Nú er frost á Fróni og þokkalegar aðstæður í Múlafjalli sem og víðar.
Rísandi var laminn að ósekju af Freysa, Steppo og undirrituðum. Voða gaman saman. Freyr valdi svo skemmtilega klettalínu upp á brún til að bæta smá töffaraskap í klifrið og var það hin besta skemmtan.
Mér skilst að þetta eigi ekki að endast lengi, hlýnandi um miðja vikuna. Fóru fleiri að leika í dag?
Siz