Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Saurgat Satans
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
14. júlí, 2011 at 10:33 #474612506663659Participant
Á sunnudaginn síðasta fórum við, undirritaður, Ívar Hardcore, Bjöggi Árni og Gísli, í tveimur teymum leiðina Saurgat Satans í Vestrahorni. Þetta er snildar leið sem bíður upp á mjög skemtilegt fjölspanna klifur í einstöku umhverfi.
Klifrið sjálft tók um 4 tíma en þetta eru 7 spannir sem síðan er hægt að síga í 3 sigum.
Eitthvað hefur umræðan verið að boltun væri ekki nógu góð og löng run out. Því er ég ekki sammála því almennt er leiðin vel boltuð og með góðum stönsum og „passlegum run outum“. Hardcore getur kannski kommentað á þetta
Kletturinn er fínn en eins og við er að búast í svona leið er svoldið af skófum á slöbbunum.Hvet alla til að láta vaða og skella sér austur í Vestrahorn.
En Hrappur og félagar hafa unnið gott verk þarna.
myndir á leiðinni frá mér og vonandi hinum líka.
Guðjón
14. júlí, 2011 at 11:26 #56847Freyr IngiParticipantSkemmtilegt!
Sýnið endilega myndir af uppgöngunni og umhverfi.
14. júlí, 2011 at 12:58 #568492506663659ParticipantNokkrar myndir.
Úrvalið því miður ekki sem best. En það voru nokkrar myndavélar með í för þannig að það hljóta að koma einhverja snildar myndir frá öðrumhttps://picasaweb.google.com/gudjons/SaurgatSatans?authuser=0&feat=direct
14. júlí, 2011 at 18:32 #56850HrappurMeðlimurÞað mætti setja einn bolta í byrjun þriðjuspannar (notuðum Friend þar) annars eru styttra á milli bolta en gengur og gerist hérna í Evrópu í sambærilegum leiðum, þar sem 5 metrar er með því stysta.
Gráður í fjölspannaklifri eru blekjandi og þumalputtareglan sú að menn geti klifrað talsvert erfiðara en upp er gefið eða hafi þeim mun meiri reynslu í klifri.Annars má hafa í huga að við Rafn þurftum fyrst að klifra upp Ódyseif með bensín-borvél, boltana,keðjur, fullann klifurrakk og 3 línur, Þar er ekki óalgengt að 2-3 boltar séu í spönn þannig eithvað gæti það haft með boltun Saurgatsins að gera.
3. september, 2011 at 23:36 #56897Björgvin HilmarssonParticipantJá þetta var góður dagur og flott leið. Hér eru loksins nokkrar myndir frá mér…
4. september, 2011 at 17:08 #56898Arni StefanKeymasterFrábær dagur og frábær leið. Þetta er leið sem er hiklaust hægt að mæla með. Varðandi rönnátin þá finnst mér þau bara gefa þessu karakter og góð hvatning til að klifra alveg pottþétt vel alla leið.
4. september, 2011 at 20:10 #56899SissiModeratorTakk fyrir að deila þessu Bjöggi, súper myndir að vanda og mjög skemmtilegt. Kannski verður maður einhvern tíman stór og spólar í þetta, hrikalega flott leið.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.