Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifurfestivali frestað
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
20. febrúar, 2003 at 08:30 #457270405614209Participant
Íslaust, rok, rigning og hiti um allt land.
Jæja, nú virðist fokið í flest skjól og nokkuð ljóst að fresta verður fyrirhuguðu Ísklifurfestivali um ófyrirsjáanlegan tíma.
Staðfestar heimildir herma að á austur-, suður- og norðurlandi sé algjörlega íslaust. Ég talaði rétt í þessu (fimmtudagur kl. 08:15)við Rúnar Óla á Ísafirði og hann segir að það sé einhver ís á svæðinu en við vorum sammála um að veðurspá fyrir helgina væri vonlaus.
Stjórnin hélt fund í gær og fór yfir allar upplýsingar sem fyrirliggjandi voru og það virðist ekki annað til ráða en að fresta hátíðinni.
Kveðja
Halldór formaðurPS. Umræðusíðurnar eru tilvalinn vettvangur til að skiptast á skoðunum um hvernig best er að haga framtíðarundirbúningi fyrir Ísklifurfestival. Á t.d. að stefna á að tímabilið sé haft opið (jan-apríl) og ef aðstæður góðar að festivalinu sé smellt í gang með 5-7 daga fyrirvara? Tillögur og umræður eru hið besta mál.
HK20. febrúar, 2003 at 09:58 #477401709703309MeðlimurÍ ljósi síðustu tveggja ára hljómar þetta ágætlega að hafa einhvert tímabil undir þennan dagskrárlið. Vill þó bara nefna að hugsanlega væri betra að þrengja tímabilið. Þannig losnaði dagskrárnefnd við að hafa þetta hangandi yfir sér 1/3 af árinu og auðveldaði klúbbfélögum að skipuleggja sig. Held að heillavænna væri að halda sig við einhvern góðan mánuð t.d. febrúar sem undir eðlilegum kringumstæðum ætti að vera traustur.
Sé fyrir mér auglýsinguna í dagskrá:
Ísklifurfestival einhver helgi í janúar, febrúar, mars eða apríl ….
betra væri þá;
Ísklifurfestival helgi í febrúar
Með kveðju,
Stefán Páll
20. febrúar, 2003 at 12:38 #47741Páll SveinssonParticipantFyrstu árin sem festivalið var haldið var oft tvísint um aðstæður.
Þetta tókst samt alltaf og ég man ekki eftir að hafa fengið heilt festival í góðu veðri. Það var þó alltaf vetur.
Ef bjóða á erlendum gestum getur verið erfitt að skella þessu á með 5-7 daga fyrirvara.Palli
20. febrúar, 2003 at 13:36 #477420405614209ParticipantÉg man í gamla daga þegar það snjóaði á veturna og það voru himinháir skaflar á götunum í bænum og það var jafnvel hægt að skíða í Hveradölum og stundum bara þar því að það var ófært á aðra staði.
Annars eru þessir hlýindakaflar alveg ótrúlegir og óútreiknanlegir og því erfitt að bjóða hingað erlendum gestum, eins og þú talar um Palli, og því væntanlega best að reyna að festa einhverja dagsetningu fyrir hátíðina. Versta sem gerist er að þetta verði eins og núna og það verði að fresta öllu.
Svo væri etv hægt að hafa þetta eins og á jólunum. Hafa Ísklifurfestival hið meira sem væri skipulagt með löngum fyrirvara og svo hið minna sem væri meiri skyndiákvörðun og meira stílað á þetta eins og klúbbferð???
Með bestu kveðju
Halldór20. febrúar, 2003 at 15:19 #477430309673729ParticipantÉg er á því að við ættum að halda okkur við þessa dagsetningu áfram, þeas. síðustu helgina í febrúar. Þetta er jú í fyrsta skipti síðan við byrjuðum sem ekki er hægt að halda festivalið nokkurnstaðar á landinu vegna ísleysis og veðurs. Við ættum hinsvegar kannski að hafa marga staði í sigtinu í einu og ekki taka ákvörðun stað fyrr en með nokkurra daga fyrirvara.
Að sjálfsögðu eigum við einnig að reyna að hafa fjölmennar ísklifurferðir á öðrum tímum þangað sem fólk vill fara.
20. febrúar, 2003 at 22:20 #477440703784699MeðlimurFrábært að hafa svona fasta dagsetningu og þá halda sig við síðustu helgi í febrúar. Ef maður getur gengið út frá því að festivalið sé á þessum tíma þá eru minni líkur að maður bóki annað á þeim tíma. Ef festivalið aftur á móti ákvarðast við einhverja 5 manna stjórn ár hvert þá verður of mikill hringlandaháttur á þessu. Er það ekki með alla stór-viðburði úti í heimi að þeir eru alltaf á einhverjum vissum tímum?
Greiði mitt atkvæði fyrir að halda þetta ALLTAF síðustu helgina í febrúar um aldir alda. Eða er þetta ekki komið til að vera? Himmsi -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.