Kæru félagar
Eins og flestir hafa eflaust tekið eftir er veðrið ekki sérlega hagstætt til að halda ísfestival næstu helgi.
Stjórnin er búin að vera í beinu sambandi við Valla og Rúnar Ola undanfarna daga ásamt því að liggja yfir veður spám. Það er ís fyrir vestan en þar er bæði rigning og hiti fram að helgi. Spáin fyrir helgina er heldur ekki góð og það langar sennilega engann að keyra alla leið á Bíldudal til að klifra í skítaveðri.
Þannig að ísfestivali er frestað um viku og vonandi kólnar í næstu viku.
Kveðja,
Stjórnin