Málsfarsdeildin mótmælir

Home Umræður Umræður Almennt Málsfarsdeildin mótmælir

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45202
    0309673729
    Participant

    Málfarsdeild Ísalp.is vill koma fram kröftugum mótmælum gegn því að íslenskir fjallamenn gefi nýjum leiðum ensk nöfn. Það er stefna málfarsdeildar að íslenskar leiðir sem íslendingar frumfara fái íslensk nöfn. Nú eiga íslendingarnir að westan Rúnar og Eiríkur eftir að skrá nýju leiðin sína formlega. Það eru vinsamleg tilmæli málfarsdeildarinnar að þeir gefi henni íslenzkt nafn. Málfarsdeildin bendir á að vilji menn halda stíft í alþjóðavæðinguna er mögulegt að gefa leiðunum bæði íslenskt og enskt nafn.

    Fyrir hönd málfarsdeildarinnar
    Helgi Borg

    #49461
    AB
    Participant

    Jæja…

    Kv,
    AB

    #49462
    2003793739
    Meðlimur

    Rafn Emilsson skrifar

    Ísalp kynnir fyrirlestur í ísalp ræðumaður verður Helgi Borg.

    yfirskrift fyrirlesturs verður:
    Fjallamenn og fagurfræðilegt mat á beitingu íslenskrar tungu. Er klámvæðingin farin að herja á tungu íslenskra fjallamanna?

    Helgi mun stikla á stóru um mikilvægi lagagerða um málfar fjallamanna og kynnir nýtt lagafrumvarp. Frumvarpið er þess efnis að erlendir fjallamenn sem til íslands koma og hyggjast frumfara íslenskt þverhnípi hvort sem gert er úr bergi eða freðnu vatni. Verði að sækja íslenskunámskeið námsflokkanna learn how to name a icelandic route in 10 days. Fjallamenn sem hinsvegar eru af íslensku bergi brotnir skulu sæta fjársektum komist upp um beitingu erlendra tungumála við nafngiftir á íslenskum leiðum.
    Í seinni hluta verða svo rædd áhrif veraldarvefsins á tungu íslenskra fjallamanna og lögð áhersla á klámvæðinguna í þessu samhengi.

    Fjölmennum nú og lærum af nafnalöggunni.

    Sjálfur legg ég til að menn hætti að skíra leiðir og láti nægja að nefna þær.

    Takk fyrir takk
    Rafn Emilsson

    #49463
    3008774949
    Meðlimur

    Missti maður af einhverju spyr ég?
    Siggi Skarp

    #49464
    1306795609
    Meðlimur

    Af hverju í andsk… er þá talað um ísklifurfestival og telemarkfestival? ekki vissi ég að ,,festival“ væri íslenska.

    Eins nafnorðið ,,skíðun“ sem viðskeyti við fjalla- eða telemark- og sést oft hér á síðunum. Afskaplega mikil afbökun sem ekki á heima í íslensku máli. Kannski bara jafn gott að fara bara alla leið með enskuna.

    Takk fyrir að redda síðunni, Helgi.

    rok

    #49465
    Hrappur
    Meðlimur

    Menn geta skírt leiðirnar sínar einhverri útlenskri viðurstygð en við breytum bara nöfnunum þegar kemur að því að gefa út leiðarvísa og eins hérna á netinu, ha Helgi?

    Góðar stundir

    #49466
    1110734499
    Meðlimur

    Reyndar mætti sjálf málfarsnefndin og hennar formælendur stundum bera ögn meiri virðingu fyrir íslenskum málfarsvenjum og réttritunarreglum !

    nöldur- og tuðkveðjur, D

    #49467
    0309673729
    Participant

    Það eru ekki allir fullkomnir.

    Ívar Harðhaus (e: Hardcore) kemst vel frá nafngiftunum með sínum erlendu kúnnum. Hann gefur leiðunum bæði íslensk og ensk nöfn. Sjá leiðirnar: Vöðva verkir, Tommi Dávaldur, Lukka Írans, Gufað með græjur, Skipulagt undanhald, Að drepa tímann, Einu sinni en til lukku og Upphitunar gil.

    kveðja
    Helgi Borg
    Málafarsadeildin

    #49468
    Ólafur
    Participant

    Heil Helgi!

    Láttu ekki þessa ambögusmiði og únlínga buga þig. Ef þetta fólk hefði ráðið hér ríkjum fyrir 100 árum værum við öll talandi dönsku. Við megum þakka fyrir að þetta fólk hefur ekki gefið fleiri leiðum nafn. Eigum við ekki barasta líka að breyta nöfnum á gömlum leiðum yfir á ensku? Getum byrjað á Stardal: „the resurrection“, „the scratch“, „straight ahead“. Nú eða skellt okkur á „Buttonfields“ í leiðir eins og „the slaughterhouse“, „tango on the corner“ eða „wilderness-boogie“.

    Hnuss,
    órh

    #49469
    0704685149
    Meðlimur

    Are you from you?

10 umræða - 1 til 10 (af 10)
  • You must be logged in to reply to this topic.