Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Nýjar leiðir 2009-2010
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
3. janúar, 2010 at 15:39 #476072806763069Meðlimur
Canada Dry.
Fyrir ofan bæinn Fit undir Eyjafjöllum. Áberandi lína sem þekkist helst af því að miðja hennar sést ekki frá bænum. Og efsti hlutinn ekki þegar maður er kominn dáldið austur fyrir bæinn.
5.gr. Er reyndar líklega ekki mikið brattari en þessar hefðbundnu Eyjafjallaleiðir en þegar ísinn er í fangið nánast allan tímann þá er það líklega 5.gr. Þó hann sér mjúkur.
140m. 70 / 40 / 30.
F.F. Arnar, Berglind og Ívar 2.jan 2010.
4. janúar, 2010 at 00:22 #549802506663659ParticipantAfi
Línan hægra meiginn við hellin Paradísarheimt. Nokkuð greinileg lína sem er skorin í sundur af stórum stalli í miðjunni.
5.gr. 120m 60/30/30
F.F. 03.01.2010
Guðjón Snær,Guðmundur Helgi,Viðar Helgason5. janúar, 2010 at 17:21 #54998Siggi TommiParticipantTvær nýjar leiðir voru farnar syðst í Ólafsfjarðarmúla (Dalvíkurmegin) milli jóla og nýárs (28. des 2009 nánar tiltekið). Eru þær sitt hvoru megin við leiðina Hart í bak sem farin var jólin 2008.
Aðkoma er frá flötum mel þar sem vegriðið inn að Ólafsfjarðargöngum byrjar. Gengið til austurs niður lítil gil niður í fjöru og þaðan áleiðis norður eftir grýttri fjörunni (10-15mín labb)Sægreifinn, WI5, 50m.
FF: Sigurður Tómas Þórisson, Jökull Bergmann
Vinstra megin við stóra fossinn ofan við fjöruna (50-100m sunnan við Hart í bak). Stífir fyrstu 20m en léttari 10m upp á stóra syllu. Val um nokkrar WI4-5 útfærslur (<10m) upp á brún
Freyr Ingi og Gregory Facon ofanóðu svo aðeins stífara afbrigði vinstra megin við skerið sem klýfur fossinn upp.Landkrabbinn, WI4, 65m.
FF: Sigurður Tómas Þórisson, Jökull Bergmann, Eiríkur Geir Ragnars
Mjó þunn 10m buna í litlu horni leiðir upp í tvö WI3/4 höft upp á brún.
Leiðin er staðsett nokkur hundruð metra norðan við Hart í bak og co og þarf að þræða framhjá tveimur klettanefjum sem gætu orðið vafasöm í háflóði.Gregory Facon ofanveður afbrigði (græn lína) af Sægreifanum, WI5 í Ólafsfjarðarmúla. Upprunalega leiðin er merkt með rauðri línu
Fleiri myndir á http://picasaweb.google.com/hraundrangi/OlafsfjarArmuli28Desember2009#
5. janúar, 2010 at 18:33 #549990801852789MeðlimurÉg og Jón Heiðar skelltum okkur í stóra fossin rétt sunnan við „Hart í bak“ í Ólafsfjarðarmúla veit einhver nafnið á fossinum, helvíti hressandi klifur.
5. janúar, 2010 at 19:33 #550002808714359Meðlimurhér er mynd af kvikindinu sem ég og Maggi klifruðum í dag. Þetta er án vafa erfiðasta klifur sem ég hef klifrað og mjög skemmtilegt.
Okkur langar auðvitað að vita hvort einhver annar hafi verið búinn að klifra þetta áður eða hvort við eigum heiðurinn.
kv.
Jón H7. janúar, 2010 at 00:25 #55011SissiModeratorIcesave (Ísbjörg), WI3, 205 metrar.
Staðsetning:
Austanverð Kjós (sjá neðar)FF(?):
Sveinn Fr. Sveinsson (Sissi), Freyr Ingi Björnsson, Brynjúlfur Jónatansson.Lýsing leiðar:
4 spannir: 50 metrar upp að gilinu / 55 m. /40 m. / 60 m. (íslaust að hluta).Mynd (var í einhverju veseni með að koma henni hérna inn)
Aðkoma að leiðum í austanverðri Kjós
Ekið eftir Þingvallavegi, beygt til norðurs inn á Kjósarskarðsveg (48), beygt til austurs við afleggjara að Hækingsdal, Hlíðarás og Klörustöðum. Beygt til hægri, yfir litla brú (lokað með stöng sem er ólæst, munið að loka henni aftur), að sumarbústöðunum (þar er gengið að Ásláki), áfram ógreinilegan slóða með hlíðinni þar til komið er að mjög þröngu og löngu gili með greinilegri íslínu, Icesave. Hlíðin heitir Grenihlíð og gilið hugsanlega Ketilsskora. Ef ekið er áfram er komið að Hrynjanda.Nánari lýsing
Þægilegt klifur, hentug leið til að sýna byrjendum réttu handtökin eða stíga fyrstu spor í fjölspannaklifri, létt brölt með 3 gr. höftum inn á milli. Fyrstu 3 spannirnar eru mestmegnis í ís en þar sem gilið er þröngt er þunnt á köflum og hægt að notast við mosa og berg af og til. Fjórða spönn hófst á íshafti, síðan brölt upp íslausan kafla og smá ís upp á brún.Leiðin var frumfarin nokkrum mínútum eftir að forseti Íslands neitaði að skrifa undir Icesave lögin hin síðari og þótti nafnið því við hæfi.
