Ég, Halli og Þorvaldur (Doddi) klifruðum í N- vegg Syðstusúlu á laugardaginn. Við völdum eitt af giljunum þarna upp, hægra megin í veggnum og aðstæður voru prima, harðpakkaður snjór og góður ís í höftunum. Veðrið var gríðargott framan af en þykknaði upp með deginum.
Ég held að Botnssúlur séu vanmetnar sem klifursvæði, frekar stutt aðkoma og góðar leiðir víða.
Kveðja,
Andri