með gagnályktun hafi ég verið ömurlegur, enda ákvað ég að söðla um úr bröndurum og sögum í þetta skiptið yfir í tuð.
Nema hvað, ég tók nokkrar myndir, maður náttúrulega hálf skammast sín fyrir að setja inn einhverjar imbamyndir núorðið, tómir atvinnumenn að munda linsur í þessum klúbb.
Anyway, hér eru nokkrar
[img]https://lh6.googleusercontent.com/_ZcDmZhyXcPQ/TZjrPr-_DUI/AAAAAAAAHk0/vg1cTvdLxEM/s720/IMG_3046.JPG[/img]
Þakka góðan dag.
3. apríl, 2011 at 22:42 #56587gulliParticipantBjörn Bjartmarsson wrote:
Quote:Takk fyrir mig, magnað ferð, miklu meira en ég hafði búast við. Atli var flottur farastjóri og ég var heppin að vera á reypi á milli Fjalla Teyms strákarnir Gummi og Arnar, svo fék ís klífrið beint í æð. Vóna allir halda áfram að njóta sól blíðan í dagGiska á að Gummi hafi malað eins og hann er langur til en Arnar hafi verið þögull sem gröfin!
3. apríl, 2011 at 22:52 #56588SissiModeratorFokk ertu skyggn eða eitthvað? Þetta var nákvæmlega svona!!!
4. apríl, 2011 at 23:05 #56590SkabbiParticipantHæ
Heví gott albúm, fúlt að missa af þessu. Veggurinn er nú bara býsna flottur núna.
Allez!
Skabbi
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.