Niðurleið
Gengum niður norðan við leiðina, það er líklega hentugast. Skemmtileg ævintýraleið, flottur karakter og umhverfi.Kveðja,
Sissi, Freysi og Billi8. janúar, 2010 at 21:09 #550162806763069MeðlimurBeikon og egg.
Svínafell Öræfasveit. Línan til vinstri rétt vinstramegin við UMFÖ skóræktarreitinn.
Heildar klifur – 220 til 230m 5.gr.
F.f. 6.janúar 2010, Einar Rúnar Sigurðsson & Ívar F. Finnbogason.
1. Spönn 4.gr 40m
2. Spönn 5.gr. 20m
3. Spönn 3./4. gr. 40m
4. Spönn 4. gr. 45m
5. Spönn 4+./5. gr 50m
6. Spönn 4./4+.gr 10-15m
6b. Spönn 2.gr 50m
7. Spönn 5.gr. 10-15mTil að ganga að leiðinni er best að leggja bílnum við gönguhlið sem ca 200 metrum austan við pípuhliðið á austari afleggjaranum að Svínafelli. Við gönguhliðið byrjar nokkuð áberandi göngustígur sem liggur í átt að Virkisjökli. Eftir ca 200 metra beygir maður til vinstri inn á þrengri stíg sem liggur upp í lerki og grenilund sem plantaður var af UMFÖ. Frá lundinum er gengið að ská til vinstri upp hlíðina, þar til maður kemur upp nokkuð þröngt gil. (Maður gengur fram hjá einni ísleið á leiðinn þangað). Tvær flottar leiðir byrja upp úr þessu gili, og okkar leið er vinstri leiðin.
Gengum niður eftir Svínafellinu og komum niður yfir Flosalaug.
http://picasaweb.google.co.uk/ivarfinn/Veturinn0910#5424470164858962962
Kv. Ívar og Einar.
9. janúar, 2010 at 01:01 #550182308862109ParticipantEgg og beikon.
Svínafell Öræfasveit. Um 400m SA við Beikon og egg, Línan sem nær lengst niður.
Heildar klifur – 235m WI4+
F.f. 6.janúar 2010, Halldór Albertsson og Haukur Elvar Hafsteinsson
1. Spönn 4+.gr 60m
2. Spönn 3.gr 10m
3. Spönn 4+.gr 55m
4. Spönn 2.gr 80m
5. Spönn 4.gr 20m
6. Spönn 4+.gr 10mTil að ganga að leiðinni er best að leggja bílnum við gönguhlið sem ca 200 metrum austan við pípuhliðið á austari afleggjaranum að Svínafelli. Við gönguhliðið byrjar nokkuð áberandi göngustígur sem liggur í átt að Virkisjökli. Eftir ca 600 – 700 metra beygir maður til vinstri inn á þrengri stíg sem liggur upp í lerki og grenilund sem plantaður var af UMFÖ. Þaðan er þröngur stígur sem liggur langleiðina í gegnum skógræktina og upp að leiðinni. um 15min labb frá bíl
Gengum niður eftir Svínafellinu og komum niður yfir Flosalaug.
http://picasaweb.google.com/halldor86/RoadTripIOrFin#5424418178034270162Shrek er líka fólk.
Hnappavöllum Öræfasveit. Leiðin vinstra megin við ísklifrarar eru líka fólk.
FF. 7.Janúar 2010, Halldór Albertsson, Einar Rúnar Sigurðsson, Haukur Elvar Hafsteinsson og Ívar Finnbogason
Lengd. um 15m WI4+ Við endurskoðuðum gráðuna vegna hversu stutt leiðin er en endar verulega brött.
http://picasaweb.google.com/halldor86/RoadTripIOrFin#5424431957299635890
Hundafoss.
Skaftafelli Öræfasveit. Fossin fyrir neðan Svartafoss.
