Ég var að heyra í Freysa og er hann ásamt fleirum kominn á staðinn og er verður frábært, hæglætis veður og frost. Það er nægur ís þarna og menn(og konur) eru í þessum skrifuðu orðum að velja sér verkefni fyrir daginn. Það er mjög góð stemming á staðnum. Fyrir þá sem eru ennþá í vafa um að keyra norður ætti það að vera auðveld ákvörðun að drífa sig. Þeir útlendu klifrarar sem eru þarna ætla að halda myndasýningar á staðnum á kvöldvöku þannig að það verður nóg að gera þarna á daginn og á kvöldin. Umfram allt farið varlega. Drífa sig svo……..
Ísklifurkveðja Olli