- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
21. janúar, 2013 at 14:00 #44634KarlParticipant
Nú eru til umræðu á þingi ný náttúruverndarlög sem geta gert einstökum landeigendum kleyft að loka fyrir gangandi umferð.
Þetta er í raun stórmál og brýnt að stjórn beiti sér innan Samút.
19. gr.
Umferð gangandi manna.
„Mönnum er heimilt, án sérstaks leyfis landeiganda eða rétthafa, að fara gangandi, á skíðum, skautum og óvélknúnum sleðum eða á annan sambærilegan hátt um óræktað land og dveljast þar.Þó er í sérstökum tilvikum heimilt að takmarka eða banna með merkingum við hlið og stiga för manna og dvöl á afgirtu óræktuðu eignarlandi í byggð ef það er nauðsynlegt vegna nýtingar þess eða verndunar“.
Með seinni málsgreininni er landeigendum gefið frelsi til að hefta alfarið för gangandi fólks um láglendi á Íslandi ef þá lystir.
Hugtökin “ sérstökum tilvikum“ nýting eða verndun“ – hafa verið túlkuð mjög vítt enda eru því engin mörk sett. Nóg að setja niður eina lerkihríslu og þar með er landið orðið „nytjaland“ – í raun eru engar kvaðir settar á hvað átt er við með „nýtingu“ og því mætti á grundvelli þessa ákvæðis nánast alltaf hefta för, öll tilvik verða sérstök, hið minnsta í augum landeiganda og þar með hefur almannaréttur verið afnuminn, utan afrétta.21. janúar, 2013 at 14:57 #58136Ragnar Heiðar ÞrastarsonParticipantGóð og þörf umræða hér. Gott og holt hverjum þeim sem stunda útivist að þekkja til náttúruverndarlaga og kynna sér þær breytingar sem verða á þessum lögum. Vill þó benda á að gildandi grein náttúruverndarlaga (nr. 14) um umferð gangandi manna er mjög svipuð. En þau lög hafa verið í gildi síðan 1999.
Mönnum er heimilt, án sérstaks leyfis landeiganda eða rétthafa, að fara gangandi, á skíðum, skautum og óvélknúnum sleðum eða á annan sambærilegan hátt um óræktað land og dveljast þar. Á eignarlandi í byggð er eiganda eða rétthafa þó heimilt að takmarka eða banna með merkingum við hlið og göngustiga umferð manna og dvöl á afgirtu óræktuðu landi.
Umræðan hlýtur því að snúast um hvort þessi lítilsháttar breyting, breyti einhverju sem snýr að hagsmunum okkar Ísalpara og annara útivistarunnenda.
Kveðja
Raggi -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.