FF. 7.Janúar 2010, Haukur Elvar Hafsteinsson, Ívar Finnbogason og Halldór Albertsson
Lengd. 25m WI4
http://picasaweb.google.com/halldor86/RoadTripIOrFin#5424435701099050050
10. janúar, 2010 at 22:31 #55022Siggi TommiParticipantTvær nýjar leiðir voru farnar í Kaldakinn þann 9. janúar 2010.
Eru þær báðar í háu klettunum nálægt sjónum, við hliðina á Drambi.Reiði, WI5, 90m
FF: Sigurður Tómas Þórisson, Guðjón Snær Steindórsson, 9. jan 2010
Leiðin er næsta leið vinstra megin við Dramb (WI5).
Byrjar á stuttu léttu slabbi en svo taka við stífir 20m af samfellt bröttum ís. Síðustu 20m upp á snjósylluna eru WI4 eða svo og spönnin samtals um 55m.
Seinni spönnin er um 35m af WI4+/5-.Leti, WI5-, 85m
FF: Páll Sveinsson og Viðar Helgason, 9, jan 2010
Bratt breitt kerti fyrstu 20m en síðan slaknar á brattanum upp að snjósyllunni, samtals um 50m spönn. Efri spönnin er 35m og heldur léttari en sú neðri en þó vel stíf.http://picasaweb.google.com/hraundrangi/OlafsfjarArmuliOgKaldakinn#5425588235097358114
Hvort tveggja fantaleiðir sem líklega eru ekki í aðstæðum á hverjum degi.
Þar með hafa allar leiðirnar í þessum sektor verið farnar nema hrikalega flotti dildóinn lengst til hægri. Einhver spenntur?
Þarf að henda 4-5 boltum í þetta og þá er málið dautt…13. janúar, 2010 at 12:33 #550370304724629MeðlimurVið erum búnir að vera nokkuð duglegir hér vestra og nýttum frostakaflann vel. Reyndum í þriðja sinn við leið í fjallinu Kaldbak í Önundarfirði (ekki það sama og hæsta fjall Vestfjarða í Dýrafirði) en ég guggnaði…. Sjálfsagt spilaði inn í að við vorum 2,5 tíma að vaða snjóinn allt upp í mitti alla leið. Fossinn leit vel út frá vegi en var svo bara hrúga af postulíni sem molnaði við minnsta högg eða alveg holur að innan. Fyrsta spönnin er fullir 60 metrar og allt í fangið og svo er mikill ís fyrir ofan sem við höfum bara séð neðan frá. Sjálfsagt töluvert auðveldara en flott.
Nokkrar myndir hér: http://www.facebook.com/Borea.Adventures
Reynum aftur fljótlega.
1. mars, 2010 at 14:56 #55273SkabbiParticipantHæ
Fínt að dusta rykið af þessum þræði eftir festival helgina. Um að gera fyrir stráka og stelpur sem frumfóru nýjar leiðir að skrá þær sem fyrst áður en það snjóar mikið yfir minningarnar.
Skabbi – alveg laus við skráningarskyldu
1. mars, 2010 at 16:16 #552750111823999MeðlimurÉg var sett í það að skrá nýjar leiðir sem klifraðar voru á Festivalinu, hérna kemur listinn en myndir og nánari lýsingar koma vonandi fyrr en seinna =
Föstudagur 26/2
Fjaðrárgljúfur/Mögá (það á eftir að finna nákvæma staðsetningu á svæðinu, er við veginn að Laka)
Fyrsta leiðin WI4 30 metrar – Dóri, Ásgeir og Helga María
Pönk WI5 25 metrar – Dóri, Ásgeir og Helga María
Trappfossen WI4 35 metrar – Dóri og ÁsgeirHörgsárgljúfur
Tunglskin WI4 30 metrar – Freyr og Rúnar Óli
Gamli Gráni WI4 50 metrar – Ágúst Þór og James McEwanLaugardagur 27/2
Morsárdalur
Handan við hornið (Just around the corner) WI4 100 metrar Ágúst Þór og James
Frumskógarhlaup (Junglerun) WI3 250 metrar Ágúst Þór og JamesRótarfjallsgljúfur
Rótarinn WI5 120 metrar Freyr Ingi og Rúnar Óli
Dansgólfið WI5 110 metrar Dóri og ÁsgeirSunnudagur 28/2
Morsárdalur
Bara stelpur WI3 100 metrar Helga María og Katrín
Þrír plús- If Ági is not lying WI3+ 50 metrar – Siggi, Jón Yngvi og James1. mars, 2010 at 16:25 #552760111823999MeðlimurUpphitun fyrir Festivalið.
