Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ís aðstæðu
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
4. nóvember, 2010 at 22:39 #472191811843029Meðlimur
Sælt veri fólkið
Smá fréttir af ís aðstæðum. Ég og Arnar Felix renndum í Hvalfjörðinn í dag. Þar voru líka fleiri á ferðinni. Við kíktum á Múlafjall sem var ekki alveg komið í ham svo við fórum í Brynjudal og inn í Flugugil. Þar er ansi mikið af ís í fljótandi formi. Við enduðum á að fara eina stutta leið framarlega í gilinu sem ég veit ekki hvað heitir en annars er lítið um klifur aðstæður þar eins og er.
5. nóvember, 2010 at 10:38 #55746Arnar JónssonParticipantStundum þegar lítið er að finna af ís Múlafjalli og Brynjudal en þó búið að vera ágætis frost svona snemma veturs er oft vel þess virði að trítla inn að Glymsgili. Hef nokkrum sinnum fundið nóg af ís þar þegar lítið er að finna af honum í nágreninu.
En þar sem þú náttúrulega sérð ekkert frá veginum inní gilið þá er það alltaf nokkur áhætta
P.s. Hvað er að frétta af Eilífsdal? Sáum að hann var allur að koma til síðustu helgi.
Kv.
Arnar5. nóvember, 2010 at 10:53 #55747SkabbiParticipantHæ
Ef ég ætti að veðja á e-ð um helgina væri það Villingadalur, liggur töluvert hærra en hin svæðin og oft verið prýðilegur ís þar þegar annað hefur verið dræmt.
Allez!
Skabbi
5. nóvember, 2010 at 13:46 #55748gunnaratliMeðlimurVorum nokkrir í Villingadal í gær, fínar aðstæður
8. nóvember, 2010 at 12:37 #55755Bergur EinarssonParticipantFór með Jósef úr Hafnarfirðinum og gerðum fræðilega úttekt á því hvort ekki sé hægt að klifra Spora í einni 60 m spönn með því að sleppa fyrsta stallinum. Maður kemst upp en ekki alla leið að nýja boltanum í toppnum.
Fórum einnig línuna í þrönga gilinu NV við spora í mjög skemmtilegum og landslagsmiklum ís þó að hann hafi verið þunnur á köflum.
Maður veit ekki alveg hvernig lægðin í gær fór með þetta en það var töluverður ís í Spora þannig að væntanlega er nóg eftir.
8. nóvember, 2010 at 19:00 #557561811843029MeðlimurFór einhver að skoða ís í bíðunni í dag?
9. nóvember, 2010 at 23:48 #55767Arnar HalldórssonModeratorÉg fór ásamt Birgi Blöndahl í Spora sl. laugardag. Ísinn var þokkalegur og var ég eingöngu með 16 cm skrúfur sem gengu flestar alla leið.
Spori ætti að vera í góðum aðstæðum næstu helgi.
Hils,
Arnar10. nóvember, 2010 at 00:38 #557681811843029MeðlimurVið fórum þrír í Múlafjall í dag. Það vantar dáldið uppá margar leiðirnar en sumar eru í góðu lagi.
Við fórum Rísanda. Ísinn var mjög stökkur,kertaður og brattur en lítið mál að tryggja. Leiðin var talsvert erfiðari en venjulega, en mjög skemmtileg.
Myndir hér: (það vantar reyndar alveg myndir úr annarri spönninni)
http://www.facebook.com/album.php?aid=95093&id=1283765201&l=b51870f753
Kv.
Atli Páls. -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.