Sökum þess að veður og ísaðstæður hafa algerlega farið í hundana hef ég ákveðið að fresta Ísklifur II námskeiðinu sem vera átti núna á miðvikudaginn og laugardaginn. Námskeiðið verður haldið næst þegar veður og annir leyfa.
Þeir sem þegar eru skráðir hafa fengið upplýsingar um námskeiðið í pósti, þeir sem vilja nýta tækifærið og komast á námskeiðið þegar af verður geta sent póst á ivar@mountainguide.is og ég læt þá vita um framhaldið.