Austurbakki Hvítárgljúfurs, um það bil 1km neðan við Gullfoss
Klifrarar – Ásgeir, Dóri og FreyrHvítagull WI4 50 metrar
Rass í skoru WI4 20 metrar
Svingersklöbb WI3 25 metrar15. mars, 2010 at 15:30 #55336Freyr IngiParticipantGrjóthríð, WI3, 100 metrar
Einar Rúnar Sigurðsson, Haukur Ingi Einarsson og Óskar Arason klifruðum 27. febrúarÍ Svínafelli, í hlíðinni á ská austur frá sundlauginni, vestan við Myrkahöfðingjann. Leiðirnar eru í raun beint upp af bænum Víðihlíð. Þetta er línan í miðjunni af 3 línum sem koma þarna niður og virðist vera lengsta línan. Það er styttri 3 gráðu leið falin s.s. 100 metrum vinstra megin, og álíka löng leið með brattari byrjun 50 metrum hægra megin við Grjóthríðina. Nafnið kemur til af óskemmtilegri lífsreynslu, því við fengum grjót allt í kringum okkur þegar við vorum hálfnaðir upp leiðina. Sem betur fer meiddist enginn. Þegar sólin fer að skína á lóðrétta klettavegginn fyrir ofan þessar leiðir þá fer allt sem losnar þar uppi niður þessar trektar, svo það er ástæða til að vara við að klifra þessar leiðir ef heit sól á eftir að byrja að skína þegar líður á daginn.
Svartafoss Hásætið, WI4, 15 metrar
. Einar og Óskar klifruðu hana.
Bratt kerti alveg lengst til vinstri í hvelfingunni við Svartfoss í Skaftafelli. Mjög stutt leið, en þar sem hún er vel í fangið þá held ég að ég gráði 4 gráðu.
Ég gat lamið niður 2 spectrum í mosann, og sett eina ísskrúfu í smá ísklump til að tryggja Óskar upp.Moving Heart, WI3, 15 metrar
28. febrúar þá klifraði Einar Rúnar Sigurðsson, Craig og Kelly Perkins, Leiðina . Vestan megin í gilinu sem maður gengur fram með á leiðinni upp að Svartafossi. Það sést í ísinn þarna ef maður horfir upp gilið frá efra bílastæðinu við Svartafoss. Við gengum göngustíginn upp með gilinu og löbbuðum svo niður í gilið og yfir ána á ís. Þessi leið er sennilega þriðja efsta leiðin möguleg í þessum ísbunkum en það eru margar stuttar leiðir neðan við hana.The Hernicator, WI3
Eftir moving heart fórum við upp að Svartafossi og Einar og Craig klifruðu þar aðra leið . Ég braust smá spöl upp í gegnum hríslurnar og tryggði Craig upp í birkitré aðeins fyrir ofan leiðina. Skrautleg hjón, hún var með gervihjarta, og hann með brjósklos. Stóðu sig nú samt bara vel.8. apríl, 2010 at 18:58 #55373Freyr IngiParticipantBekri – 180 metrar, WI 4, M4/5
Leiðin er í Hrútadal í Esju og um klukkustundar gangur er upp að henni frá Eyrarfjallsvegi (460) í Miðdal.
Leiðin var klifin í fjórum spönnum.
#1 55 metrar, M4/5. Byrjað á klettum en endað á þunnum ís undir bröttu íshafti.
#2 50 metrar, WI 4. 20 metra íshaft og snjóklifur þar fyrir ofan.
#3 50 metrar, Snjóklifur með WI 3 hafti.
#4 25 metrar, snjóklifur sem endaði á hengjuklifri.FF: Freyr Ingi Björnsson, Halldór Albertsson
Sverðfiskur – 40 metrar, WI 5
Leiðin er í miðju Teitsgili við Húsafell.
Byrjunin var upp brattan kafla upp í lítinn helli og þaðan upp kerti undir höfuðveggnum. Þaðan var hliðrað til vinstri yfir að skoru milli kertis og veggs. Þar var um afar áhugaverða ísmyndun að ræða en kertið virtist ekki fastara en svo að meginhluti þess sprakk þegar klifrað var á því. Uppi á sprungnu kertinu tók við stuttur íslaus kafli sem leiddi svo upp í fúinn eldri ís og regnhlíf sem þurfti að hliðra framhjá.FF: Halldór Albertsson, Freyr Ingi Björnsson, Björgvin Hilmarsson
Snæhéri – 35 metrar, WI 4+
Leiðin er næst innsta leiðin í Teitsgili sé horft inn það.
Leiðin liggur framan á ísfláa en fer um miðbikið inn í skoru sem myndaðist í ísnum. Efstu 10 metrarnir voru illa fastir við vegginn með og gefa + gráðuna.FF: Freyr Ingi Björnsson, Björgvin Hilmarsson, Halldór Albertsson
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.