Sá í fréttinni af nýju leiðinni hennar Beth Rodden, að þar er hún skráð fyrir mynd af sjálfri sér að klifra, sem fær vart staðist. Þegar maður rýnir betur í myndina sjálfa þá sést að hún er merkt Ace Kvale (www.acekvale.com/).
Skemmtilegt að rifja það upp að hann var einmitt einn af þeim sem voru að sniglast á Hnappavöllum þegar klettaklifurfestivalið stóð sem hæst í fyrra (eða var það í hittifyrra?). Þetta var Marmot teymi að gera einhverja heimildamynd og ræddu við nokkra lókal klifrara á staðnum.
Sædís fékk svo póst um daginn frá stelpunni á bakvið vídeócameruna, en við bíðum jú spennt eftir að fá að sjá hvernig þetta kemur út. Veit Sædís eitthvað meira um málið?