Home › Umræður › Umræður › Keypt & selt › Lausir steinar í Valshamri
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
21. ágúst, 2011 at 21:28 #473161908803629Participant
Þegar hefur verið umræða um lausa steina í Valsamri en þar sem ég rak mig á frekar marga í dag þá langar mig að impra aðeins á þessu aftur.
Steinarnir fjórir eru:
– Flaga frekar ofarlega í Skorunni
– Flaga á milli bolta eitt og tvö í Eilífi
– Tveir stórir steinar, hlið við hlið, ofarlega í EilífiMér finnst þetta allt frekar stórir steinar og ef einhver þeirra skyldi losna er spurning hvað verður um sumarbústina fyrir neðan…Því er spurning um að vera á undan náttúrunni og reyna að stýra falli þessara steina og líklegast best að gera það í samstarfi við landeiganda.
Ég mun skoða þetta með stjórninni hvað hreinsun varðar en vildi í þetta skiptið bara vekja athygli á öllum þessu lausu steinum. Þetta er ansi frábrugðið því sem maður er vanur í Valshamri og því allur varinn góður þegar menn klípa í klettana þarna… því kannski eru fleiri lausir…
Eru einhverjir reyndir „steinalosarar“ sem væru tilkippilegir í verkið?
22. ágúst, 2011 at 20:09 #56881gulliParticipantEr það staðreynd að nauðsynlegt sé að fara í svona miklar aðgerðir? Hvað segja þeir sem hafa verið að klifra þarna síðan áður en ég fermdist? Finnst að menn ættu að stíga mjög varlega til jarðar í þessu.
23. ágúst, 2011 at 11:00 #568851210853809MeðlimurÉg verð að furða mig á umræðunni um lausa steina í Valshamri. Ekki vegna þess að lausir seinar séu hættulausir, þvert á móti, heldur vegna þess að ég hef ekki orðið var við slíkt. Til að mynda hef ég klifrað í Valshamri tvisvar í sumar, Eilíf 10 sinnum í hvort skipti, án þess að finna annað en ég hefði fast land undir fótum (sem og höndum). Að mínu viti sé boltalínunni fylgt ættu klifrarar ekki að rekast á lausa steina.
24. ágúst, 2011 at 21:25 #568871908803629ParticipantJá… spurning hversu stórt mál þetta er og er ég ekki sá reyndasti í þessum efnum og hugsanlega ofmat hjá mér…
Síðast þegar ég klifraði í Valhamri, sem þó var í byrjun sumars, þá leit ég þetta sömu augum og þið segið, þ.e. fannst þetta ekkert til að tala um…
Aftur á móti brá mér svolítið þegar ég mætti til klifurs um helgina þar sem að allt í einu fannst mér steinarnir miklu lausari en áður. Eins og þeir hafi losnað enn meira og jafnvel spurning hvort það sé jafnvel nýskeð.
Það þurfa greinilega fleiri að hafa skoðun á þessu áður en nokkuð er ákveðið. Mín upplifun var allavega þessi.
P.S. lausu steinarnir uppi í Eilífi eru út af leið en flagan neðst niðri er, ef hún er laus, í leiðinni nema klifruð sé upp skoran.
P.P.S. ég velti fyrir mér hvort það sé líka laus flaga í Blómálfum en það er hugsanlega vitleysa.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.