- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
4. ágúst, 2007 at 11:17 #46518BjörkParticipant
Sá breskan þátt um daginn, þar sem fyrrum hermaður ferðast um óbyggðir landa og er allan tímann í miklum lífsháska. Í einum þættinum kemur hann til Íslands.
Uppáhalds atriðið mitt er þegar hann veiðir rjúpu með gildru sem hann gerir með skóreimum… maður á greinilega ýmislegt eftir ólært þegar maður ferðast um landið!!!Náttúrulega hægt að finna allt á þessu neti, einhver búinn að hlaða þessu hér :
http://youtube.com/results?search_query=%22man+vs.+wild%22+%2B+iceland
Það sem gerir mann samt „smá“ tortrygginn er að hann er með myndatökulið með sér.
5. ágúst, 2007 at 00:44 #515930311783479MeðlimurHæ hó,
Kona nokkur úr þessu próduksjón-liði hafði samband við Davy félaga minn (maður skoskur) í byrjun árs og vildi fá „first hand account“ lýsingar af þeim „hrikalegu“ „survival“ aðstæðum sem hann upplifði þegar hann fór að klifra með mér í Svarfaðar-/Skíðadal um páskana 2006.
Davy lýsti fyrir henni að þetta hefði bara verið sakleysislegt klifurfrí, ekkert sérstakt drifið á dagana sem talist gæti „lífshættulegt“ nema fyrir utan að Ósk Norðfjörð hefði setið um okkur (e. stalking) í laugum Norðlendinga.Ekki var Bear þessi til í að leika það eftir oss…
En hún tjáði Davy að Björn (e. Bear) hefði þá þegar fengið nokkar juicy sögur sem hann ætlaði að leika eftir.
Er Davy reyndi lymskulega að verða sér úti um frítt far til Íslands (= pótensjal klifurfrí) til að sýna þeim hvar þessar blessuðu laugar væru þá var kona þessi snögg til að svara að Björn væri nú þegar búinn að verða sér úti um UIAGM-menn til að leiða sig í allan sannleikann um hættur á óförnum slóðum Íslands.
Þannig fór nú það; gott þó til þess að vita að einhver hafi fengið eitthvað upp úr þessu, vona að það hafi verið heimamenn – ekki innflutt vinnuafl ;o)
Bestu kveðjur
HalliSakleysislegt klifurfrí um páska 2006 (nb! vantar myndir af þessum atvikum í laugunum):
http://gallery.askur.org/album5346. ágúst, 2007 at 08:59 #51594BjörkParticipantJá þetta snýst náttúrulega fyrst og fremst um að gera gott sjónvarpsefni, sem fólk nennir að horfa á. Þótt þetta sé dálítið bull. Eins og í einu atriðinu þegar hann neyðist til að rífa af sér fötin til að koma í veg fyrir ofkælingu… gert fyrir konurnar.
6. ágúst, 2007 at 10:55 #515952003793739MeðlimurÞetta er svaka nagli…
En þetta gengur ekki alveg upp, mikið klipp saman og greinilega ekki allt tekið á Íslandi.
Samt góð landkynning.Kv.
Halli7. ágúst, 2007 at 12:07 #515960808794749Meðlimuró jess.
einn túrhesturinn talaði um þennan þátt í heila viku
og ég er búin að bíða eftir að rekast á hann síðan þá.
hlakka mest til að sjá hann flá kind með vasahníf og elda í hver!9. ágúst, 2007 at 01:02 #515970310783509MeðlimurHmmm… Jamm skemmtilegur var hann.
Að ferðast um ísland með tökulið =300.000kr
Að stökkva úr gæsluþyrlunni yfir hálendinu =150.000kr
Að koma fyrir heimaslátraðri kind á vergangi =50.000kr
Að veiða rjúpu í skóreim… ómetanlegt !! Eða á maður frekar að segja ÓMÖGULEGT ??Það var líka ótrúleg tilviljun að hann fann hrúgu af rjúpna fiðri í móganum… Það var af því þar var hún skotin. Hún var STEIN dauð í gildrunni.
Ég horfði nú greinilega ekki á þennan þátt nógu vel en mér sýndist allar tökurnar vera frá Íslandi en það var all vel rokkað milli landshluta.
Þess má geta að sjálfsbjargarsérfræðingunum (e.Survival Experts) er getið í lok þáttar en það voru nú engir UIAGM snobbar, miklu betra en það. Jón Gauta Jónsson, Þór Kjartansson og Sigrún Nikulásdóttir voru þar á ferð, svo aurarnir lentu á klakanum í góðum höndum.
Kv. Ísfeld
10. ágúst, 2007 at 20:44 #515980703784699Meðlimur….já það þarf lítið til að gleðja landann!!!
Ef þið hafið ekkert betra að gera en að horfa á video á netinu mæli ég með þessu,
http://youtube.com/watch?v=T3FaTrtXhNU
og
http://youtube.com/watch?v=q4l4DZeletg
Ég spyr bara hvar eða hver er Valli á þessari mynd?
GIMP
PS: Just go to YouTube.com and type in
riding together / love ride 2006.03.12 (#351) part1
riding together / love ride 2006.03.12 (#351) part2
You can’t understand any of it since it’s in Japanese and it is only the first 5 minutes but it is fun to watch how dramatic they make it look. It starts about 3 minutes into part 1 and finishes at about 5 minutes into part 2 so its only 10 minutes.11. ágúst, 2007 at 21:31 #515991108755689MeðlimurÞað er greinilegt að Valli er ekkert sérlega hrifinn af bómull!
12. ágúst, 2007 at 10:47 #516002806763069MeðlimurLang frægasti og fallegasti íslendingurinn, ekki spurning!
Annars held ég að Valli hafi verið Himmi, sem einnig kom við sögu í þessu stórvirki kvikmyndasögunnar.
Sjö Samúræjar ÚT Love Ride INN
14. ágúst, 2007 at 18:42 #516012003793739MeðlimurHimmi,er lítið að gera í vinnunni?
15. ágúst, 2007 at 12:48 #516020111823999MeðlimurEitthvað sýndist mér ég sjá glitta í Atla Þór í rauðu úlpunni sinni!
Cotton kills! hehe
snilldar video15. ágúst, 2007 at 22:56 #516030703784699Meðlimurnei því miður er ekki lítið að gera í vinnunni….hef ekki ennþá gefið mér tíma til að horfa á þessi video, en langaði að leyfa öðrum að njóta þeirra.
Sendi þennan link á japanska vinnufélaga mína (sem eru að selja Nikita í Japan) og þeim fannst þetta frekar fyndið, og höfðu gaman af. Þetta ku víst vera einn sá frægasti og skemmtilegasti þáttur meðal ungs fólks í Japan, svo Atli þarf að fara varlega þegar hann stígur á Japanska grundu sem og hinir meðlimir þessa verkefnis…
kv.Himmi
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.