Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Jólaklifur um helgina
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
13. desember, 2007 at 15:15 #46033SkabbiParticipant
Hæ
Þó að veðurspáin sé ekki alltof góð í dag hef ég fulla trú á því að aðstæður verði vel brúklegar til klifurs á laugardaginn. Hlýindin undanfarna daga haf ekki verið óskapleg þannig að Eilífsdalur er til að mynda líklega ennþá í myljandi aðstæðum.
Hvað segja aðrir, e-r stemming?
Allez!
Skabbi
13. desember, 2007 at 15:37 #520801108755689MeðlimurÉg stefni á að mæta. er dálítið háður því að einhverjir aumki sig yfir aumann byrjanda. Þarf líkega að verða mér út um eitthvað af græjum býst ég við.
Bragi13. desember, 2007 at 15:51 #52081SmáriParticipantHvað segir fólk þá um skíðun? eru ekki einhverjir heitir fyrir því?
Geri ráð fyrir að úrkoman sem hefur komið undanfarna daga sé í formi snjós nokkra metra yfir sjávarmáli…
kv. Smári
13. desember, 2007 at 16:34 #52082SkabbiParticipantBragi!
Ef þú átt brodda, axir, belti og hjálm ertu gjaldgengur. Við hittumst bara í Skútuvoginum laugardagsmorgun, spilum það eftir eyranu þaðan.
Skabbi
13. desember, 2007 at 16:41 #520831108755689Meðlimurá þetta allt og eitthvað af skrúfum, tvistum, bínum, og ýmsu smálegu. spennan eykst!
13. desember, 2007 at 16:53 #520842008633059MeðlimurSælir Skabbi og Bragi, væri alveg til í að kíkja með ykkur, t.d. í Elífsdalinn. Fínt að nota dótið sitt í eitthvað annað en að festa niður svalahandrið!
14. desember, 2007 at 11:09 #520850304724629Meðlimur,,Skíðun“ og ,,snjós“ er ekki íslenska Smári..!
Stefni á að skella mér á skíði eða lemja ís hér fyrir vestan ef Eiríkur meikar það ekki suður akandi í dag. Lítur ekki út fyrir það. Rigningin hér hefur líka verið í formi ,,snævar“ til fjalla.
Annars bara hress.
kv
rok14. desember, 2007 at 11:38 #52086SmáriParticipantÉg breyti þá e.t.v. bara helgarplaninu og skelli mér á íslenskunámskeið í stað þess að að fara á skíði á snævi þakinni jörð…
hvernig beygist annar sögnin að skíða?
Smári
14. desember, 2007 at 11:43 #52087SmáriParticipantmá ekki segja utanbrautarskíðun? hvað á að segja í staðin?
Einn alveg að verða ruglaður í íslenskupælingum
14. desember, 2007 at 14:33 #52088Björgvin HilmarssonParticipantVerð að taka upp hanskann fyrir Smára. Vil ekki missa hann yfir á íslenskunámskeið að óþörfu, þegar annað og betra er hægt að gera við tímann. Enda hafði hann á réttu að standa… að hluta til allavega.
„Snjór“ og „snær“ er ekki samam orðið. Vissulega er „snær“ í eignafalli „snævar“, en þar sem Smári var að tala um „snjó“ þá var hann í fullum rétti að nota eignarfallsmyndina „snjós“ því þær eru í raun þrjár gjaldgengar Auk þeirrar sem hann notaði eru „snjóvarins“ og snjóarins“ líka til. Hljómar asnalega en er rétt.
Vil benda áhugasömum á þessa síðu: http://www.lexis.hi.is/beygingarlysing/ en þar er hægt að slá inn ýmis orð og fá allar mögulegar myndir af þeim.
Varðandi „skíðun“. Það lítur oft einkennilega út að sjá sagnorðum breytt yfir í nafnorð eins og í þessu tilfelli. Er ekki tilvalið að notast bara við „skíðaiðkun“ eða eitthvað álíka? Annars finnst mér „skíðun“ ekki svo galið orð.
Nóg um þetta….
Vona að það verði eitthvað eftir af ís. Ekki lítur þetta neitt voðalega skemmtilega út í augnablikinu
14. desember, 2007 at 16:51 #520891108755689MeðlimurHvað segja reynsluboltarnir – er einhver séns að ís sé að finna hér á suðvesturhorninu?
14. desember, 2007 at 17:30 #52090RobbiParticipantÞað er bókað mál að það er ís í Eilífsdal. Það er þó ekki ráðlegt að skella sér í td. Þilið eftir þessa asahláku sem hefur verið síðustu daga. Það sem væri meira inni er Einfarinn, léttuleiðirnar i villingadal. Gæti verið að kórinn í Hvalfirði sé klifranlegur.
Svo gæti verið hægt sé að jöppa eitthvað í Skarðsheiðinni, allavega í versta falli hægt að brölta upp hornið.Robbi
14. desember, 2007 at 18:49 #520911108755689Meðlimurglæsó! mæting klukkan átta eða hvað?
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.