Gleðilega páska kæru félagar.
Skráði loksins nýja leið sem farin var á Hraundranga um miðjan síðasta mánuð, sjá nýjar ísleiðir……..þótt enginn hafi ísinn verið.
Þetta er afbragðs leið sem slík og mun fallegri og miklu meira klifur heldur en venjulega leiðin.
Eflaust er þetta nú betri vetrar klifur leið en þó verður að segjast að bergið var ótrúlega gott á köflum þannig að kannski maður kíki axalaus næst.
Allavegana að þá er þetta skemmtileg viðbót í okkar fábreittu fjallaleiða flóru.
Bestu kveðjur úr Skíðadalnum
JB