Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifurfestival
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
12. febrúar, 2011 at 04:56 #47563Páll SveinssonParticipant
Það næsta sem kemst því að klifra flottan ís er að tala um ísklifur.
Frábært kvöld.
Takk fyrir mig.kv
p13. febrúar, 2011 at 19:37 #56348Siggi TommiParticipantVar ekki búið að banna þér að tjá þig á spjallinu um miðja nótt, PS?
Alla vega já, takk fyrir mig. Fínasta teiti.
En eftir þynnkadag á laugardag í boði hvítvíns og hrárra sjávarafurða, þá varð að gera eitthvað gáfulegt sem sárabót fyrir festivalið sem ekki varð.
Við Arnar Emils skelltum okkur því í NV-vegginn á Skessuhorni og þrusuðum upp Rifið í miklu kófi og hressleika. Fullt af dvergvöxnum púðurbunum sem urruðu í smettið á okkur og stundum kæfandi skafrenningur svo úr varð ekta alpafílingur eins og markmiði var.
Upp komumst við og klifruðum til jafns mosaskæni, ísfrauð og klettanibbur því lítið af heillegum ís er á svæðinu (Eystrigróf og Skessusæti eru mjög þunnar).
Tryggingar voru fengnar víða að úr forðabúri alpinistans, spektrur, fleygar af ýmsum stærðum, slingar yfir horn, vinir og hnetur (fæst af þeim af háaum kalíber á hverjum tíma reyndar…).
Þetta var temmilega erfitt fyrir okkur enda markmiðið að komast í smá alpatvist með fleygahömrum og almennu söfferi. Var taugatrekkjandi á köflum en þó bærilegt ef maður náði að jóðla inn einhverju glingri ekki fjarri krúxunum.
Vorum næstum hættir við undir leiðinni vegna snjóflóðahættu og skítviðris. Fegnir að hafa drifið okkur upp.
Rifið er klárlega fínasta ævintýri þegar ís er með minna móti. Mælum með þessuMyndir komnar á:
https://picasaweb.google.com/hraundrangi/Rifi13Februar2011#
Myndum frá Arnari bætt við núna kl. 18:30 (14. feb)14. febrúar, 2011 at 09:39 #56350SissiModeratorÞakka sömuleiðis fyrir frábært festival. Og Siggi ég held að þú hafir misskilið þetta eitthvað, niðurstaða umræðna var að menn ættu að pósta meira á nóttunni og að HHH yrði leigupenni vefsins, svo það væri nú eitthvað gaman hérna.
Fínar myndir, harka í ykkur að spóla í þetta í skítaveðri og slöppum aðstæðum.
Sissi
14. febrúar, 2011 at 15:40 #563510311783479MeðlimurÞetta litur ut eins og „godur skoskur dagur a fjollum“. Flottar myndir, enda myndar menn!
Kvedja
Halli15. febrúar, 2011 at 12:53 #56354Siggi TommiParticipantTalandi um Skotland, þá fann ég þetta prýðilega vídeó af skosku mixklifri.
http://www.petzl.com/us/outdoor/petzl-tv/videos/mountaineering/ice-climbing-ben-nevis
Óvenju flott vídeó verð ég að segja. -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.